Search

Rss Posts

Rss Comments

Login

 

Endasprettur!

Jun 11

Nú er heilinn í mér um það bil að nálgast þolmörk verkefnaálags. Ég get auðvitað sjálfum mér um kennt þar sem ég er mikið fyrir að fresta hlutunum fram á síðustu stundu þar sem ég vinn lang best undir álagi. Ég er búinn í öllum kúrsum nema einum og skil í honum eru á miðnætti á morgun, föstudag (24 Hours and counting). Eini gallinn við að vinna undir álagi á síðustu stundum er hvað er erfitt að lesa þungar greinar sem þarf að einbeita sér mikið við til að skilja.
Þetta er samt allt að koma, ég er s.s. að lesa grein sem heitir A Survey on Participating Media Rendering Techniques. Hún fjallar um leiðir til að herma hegðun ljóseinda í efni, og er ágætis inngangur inní það sem mastersverkefnið mitt er um, sem ég byrja á í sumar. Ég þarf svo að nota ákveðnar jöfnur og aðferðir þarna í hermun þar sem útkoman ætti að vera raunverulega útlítandi vökvi eftir gefnum breytum.
T.d. ef ég gef módelinu efnissamsetningu mjólkur ásamt brotstuðli hverrar sameindar, ætti aðferðin að geta teiknað raunverulega útlítandi mynd upp í þrívídd. Dæmi (ath. þetta er ekki ljósmynd heldur “rendered” útkoma úr slíku módeli):


þar sem eftirfarandi jafna, sem lýsir lýsingu efnisins, er meginpartur af módelinu:

Þetta er það sem ég elska við applied mathematics :) verið að nota stærðfræði til að gera eitthvað skemmtilegt.

Xbox 360

Jun 02

Í desember árið 2006 var ég að velta því fyrir mér hvaða leikjatölvu ég ætti að kaupa. Ég tók þá ákvörðun að kaupa Xbox 360 í febrúar 2007 og hef ekki séð eftir því síðan þá. Núna voru Microsoft endanlega að sýna fram á að þessi ákvörðun var umþaðbil sú besta sem ég tók það árið…

Ég ætla líka að taka til baka það sem ég sagði þá að grafíkin væri ekki eins góð og í Playstation, ég vissi einfaldlega ekki betur, grafíkin er osum :)

May 19

Ég verð að peista þessu hingað inn, þetta er s.s. timelapse af himninum yfir nóttu og sýnir vel hvernig jörðin snýst hvar c.a. hún er staðsett í vetrarbrautinni. Ég mæli með að horft sé á vídeoið í fullscreen og HD.

Danskar auglýsingar

Mar 11

…eru svo góðar :) bara á allt öðrum skala en heima á klakanum verður að segjast

Enn ein önnin…

Feb 06

Jæja þá var fjórða önnin mín að byrja, þeir kúrsar sem ég er í eru:

  • Planetary Physics
  • Advanced data analysis and statistical modelling
  • Pilot study eitthvað fyrir lokaverkefnið, leiðindar skyldukúrs
  • Rendering framhald

Planetary physics kúrsinn er valkúrs sem ég valdi til að svala nördaþörfinni í mér :) einnig til þess að vera með einhverjar eðlisfræðieiningar. Svo geri ég ráð fyrir að klára í kringum næstu jól. Eftir það er ég ekki alveg viss um hvað tekur við en það eru vissulega margir möguleikar í boði. Þeir nemendur sem útskrifast úr M.Sc. eða Ph.d. námi hérna í Danmörku fá full laun frá danska ríkinu strax eftir útskrift í allt að tvö ár ef þeir fá ekki vinnu í tengslum við það sem þeir voru að læra. Ef ég færi í Phd nám í DTU þá myndi ég fá 25.000dkk á mánuði frá skólanum ásamt því að geta unnið sjálfur áfram í Nykredit. Ég verð því að segja að það er ekki mjög margt að ýta manni heim til Íslands strax eftir nám… ég tala nú ekki um ef við þurfum að horfa uppá einhverja vinstristjórn gera Ísland að systurþjóð Zimbabwe.

