Search

Rss Posts

Rss Comments

Login

 

Posts in ‘Daglegt líf’

Enn ein önnin…

Feb 06

Jæja þá var fjórða önnin mín að byrja, þeir kúrsar sem ég er í eru:

  • Planetary Physics
  • Advanced data analysis and statistical modelling
  • Pilot study eitthvað fyrir lokaverkefnið, leiðindar skyldukúrs
  • Rendering framhald

Planetary physics kúrsinn er valkúrs sem ég valdi til að svala nördaþörfinni í mér :) einnig til þess að vera með einhverjar eðlisfræðieiningar. Svo geri ég ráð fyrir að klára í kringum næstu jól. Eftir það er ég ekki alveg viss um hvað tekur við en það eru vissulega margir möguleikar í boði. Þeir nemendur sem útskrifast úr M.Sc. eða Ph.d. námi hérna í Danmörku fá full laun frá danska ríkinu strax eftir útskrift í allt að tvö ár ef þeir fá ekki vinnu í tengslum við það sem þeir voru að læra. Ef ég færi í Phd nám í DTU þá myndi ég fá 25.000dkk á mánuði frá skólanum ásamt því að geta unnið sjálfur áfram í Nykredit. Ég verð því að segja að það er ekki mjög margt að ýta manni heim til Íslands strax eftir nám… ég tala nú ekki um ef við þurfum að horfa uppá einhverja vinstristjórn gera Ísland að systurþjóð Zimbabwe.

IPod Touch og VISA gengi

Oct 07

Ég verð hreinlega að dásama iPod touch. Ég á einn slíkann, 16GB útgáfuna, ég átti erfitt val fyrir höndum þegar ég þurfti að velja á milli iPod touch(16GB) og iPod video(160GB), mér fannst 16GB vera eitthvað svo lítið en touch tæknin alveg heillaði mig. Í dag er iPodinn minn orðin meiri lífsnauðsyn en námslán að heiman, svona án gríns. Ég nota iPodinn minn m.a. í eftirfarandi:

  • Skoða hitastigið úti áður en ég fer út á morgnanna(í gegnum netið) og skoða veðurspánna
  • Vafra á netinu í strætó (wifi)
  • Fletta upp gítargripum í skyndi þegar ég er að æfa mig á gítar (eitthvað guitar chord app)
  • Spila sudoku, bubble shooter, ofl. í strætó þegar mér leiðist
  • Sem hallamál þegar ég var að festa upp skápa
  • Skoða tölvupóstinn minn(gmail app) og google reader sem sækir allar nýjustu fréttir af þeim fréttasíðum sem ég skoða
  • Bloomberg (app)
  • Geyma allar mínar myndir á einum stað
  • Hlusta á tónlist(duh)
  • Stýra tónlistinni í græjunum þráðlaust í gegnum ipodinn minn
  • Sem sjónvarpsfjarstýringu og til að stjórna ipod mini’inum mínum þegar ég horfi á bíómyndir og þætti (Front row)
  • Sem “Air mouse” þannig að ég geti stjórnað músarbendlinum á sjónvarpstölvunni minni með því að halla honum á marga vegu
  • Til að fletta upp löglegum orðum í Scrabble svo Hulda hætti að svindla :D (CheckWord app)
  • Til að fletta upp í wikipedia (app)
  • Til að tengja mig inn á vefþjóninn heima og þennan sem þessi vefur er hýstur á (SSH)
  • Til að endurræsa lappann minn þegar hann frýs (SSH)
  • Til að kaupa tónlist ef mann vantar nauðsynlega “þetta lag” í gleðskapi
  • Horfa á video, bíómyndir, youtube ofl.

