IPod Touch og VISA gengi
Oct 07
Ég verð hreinlega að dásama iPod touch. Ég á einn slíkann, 16GB útgáfuna, ég átti erfitt val fyrir höndum þegar ég þurfti að velja á milli iPod touch(16GB) og iPod video(160GB), mér fannst 16GB vera eitthvað svo lítið en touch tæknin alveg heillaði mig. Í dag er iPodinn minn orðin meiri lífsnauðsyn en námslán að heiman, svona án gríns. Ég nota iPodinn minn m.a. í eftirfarandi:
- Skoða hitastigið úti áður en ég fer út á morgnanna(í gegnum netið) og skoða veðurspánna
- Vafra á netinu í strætó (wifi)
- Fletta upp gítargripum í skyndi þegar ég er að æfa mig á gítar (eitthvað guitar chord app)
- Spila sudoku, bubble shooter, ofl. í strætó þegar mér leiðist
- Sem hallamál þegar ég var að festa upp skápa
- Skoða tölvupóstinn minn(gmail app) og google reader sem sækir allar nýjustu fréttir af þeim fréttasíðum sem ég skoða
- Bloomberg (app)
- Geyma allar mínar myndir á einum stað
- Hlusta á tónlist(duh)
- Stýra tónlistinni í græjunum þráðlaust í gegnum ipodinn minn
- Sem sjónvarpsfjarstýringu og til að stjórna ipod mini’inum mínum þegar ég horfi á bíómyndir og þætti (Front row)
- Sem “Air mouse” þannig að ég geti stjórnað músarbendlinum á sjónvarpstölvunni minni með því að halla honum á marga vegu
- Til að fletta upp löglegum orðum í Scrabble svo Hulda hætti að svindla
(CheckWord app) - Til að fletta upp í wikipedia (app)
- Til að tengja mig inn á vefþjóninn heima og þennan sem þessi vefur er hýstur á (SSH)
- Til að endurræsa lappann minn þegar hann frýs (SSH)
- Til að kaupa tónlist ef mann vantar nauðsynlega “þetta lag” í gleðskapi
- Horfa á video, bíómyndir, youtube ofl.
þetta er ekki einusinni tæmandi listi…
Svo ætlaði ég að tilkynna það opinberlega að við erum hætt að nota íslensku VISA kortin okkar hérna úti, það er útí hött, í dag er VISA gengið á DKK 30,42!!. Gengið á vef seðlabankans er hinsvegar 18,25 DKK. VISA gengið er því 60% yfir því sem það á að vera og má því segja að þessi 1-3% fráviksmörk sem þeir nefna á síðu sinni séu algjörlega úr lausu lofti gripin.
Oct 07 at 14:48
wtf tvær færslur á einum degi, maður hefur ekki undan að kommenta!
Oct 07 at 15:50
Ég að svindla… þú ert bara tapsárasti maður í heimi:) punktur og pasta:)
Oct 07 at 22:04
Það var mikið að það heyrist eitthvað frá þér aftur!
Oct 09 at 09:34
Ég sá alveg þegar þið voru að spila scrabbl hjá okkur að Eddi svindlaði við hvert tækifæri, ætti að skammast sín
Oct 09 at 11:19
það er nottulega ekkert hægt að spila neitt við Edda hann svindlar alltaf svo mikið og svo verður hann alveg brjál þegar hann tapar….
Oct 09 at 14:37
sko Eðvald minn… það ert þú en ekki ég;)
Oct 10 at 17:50
Ekki hlusta á þetta væl frændi. Við svindlum aldrei við einfaldlega vitum ekki hvað það er að tapa;)
Oct 12 at 17:05
Nákvæmlega, þvílíkur rógburður!
Oct 29 at 17:34
klukk!
Nov 27 at 22:59
Dude? KLUUUUUKKK! Christ!?!