Endasprettur!
Jun 11
Nú er heilinn í mér um það bil að nálgast þolmörk verkefnaálags. Ég get auðvitað sjálfum mér um kennt þar sem ég er mikið fyrir að fresta hlutunum fram á síðustu stundu þar sem ég vinn lang best undir álagi. Ég er búinn í öllum kúrsum nema einum og skil í honum eru á miðnætti á morgun, föstudag (24 Hours and counting). Eini gallinn við að vinna undir álagi á síðustu stundum er hvað er erfitt að lesa þungar greinar sem þarf að einbeita sér mikið við til að skilja.
Þetta er samt allt að koma, ég er s.s. að lesa grein sem heitir A Survey on Participating Media Rendering Techniques. Hún fjallar um leiðir til að herma hegðun ljóseinda í efni, og er ágætis inngangur inní það sem mastersverkefnið mitt er um, sem ég byrja á í sumar. Ég þarf svo að nota ákveðnar jöfnur og aðferðir þarna í hermun þar sem útkoman ætti að vera raunverulega útlítandi vökvi eftir gefnum breytum.
T.d. ef ég gef módelinu efnissamsetningu mjólkur ásamt brotstuðli hverrar sameindar, ætti aðferðin að geta teiknað raunverulega útlítandi mynd upp í þrívídd. Dæmi (ath. þetta er ekki ljósmynd heldur “rendered” útkoma úr slíku módeli):

þar sem eftirfarandi jafna, sem lýsir lýsingu efnisins, er meginpartur af módelinu:
Þetta er það sem ég elska við applied mathematics
verið að nota stærðfræði til að gera eitthvað skemmtilegt.
Jun 12 at 20:54
Þetta er nú álíka erfitt hjá mér í rútuprófinu:-). Læra umferðarreglurnar upp á nýtt, læra að taka tillit til allra annarra í umferðinni, loftbremsur, retarderar, o.s.frv. ..