þetta er ekki einusinni tæmandi listi…

Svo ætlaði ég að tilkynna það opinberlega að við erum hætt að nota íslensku VISA kortin okkar hérna úti, það er útí hött, í dag er VISA gengið á DKK 30,42!!. Gengið á vef seðlabankans er hinsvegar 18,25 DKK. VISA gengið er því 60% yfir því sem það á að vera og má því segja að þessi 1-3% fráviksmörk sem þeir nefna á síðu sinni séu algjörlega úr lausu lofti gripin.

Allt farið til fjandans

Oct 06

Maður sleppir því að blogga í 2 mánuði og allt fer til fjandans, meira ruglið. Ég nenni ekki að blogga um allt sem við höfum verið að stússast undanfarna mánuði en í stuttu máli sagt: Það er dýrt að vera túristi í Króatíu, Bosnía Herzegovina… been there done that, Hulda takk fyrir rafmagnsgítar :) Atli frændi og Sigrún takk æðislega fyrir 2 frábær pit stop á okkar 3600km road trippi suður til Sviss og Ítalíu og til Danmerkur aftur. Gunniogfrú og Krissi takk fyrir snillldartíma í Lugano, much appreciated, Meghan Andresson takk fyrir fáránlega góðan American dinner, Nykredit takk fyrir lappa og laun í dönskum krónum, Íslenska krónan rest in peace.

Ég ætla að tileinka restinni af blogginu í fræðsluefni um kreppuna miklu sem æðir nú yfir heiminn, þó flestir séu væntanlega orðnir lang þreyttir á þessu og vilja bara hugsa happy thoughts og gleyma allri þessari vitleysu.

Hvað átti stóran hlut í því að margir af stærstu bönkum heims hafa orðið gjaldþrota nánast fyrirvaralaust og kom þessari heimskreppu af stað? Of vægar eftirlitsreglur bandaríska fjármálaeftirlitsins þar sem m.a. Subprime lending gat viðgengist án þess að nokkuð væri við haft. Þeir sem ekki hafa heyrt um þetta en vilja ólmir skilja um hvað málið snýst, flettið í gegnum þetta slideshow. Það lítur fyrst út fyrir að vera eitthvað drasl en þetta er mergur málsins og einföld en góð útskýring á annars nokkuð flóknum hlut.

Annað sem á stóran hlut að máli eru afleiðuviðskipti. Það er talað um að allt að 60% af olíuverðinu í dag eru pure speculation, það áttar sig á því hver heilvita maður að þegar hópur af blökkumönnum í Simbabwe gera gat á olíuleiðslu til kynda kofann sinn þá hefur það ekki slík og bein áhrif á heimsframleiðslu og byrgðir að daginn eftir eru olíufélög á Íslandi búin að hækka verðið hjá sér um 3 krónur. Olíuverð er bara eitt dæmi, það er annars ekkert að afleiðuviðskiptum sem slíkum, fínustu verkfæri en með lélegu eftirliti og vægum reglum er eftirfarandi raunveruleiki sem við þurfum að horfast í augu við:

$1 Quadrillion is the amount held globally in derivatives, which are values of other underlying financial instruments; making small amounts of assets worth many times more on paper for investment banks. The combined value of all the assets on earth are estimated to be $100 trillion.

Til gamans má geta að Quadrillion er 1.000.000.000.000.000$, eða 1015. Til samanburðar er þjóðarframleiðsla(GDP) alls heimsins um 54.347.038.000.000$(5.4% af 1015) og Íslands 19.500.000.000$(0.035% af heimsframleiðslu). Ég er viljandi að sleppa því að breyta þessu yfir í ISK því að ég nenni ekki að uppfæra bloggið alla vikuna.

Og í beinu framhaldi af því… af hverju haldið þið að DOW Jones vísitalan hafi hrapað í dag þrátt fyrir að þessi stærðarinnar björgunarpakki Bandaríkjastjórnar hafi verið samþykktur. Einfaldlega vegna þess að þessir 700.000.000.000$ blikna í samanburði við það sem í raun þarf til að bjarga þessu og þeir vita það. Ekki að þessi björgunarpakki hafi bein áhrif á hlutabréfaverð en ef menn hefðu einhverja trú á þessu þá ætti það að hafa einhver jákvæð áhrif á það.