Jarðskjálfti í Danmörku !!

Dec 16

Við vorum rétt í þessu að vakna í miklu stressi við það að öll íbúðin nötraði og við með og t.d. handriðið úti á svölum ískraði eins og það væri að detta af. Það var engu líkara en við værum heima á Íslandi því að eftir því sem ég best veit þá eru jarðskjálftar hérna óalgengari en hvirfilbylir heima á Íslandi…

Annars er flug heim kl 13 á eftir og því lendum við á Íslandi kl 15:20, engin smá tilhlökkun enda vorum við síðast á Íslandi í Júní! Verst er að við Einir þurfum að vinna að 2 stórum verkefnum yfir jólafríið, snarvitlausir þessir kennarar hérna…

Edit: Jarðskjálftinn var 4.7 á richter og átti upptök sín 40 km austur of Malmo og 65 km austur af Köben:
US Geological Survey
Frétt á DR

Klukkaður af Valda

Nov 30

Jæja ég var eitthvað tregur þegar valdi blogg-klukkaði mig hérna um daginn og ákvað að klukka hann bara á móti á síðunni þeirra Stellu í stað þess að gera það sem maður á að víst að gera :) So here we go

1. Fjögur Fimm störf sem ég hef unnið um ævina:
a) Smiður hjá Pabba og Límtré hf.
b) Hellulagnir hjá Björn og Guðni ehf.
c) Kokkur á KFC
d) Vöruhús gagna, Hugbúnaðardeild, Glitnir
e) Product laboratoriet, Financial dpt., Nykredit

2. Fjórar íslenskar bíómyndir sem ég held upp á:
a) Sódóma Reykjavík
b) Englar Alheimsins
c) Kaldaljós
d) Mýrin

3. Fjórir Sex staðir sem ég hef búið á:
a) Hella, þegar ég var 5 ára
b) Hjallabraut 3, Hafnarfjörður
c) Stuðlaberg 64, Hafnarfjörður
d) Gauksás 41, Hafnarfjörður
e) Svanevej 17, 2400 København NV
d) Lyneborggade 21, 2300 København S

4. Fjórir staðir sem ég hef heimsótt í fríum:
a) Króatía og Bosnia Herzegovina
b) Tæland
c) USA (New York, Los Angeles, Las Vegas, Nevada/Arizona border(hoover dam), Miami, Orlando, Boca Raton…
d) Austurríki

5. Fjórir Sex sjónvarpsþættir sem mér líkar:
a) Californication
b) Heroes
c) Family Guy
d) Dagvaktin
e) Prisonbreak, jú þeir fóru aftur að verða góðir í seríu 3 og eru geðveikir núna
f) Stormchasers er ágætt, líklega vegna þess að mér finnst gaman af því hvað þeir eru mikið meiri lúðar en ég, sem er helvíti sjaldgæft

6. Fjórar síður sem ég skoða daglega:

a) digg.com
b) bos
c) mbl.is þótt ótrúlegt megi virðast, ég hata moggabloggin
d) torrentbytes.net

7. Fernt sem ég held upp á matarkyns:
a) Svínakótelettur í raspi að hætti pabba(ég leyfi honum að taka fullt kredit fyrir þetta, hann er svo stoltur af þessum sérrétti sínum og má vera það :) )
b) Durum med Kylling á Dívunni(Nörrebro) og F9 á La Sosta uppí DTU Campus!
c) Zinger borgari á KFC!!
d) Basically allt sem Hulda hefur mallað í eldhúsinu, helvíti lagin við þetta

8. Fjórar bækur sem ég hef oft lesið:
a) Ég
b) Les
c) Ekki
d) Bækur… hef engan tíma til þess, nema þá helst námsbækur

9. Fjórir staðir sem ég myndi helst vilja vera á núna:
a) Heima á Íslandi
b) Uppí bústað á heiðskýru kvöldi þegar allt er á kafi í snjó
c) Austurríki á skíðum
d) Kaliforníu, að háma í mig morgunmat á iHop við ströndina

