Search

Rss Posts

Rss Comments

Login

 

Allt farið til fjandans

Oct 06

Maður sleppir því að blogga í 2 mánuði og allt fer til fjandans, meira ruglið. Ég nenni ekki að blogga um allt sem við höfum verið að stússast undanfarna mánuði en í stuttu máli sagt: Það er dýrt að vera túristi í Króatíu, Bosnía Herzegovina… been there done that, Hulda takk fyrir rafmagnsgítar :) Atli frændi og Sigrún takk æðislega fyrir 2 frábær pit stop á okkar 3600km road trippi suður til Sviss og Ítalíu og til Danmerkur aftur. Gunniogfrú og Krissi takk fyrir snillldartíma í Lugano, much appreciated, Meghan Andresson takk fyrir fáránlega góðan American dinner, Nykredit takk fyrir lappa og laun í dönskum krónum, Íslenska krónan rest in peace.

Ég ætla að tileinka restinni af blogginu í fræðsluefni um kreppuna miklu sem æðir nú yfir heiminn, þó flestir séu væntanlega orðnir lang þreyttir á þessu og vilja bara hugsa happy thoughts og gleyma allri þessari vitleysu.

Hvað átti stóran hlut í því að margir af stærstu bönkum heims hafa orðið gjaldþrota nánast fyrirvaralaust og kom þessari heimskreppu af stað? Of vægar eftirlitsreglur bandaríska fjármálaeftirlitsins þar sem m.a. Subprime lending gat viðgengist án þess að nokkuð væri við haft. Þeir sem ekki hafa heyrt um þetta en vilja ólmir skilja um hvað málið snýst, flettið í gegnum þetta slideshow. Það lítur fyrst út fyrir að vera eitthvað drasl en þetta er mergur málsins og einföld en góð útskýring á annars nokkuð flóknum hlut.

Annað sem á stóran hlut að máli eru afleiðuviðskipti. Það er talað um að allt að 60% af olíuverðinu í dag eru pure speculation, það áttar sig á því hver heilvita maður að þegar hópur af blökkumönnum í Simbabwe gera gat á olíuleiðslu til kynda kofann sinn þá hefur það ekki slík og bein áhrif á heimsframleiðslu og byrgðir að daginn eftir eru olíufélög á Íslandi búin að hækka verðið hjá sér um 3 krónur. Olíuverð er bara eitt dæmi, það er annars ekkert að afleiðuviðskiptum sem slíkum, fínustu verkfæri en með lélegu eftirliti og vægum reglum er eftirfarandi raunveruleiki sem við þurfum að horfast í augu við:

$1 Quadrillion is the amount held globally in derivatives, which are values of other underlying financial instruments; making small amounts of assets worth many times more on paper for investment banks. The combined value of all the assets on earth are estimated to be $100 trillion.

Til gamans má geta að Quadrillion er 1.000.000.000.000.000$, eða 1015. Til samanburðar er þjóðarframleiðsla(GDP) alls heimsins um 54.347.038.000.000$(5.4% af 1015) og Íslands 19.500.000.000$(0.035% af heimsframleiðslu). Ég er viljandi að sleppa því að breyta þessu yfir í ISK því að ég nenni ekki að uppfæra bloggið alla vikuna.

Og í beinu framhaldi af því… af hverju haldið þið að DOW Jones vísitalan hafi hrapað í dag þrátt fyrir að þessi stærðarinnar björgunarpakki Bandaríkjastjórnar hafi verið samþykktur. Einfaldlega vegna þess að þessir 700.000.000.000$ blikna í samanburði við það sem í raun þarf til að bjarga þessu og þeir vita það. Ekki að þessi björgunarpakki hafi bein áhrif á hlutabréfaverð en ef menn hefðu einhverja trú á þessu þá ætti það að hafa einhver jákvæð áhrif á það.

Í lokin vil ég benda á heimildamynd sem var að koma út núna í vikunni sem ber nafnið Zeitgeist Addendum og er framhald heimildamyndarinnar Zeitgeist. Báðar myndirnar eru um 10 mínútur að byrja en eftir það verða þær báðar nokkuð áhugaverðar. Edit: Þær eru töluvert fullar af samsæriskenningum en þrátt fyrir það með nokkra athyglisverða punkta. Eftir ábendingar frá Haffa ákvað ég að klára að horfa á Zeitgeist Addendum áður en ég get farið að lofsama hana :)

Pís!

Edit: Subprime bonds væru á íslenskunni undirmálsfasteignaveðlán en björgunaraðgerð bandaríkjaþings snýst m.a. um að kaupa þessi skuldabréf af bandarískum fjármálastofnunum, sjá frétt á mbl.is

Edit 2:Stórþakkir til Garðars og Pálmars brósa ásamt mömmu og pabba fyrir að koma hingað í heimsókn og hjálpa mikið til við flutninga og IKEA samsetningar :)

1 Comment

Add your comment

  1. sævar
    Oct 07 at 12:01

    Ég vil meina að þetta sé allt saman usa mönnum að kenna og subprime lánum þeirra. Maður verður að hafa einhvern sökudólg í svona ástandi og ég vel Neokapitalistana á Wall street sem bjuggu til þessa skemmtilegu skuldabréfavafninga sem innihéldu subprime lánin og voru rate-uð með AAA frá ft. eins og Fitch og Standard&Poors (sem ætti kannski bara að heita Poors í dag).
    Ég bjó til þetta orð Neokapitalisti því það á að lýsa mönnum sem aðhafast ekki eðlilega viðskiptahætti heldur stjórnast eingöngu af hömlulausri græðgi og eyðslu í stórheimskulega hluti (sbr kannski jón ásgeir, björgólf jr, hannes smára ofl. hérlendis).
    Allavega þá reddast þetta allt að lokum og maður getur þá sagt sögur af þessu þegar maður verður eldri.

Post a comment