Í lokin vil ég benda á heimildamynd sem var að koma út núna í vikunni sem ber nafnið Zeitgeist Addendum og er framhald heimildamyndarinnar Zeitgeist. Báðar myndirnar eru um 10 mínútur að byrja en eftir það verða þær báðar nokkuð áhugaverðar. Edit: Þær eru töluvert fullar af samsæriskenningum en þrátt fyrir það með nokkra athyglisverða punkta. Eftir ábendingar frá Haffa ákvað ég að klára að horfa á Zeitgeist Addendum áður en ég get farið að lofsama hana :)

Pís!

Edit: Subprime bonds væru á íslenskunni undirmálsfasteignaveðlán en björgunaraðgerð bandaríkjaþings snýst m.a. um að kaupa þessi skuldabréf af bandarískum fjármálastofnunum, sjá frétt á mbl.is

Edit 2:Stórþakkir til Garðars og Pálmars brósa ásamt mömmu og pabba fyrir að koma hingað í heimsókn og hjálpa mikið til við flutninga og IKEA samsetningar :)

Real-time graphics

May 20

Nú er ég á endasprettinum með lokaverkefnið í real-time graphics for virtual reality kúrsinum… ég útskýri seinna um hvað það snýst en ég er búinn að vera að missa mig í sólpöllum. M.ö.o. flottum aukahlutum sem hafa lítið að gera með einkunnagjöf nema grunnvirknin sé 100% til staðar :) . Hér er lítið vídjó af afrakstrinum:

Betri gæði hér

Ath, þetta er ekki gert í einhverju hreyfimyndaforriti heldur er tölvan að teikna þetta á rauntíma og skjákortið sér um stærsta hlutann af útreikningunum.

Endaspretturinn

May 07

Það er búið að vera brjálað að gera að undanförnu í skólanum og nú stefnir í 24/7 vinnu næstu 3 vikurnar. Ég er svona við það að bugast undan verkefnaálagi en þetta hefst, ég get ekki beðið eftir að klára þessa önn og byrja svo í (vonandi auðveldum) júníkúrs,Stochastic Simulation. Ekki nóg með að ég sé búinn að vera á fullu í allan vetur að vinna verkefni heldur þarf ég svo að kynna verkefnið mitt í einum kúrsinum á einhverri ráðstefnu (Vision day) með fyrirlestri, plaggati og einhverju rugli! Stundum held ég að kennararnir telji að nemendur hafi afkastagetu á við heilan vinnustað. Ég get reyndar svolítið sjálfum mér um kennt, þetta er 10 ECTS kúrs þar sem mælt er með að 3 séu saman í hóp en ég hef svo litla trú á þessu liði sem er með mér í kúrsinum að ég ákvað að bíta bara á jaxlinn og vera einn.

Annars fann ég þessa mynd á því stutta nethangsi sem ég tók í dag, mynd af sólmyrkva á suðurpólnum, helvíti kúl

Veðrið!

Apr 29

Vá ég var nöldrandi yfir því í allan vetur hvað veðrið í Danaveldi væri svipað leiðindar skítviðrinu sem er heima á veturna alltaf. Núna í apríl tóku veðurguðirnir hérna kipp og hér hefur verið 15-22°C hiti í næstum 2 vikur. Núna er 18 stiga hiti í skugga…

reykjavik_copenhagen_29.04.2008

í morgun fór ég í skólann í stuttermabol og stuttbuxum á hjólinu. Svo fórum við strákarnir í 14 manna útibolta eins og venjan er 2-3x í viku í blíðunni. Eftir þetta var drukkinn einn öl eða svo og lærdómi sinnt. Ég var að koma heim sveittur eins og selur og sit úti á svölum og læt renna af mér (svita). Svo á ég flug heim í kvöld kl 21:30 með iceland express og verð á Íslandinu í 6 daga. Ég stefni á að láta dekra við mig MIKIÐ :), sinna cónan, læra eins og brjálæðingur og mæta hress á árshátíð BOS! Veitir ekki af, ég get talið tjútt ársins á annarri hendi!