10. Fjórir bloggarar sem ég klukka:
a) Valdi (til baka)
b) Mömmu og pabba á ferðablogginu
c) Kidmasta K
d) Valda bara aftur

IPod Touch og VISA gengi

Oct 07

Ég verð hreinlega að dásama iPod touch. Ég á einn slíkann, 16GB útgáfuna, ég átti erfitt val fyrir höndum þegar ég þurfti að velja á milli iPod touch(16GB) og iPod video(160GB), mér fannst 16GB vera eitthvað svo lítið en touch tæknin alveg heillaði mig. Í dag er iPodinn minn orðin meiri lífsnauðsyn en námslán að heiman, svona án gríns. Ég nota iPodinn minn m.a. í eftirfarandi:

  • Skoða hitastigið úti áður en ég fer út á morgnanna(í gegnum netið) og skoða veðurspánna
  • Vafra á netinu í strætó (wifi)
  • Fletta upp gítargripum í skyndi þegar ég er að æfa mig á gítar (eitthvað guitar chord app)
  • Spila sudoku, bubble shooter, ofl. í strætó þegar mér leiðist
  • Sem hallamál þegar ég var að festa upp skápa
  • Skoða tölvupóstinn minn(gmail app) og google reader sem sækir allar nýjustu fréttir af þeim fréttasíðum sem ég skoða
  • Bloomberg (app)
  • Geyma allar mínar myndir á einum stað
  • Hlusta á tónlist(duh)
  • Stýra tónlistinni í græjunum þráðlaust í gegnum ipodinn minn
  • Sem sjónvarpsfjarstýringu og til að stjórna ipod mini’inum mínum þegar ég horfi á bíómyndir og þætti (Front row)
  • Sem “Air mouse” þannig að ég geti stjórnað músarbendlinum á sjónvarpstölvunni minni með því að halla honum á marga vegu
  • Til að fletta upp löglegum orðum í Scrabble svo Hulda hætti að svindla :D (CheckWord app)
  • Til að fletta upp í wikipedia (app)
  • Til að tengja mig inn á vefþjóninn heima og þennan sem þessi vefur er hýstur á (SSH)
  • Til að endurræsa lappann minn þegar hann frýs (SSH)
  • Til að kaupa tónlist ef mann vantar nauðsynlega “þetta lag” í gleðskapi
  • Horfa á video, bíómyndir, youtube ofl.

þetta er ekki einusinni tæmandi listi…

Svo ætlaði ég að tilkynna það opinberlega að við erum hætt að nota íslensku VISA kortin okkar hérna úti, það er útí hött, í dag er VISA gengið á DKK 30,42!!. Gengið á vef seðlabankans er hinsvegar 18,25 DKK. VISA gengið er því 60% yfir því sem það á að vera og má því segja að þessi 1-3% fráviksmörk sem þeir nefna á síðu sinni séu algjörlega úr lausu lofti gripin.

Allt farið til fjandans

Oct 06

Maður sleppir því að blogga í 2 mánuði og allt fer til fjandans, meira ruglið. Ég nenni ekki að blogga um allt sem við höfum verið að stússast undanfarna mánuði en í stuttu máli sagt: Það er dýrt að vera túristi í Króatíu, Bosnía Herzegovina… been there done that, Hulda takk fyrir rafmagnsgítar :) Atli frændi og Sigrún takk æðislega fyrir 2 frábær pit stop á okkar 3600km road trippi suður til Sviss og Ítalíu og til Danmerkur aftur. Gunniogfrú og Krissi takk fyrir snillldartíma í Lugano, much appreciated, Meghan Andresson takk fyrir fáránlega góðan American dinner, Nykredit takk fyrir lappa og laun í dönskum krónum, Íslenska krónan rest in peace.

Ég ætla að tileinka restinni af blogginu í fræðsluefni um kreppuna miklu sem æðir nú yfir heiminn, þó flestir séu væntanlega orðnir lang þreyttir á þessu og vilja bara hugsa happy thoughts og gleyma allri þessari vitleysu.

