Leikjavéla-dilemma
Dec 27
Árið 2007 er officially árið sem ekki er lengur lúðalegt að spila tölvuleiki. Það spila næstum allir tölvuleiki, reyndar 99% drengja, hlutfallið er mun lægra hjá stelpum reyndar. Af hverju ætli það sé?? Comments vel þegin.
Anywho, nú langar mann í svona leikjavél og um 3 slíkar vélar er að ræða þegar kemur að vali á þeim: Playstation 3, Nintendo Wii og XBox 360. Nú veit ég bara ekki hvað maður á að fá sér þannig að hér koma kostir og gallar sem ég hef velt fyrir mér:
Pros: Klárlega langflottasta og raunverulegasta grafíkin af öllum. Að eiga PSP er stór plús, ÉG Á PSP
Cons: Henni hefur seinkað ítrekað og þær sem hafa komið út hafa fengið slæma dóma um stöðugleika. Sjá þessa fáránlega fyndnu frétt um skýringar Sony starfsmanna á þessum óstöðugleika. Svo er hún líka 2x dýrari en Nintendo Wii
Pros: Ekkert smá sniðugir stýripinnar, ég var að prófa þetta hérna í vinnunni (Já við erum með Nintendo Wii tengda við 52″ plasmasjónvarp hérna!!) og þetta er svoo gaman! Ég prófaði Tennisleik þar sem maður sveiflar höndunum til eins og maður sé með alvuru tennisspaða og vélin nemur hreyfingarnar. Stór plús þarna og ég held að þessi vél sé hentugust fyrir stelpurnar, fær topp einkunn í skemmtanagildi fyrir “túpleijer”. Hún er líka ódýrust og… Ú og já… hún spilar alla gömlu nintendo leikina, Super Mario Bros here i come …
Cons: Langt frá því að vera eins góð grafík og í hinum… langt frá því.
Pros: Góð vél, stabíl og ódýrari en PS3
Cons: Ekki eins flott grafík og í PS3, samt góð. Microsoft vara og mér er einhvernveginn illa við microsoft.
Dec 28 at 09:45
Þetta á ekki að vera nein spurning. Maður kaupir sér leikjavél til að skemmta sér og two-player leikir veita mesta skemmtum. Wii er klárlega besti kosturinn til að skemmta sér með vinum yfir nokkrum köldum.
Dec 28 at 10:35
Hvernig getur þér verið illa við Microsucks? Notarðu ekki vörur frá þeim daginn út og inn, alla daga ársins??
Dec 28 at 11:23
Jú það er kannski ástæðan fyrir því að mér er illa við þá
Dec 29 at 00:15
Ég keypti mér PS1 og ætla að láta þar við sitja, hef ekki geymslupláss fyrir dýrt drasl.
Ég sá Xbox 360 um daginn. Hélt að einhver hefði ýtt á nitro takkann á loftræstingunni þegar hún fór í gang, hvílík ryksuguhljóð.
Feb 06 at 16:44
[…] Jæja, þetta er 4. dagurinn í röð þar sem er alskýjað, það þýðir bara eitt… GOLF. Við skutluðum Vibbsí uppá lestarstöð, Ég og Helgi fórum í golf og stelpurnar í “Mollið”. Við tókum 18 holur með einhverjum golfsnillingum sem töluðu um gras næstum allan tímann. Þeir actually spáðu m.a. í: hvaða átt grasið á flötunum óx(skal kenna ykkur þetta strákar ), tegundir af grasi og allskonar svona pro shit sem ég vissi ekki einusinni að væri pælt í á annað borð :S. Við vorum helvíti ryðgaðir þarna en þetta kom smátt og smátt og á síðustu holunum gekk þetta bara vel, náði 3 pörum í röð og alles, ágætt til að bæta upp double, triple og quadruple bogie. Við fórum í smá shopping um kvöldið og ég m.a. lét vaða á XBOX 360 vélina eftir miklar spekúleringar. Ég keypti líka 4 stýripinna fyrir svona partymode á henni og eftir prufukeyrslu hérna um kvöldið þá verð ég að segja að ég sé ekki eftir krónu, auk þess var hún um 70% ódýrari en heima. […]
Jun 14 at 15:23
[…] desember árið 2006 var ég að velta því fyrir mér hvaða leikjatölvu ég ætti að kaupa. Ég tók þá ákvörðun að kaupa Xbox 360 í febrúar […]