Status update!

Apr 02

Jæja, mánuður liðinn frá síðasta bloggi. Það hefur verið mikið að gera undanfarnar vikur, aðallega í skólanum en líka í vinnunni. Páskafríið allt fór í lærdóm þar sem kennararnir hérna virðast halda að páskafríið eigi að nýta í verkefnavinnu. Sem betur fer var ég heima á Íslandi í góðu yfirlæti, sem minnir mig á það… ætlunin var að fara með Krissa og Hödda í road trip um Ítalíu yfir páskana en ég þurfti að beila á því þar sem einn kennarinn setti deadline á HUGES skilaverkefni daginn eftir páskafrí. Ég ákvað því bara að fara heim í staðinn og vinna verkefnið þar, þetta var um mánuði fyrir páskafrí en ég sagði Huldu ekkert frá þessu. Daginn sem ég flaug heim um kvöldið bað ég Huldu um að vera á skype í kringum kl 23 því ég væri uppí skóla í verkefnavinnu og ætlaði að reyna að komast á skype í smá stund. Þegar heim var komið fékk ég far hjá Eini og Birki beint heim til Huldu, tengdist þráðlausa netinu hennar fyrir utan dyrnar og fór á skype þar. Ég þóttist vera á uppí skóla og var með webcam, við fórum að tala um að ég væri að fara til Ítalíu morguninn eftir og kæmi ekki heim fyrr en eftir 3 vikur og að Hulda greyjið þyrfti að eyða páskunum ein og fara makalaus á árshátíð hjá Kaupþingi ofl. :) Eftir svona 10 mínútna spjall snéri ég svo myndavélinni að útidyrahurðinni hjá henni og spurði hana hvort hún kannaðist eitthvað við númerið. Þakkir fá þeir sem vissu plottið og náðu að halda þessu fyrir sig allan þennan tíma.
Eftir þetta tók alvara lífsins við…. endalaus lærdómur, það mikill að ég fór ekki einusinni á skíði!

Lærdómurinn er ennþá á fullu, hellingur að gera, aðallega í virtual reality kúrsinum en robotics kúrsinn tekur sinn toll stundum, og talandi um robotics þá finnst mér þróun á vélmennum farin að nálgast einhver atriði úr Sci-Fi bíómynd:

Ég held að fáir geri sér grein fyrir þeirri þróunarvinnu sem hefur farið í svona tæki… svo gerðu einhverjir gæjar grín að þessu með vídjói sem hægt er að horfa á hér, a must-see verð ég að segja, ég öskraði úr hlátri mestallan tímann :)

Ég fékk svo minn fyrsta launaseðil um daginn, reyndar bara fyrir nokkra daga, og get ekki sagt að ég sé neitt himinlifandi yfir þessum 60% skatti sem er hérna! Bara rugl… ég þarf svo að gera mér ferð til skattstjóra og fá námsmannastatus á mig svo ég fái skattaafslátt og eitthvað. Ekki veitir af þar sem bara yfir páskana má segja að kostnaður hérna fyrir Íslendinga hafi hækkað um 30% vegna gengishruns krónunnar. Á móti kemur að svo má segja að ég hafi líka hækkað í launum um 30%, þannig að ég kvarta svosem ekki. GLBFX sjóðurinn hjá Glitni er líka að standa sig mjög vel þannig að þetta vesen á krónunni er langt frá því að takast að buga mann hérna.