Hvað átti stóran hlut í því að margir af stærstu bönkum heims hafa orðið gjaldþrota nánast fyrirvaralaust og kom þessari heimskreppu af stað? Of vægar eftirlitsreglur bandaríska fjármálaeftirlitsins þar sem m.a. Subprime lending gat viðgengist án þess að nokkuð væri við haft. Þeir sem ekki hafa heyrt um þetta en vilja ólmir skilja um hvað málið snýst, flettið í gegnum þetta slideshow. Það lítur fyrst út fyrir að vera eitthvað drasl en þetta er mergur málsins og einföld en góð útskýring á annars nokkuð flóknum hlut.

Annað sem á stóran hlut að máli eru afleiðuviðskipti. Það er talað um að allt að 60% af olíuverðinu í dag eru pure speculation, það áttar sig á því hver heilvita maður að þegar hópur af blökkumönnum í Simbabwe gera gat á olíuleiðslu til kynda kofann sinn þá hefur það ekki slík og bein áhrif á heimsframleiðslu og byrgðir að daginn eftir eru olíufélög á Íslandi búin að hækka verðið hjá sér um 3 krónur. Olíuverð er bara eitt dæmi, það er annars ekkert að afleiðuviðskiptum sem slíkum, fínustu verkfæri en með lélegu eftirliti og vægum reglum er eftirfarandi raunveruleiki sem við þurfum að horfast í augu við:

$1 Quadrillion is the amount held globally in derivatives, which are values of other underlying financial instruments; making small amounts of assets worth many times more on paper for investment banks. The combined value of all the assets on earth are estimated to be $100 trillion.

Til gamans má geta að Quadrillion er 1.000.000.000.000.000$, eða 1015. Til samanburðar er þjóðarframleiðsla(GDP) alls heimsins um 54.347.038.000.000$(5.4% af 1015) og Íslands 19.500.000.000$(0.035% af heimsframleiðslu). Ég er viljandi að sleppa því að breyta þessu yfir í ISK því að ég nenni ekki að uppfæra bloggið alla vikuna.

Og í beinu framhaldi af því… af hverju haldið þið að DOW Jones vísitalan hafi hrapað í dag þrátt fyrir að þessi stærðarinnar björgunarpakki Bandaríkjastjórnar hafi verið samþykktur. Einfaldlega vegna þess að þessir 700.000.000.000$ blikna í samanburði við það sem í raun þarf til að bjarga þessu og þeir vita það. Ekki að þessi björgunarpakki hafi bein áhrif á hlutabréfaverð en ef menn hefðu einhverja trú á þessu þá ætti það að hafa einhver jákvæð áhrif á það.

Í lokin vil ég benda á heimildamynd sem var að koma út núna í vikunni sem ber nafnið Zeitgeist Addendum og er framhald heimildamyndarinnar Zeitgeist. Báðar myndirnar eru um 10 mínútur að byrja en eftir það verða þær báðar nokkuð áhugaverðar. Edit: Þær eru töluvert fullar af samsæriskenningum en þrátt fyrir það með nokkra athyglisverða punkta. Eftir ábendingar frá Haffa ákvað ég að klára að horfa á Zeitgeist Addendum áður en ég get farið að lofsama hana :)

Pís!

Edit: Subprime bonds væru á íslenskunni undirmálsfasteignaveðlán en björgunaraðgerð bandaríkjaþings snýst m.a. um að kaupa þessi skuldabréf af bandarískum fjármálastofnunum, sjá frétt á mbl.is

Edit 2:Stórþakkir til Garðars og Pálmars brósa ásamt mömmu og pabba fyrir að koma hingað í heimsókn og hjálpa mikið til við flutninga og IKEA samsetningar :)

Verkefnavinna

May 27

Ég er búinn að vera á kafi í verkefnavinnu en þetta er allt að klárast fljótlega. Ég verð að kynna verkefnið mitt, sem ber heitið Three dimensional music library browser, á svokölluðum Vision day á föstudaginn eins og áður hefur komið fram, áhugasamir geta skoðað plagatið mitt á netinu.