Í gær skall svo vorið á með látum, mér skilst að það hafi farið upp í 17° hita um hádegisbilið. Ég fór á stuttermabol í skólann og klæddi mig ekki í peysu fyrr en um kvöldið þegar ég fór heim og tók upp línuskautana :) Ég er farinn að hlakka mikið til þess að upplifa danskt sumar, stefnan er að ferðast svolítið og koma nokkuð reglulega til Íslands.

By the way, hver ætlar að flytja með mér hingað ??

Smashing pumpkins, heimsóknir ofl.

Mar 03

Haffi kíkti hingað í heimsókn í síðustu viku og var í 5 daga. Niðurstaða þeirrar heimsóknar er sú að

  1. sófinn er betri en vindsængin
  2. gestasængin er aaaaaaaaaaaaalltof viðustyggilega stór og heit
  3. ég er með ofnæmi fyrir hrotum og hugsanlega furuhnetum

Annars var bara fjör hjá okkur þar sem bjór, xbox og reyka vodka komu nú við sögu. Ég bauð svo nokkrum hingað í mat á föstudeginum og eldaði kjúklingasalat að hætti mömmu. Í því partíi komst ég að því að ég var með ofnæmi fyrir einhverju, líklegast furuhnetum, enda allur rauðflekkóttur í framan og leið eins og ég væri með astma, þakkir fá þeir sem tóku myndir af þessu, fannst þetta voða fyndið og pirruðu mig duglega mest allt kvöldið.

Á miðvikudeginum fór ég svo á tónleika með Smashing pumpkins í Valby hallen. Ég er reyndar enginn svaka aðdáandi þeirra en mér fannst þessir tónleikar mjög góðir og þeir fóru langt framar mínum vonum… því miður þar sem ég þurfti að vakna svo HRESS morguninn eftir til að fara að vinna.

Hulda kom svo á fimmtudaginn og var í 3 daga, tókst m.a. að gera mig að miklum aðdáanda sushi og kenndi mér taktana við þetta. Við fórum á Sticks’n'Sushi sem ég mæli með, frábær staður með góðum mat. Reyndar eru 5 slíkir staðir í Kaupmannahöfn og allir með ólíku sniði, þessi sem við fórum á nálægt Nörreport var eins og að fara fínt út að borða, sem var akkúrat það sem við vorum að leita að. Á föstudaginn grilluðum við okkur nautasteik og meððí :) . Laugardagurinn fór svo í verslunarleiðangur og afmælispartí um kvöldið hjá Evu og Erni. Við enduðum svo kvöldið hópurinn á Vega, næturklúbbi á Vesterbro, þar sem drepleiðinlegir skífuþeytar gerðu út af við okkur. Áðan ætlaði ég svo að baka köku… ég hafði keypt þennan “easy few steps” pakka þar sem niðurstaðan hefði átt að vera ljúffeng pistasíukaka með glassúri… þar til ég fattaði að fjandans matarolían sem ég notaði í kökuna var með hvítlauk! Mmmmm the smell….

Nykredit

Feb 23

Jæja þá er ég búinn að skrifa undir starfssamning við Nykredit Bank. Á mánudaginn byrja ég að vinna í vöruþróunarhópi innan “Finans afdeling”. Þetta verður 50% starf með skóla og svo 50% starf í sumar, sem hentar mjög vel þar sem ég ætlaði bara að vera hérna úti í Danmörku í rólegheitum í sumar og ferðast eitthvað. Þetta kom þannig til að sá sem er yfir þessum hópi er jafnframt kennari í fjármálakúrsunum uppí skóla og var að leita af einhverjum í þessu námi með reynslu af hugbúnaðarþróun, Tryggvi fær props fyrir að benda mér á þetta :)

Iceland Express

Feb 07

Ég ætla að bíða með þetta blogg þangað til að Sunneva hættir að vinna þar :) Díll?

En svona í millitíðinni, getur einhver útskýrt fyrir mér hvernig veðurskilyrði valda því að Iceland Express getur ekki flogið en Icelandair getur það léttilega?