Feb 07
Ég ætla að bíða með þetta blogg þangað til að Sunneva hættir að vinna þar
Díll?
En svona í millitíðinni, getur einhver útskýrt fyrir mér hvernig veðurskilyrði valda því að Iceland Express getur ekki flogið en Icelandair getur það léttilega?
Dec 02
Ég var í ræktinni áðan sem er svosem ekki í frásögur færandi en á staðnum var slatti af aröbum að lyfta lóðum sem er reyndar ekki heldur í frásögur færandi hérna á norðurbrúnni :). Nema hvað að einn þeirra var í ÚLPU og bar húfu á höfði og hinir voru í fullum fötum og viðbjóðslega sveittir. Lyktin af liðinu líka angaði út um allt og ég varð fyrir þeirri ólukku að eftir að hafa tekið all hressilega á því í einni æfingunni þurfti ég heldur betur að kasta mæðinni, sem ég og gerði en í sömu andrá gekk einn af þeim fram hjá og mér hefur ekki verið svona flökurt síðan frostaveturinn mikla. Með lungun stútfull af klukkutíma uppsöfnuðu soðnu arabísku steikar-svitalofti sem gaus út frá gaurnum og lyktin var svo sterk að ég tel mig hafa séð hana sveima um, svona eins og í teiknimyndunum. Nema ég hafi verið með óráði?
Picture this: Gæjinn í úlpunni, töluvert feitur, búinn að vera að svitna í klukkutíma í síðum buxum, þykkri peysu og úlpu fjandinn hafi það og ofan á allt var svona vond matarlykt af gaurnum, svona eins og hann hafi verið nýbúinn að steikja og belgja sig út af einhverjum svona halal-allah-steikarviðbjóði. Þeir sem telja að hér sé um mikinn rasistahátt að ræða af minni hálfu þá vil ég að þið setjið ykkur í mín spor, burtséð frá trú og öllum þessum complexum sem ríkja okkar á milli þá hlýtur að vera hægt að drulla sér út í sportvöruverslun og kaupa sér stuttbuxur, bol og svitalyktaeyði og reyna svo að vera ekki klæddur í þessi föt þegar “maturinn” er “eldaður” heima.
Ahh… gott að létta svona biturleika af sér
Pís!
Nov 13
Ég er kominn með alveg feikinóg af þessum athyglissjúku moggabloggurum sem blogga, eins og lífið lægi við þeim, við allar greinar einungis til þess eins að fá gesti á síðurnar hjá sér. Gott dæmi um þetta eru meðlimir Feministafélags Íslands sem stunda þessa iðju m.a. við allar þær greinar þar sem eitthvað karlkyns kemur fyrir en hvergi minnst á konur, þvílíkt karlrembusamfélag sem við búum í. Þær njóta þess svo að svara eins og óþroskaðar litlar skólastelpur, ómálefnalega og hreinlega heimskulega, þegar pirraður almúginn lætur þær heyra það. Blog.is “umræðan” svo á miðkafla mbl.is forsíðunnar er engu skárri en þar eru greinar þessara bloggara birtar eins og hver önnur frétt.
Ég les blogg fólks sem ég þekki og hef áhuga á að vita hvað er að gerast hjá en hef ekki nokkurn áhuga á að láta mbl.is þröngva uppá mig heimskulegum skoðunum fólks þegar ég er að reyna að lesa fréttirnar.
Ég hvet alla sem mér eru sammála að skipta yfir á vísi.is, nú eða digg
Edit:
Þeir sem eru orðnir alveg brjálaðir yfir þessu líka en geta ekki vanið sig af því að skrifa mbl.is í address bar mega þakka fyrir hvað ég er mikið nörd því eftirfarandi leiðbeiningar redda þessum vanda:
- Smelltu á Start og Run
- Skrifaðu þar: notepad C:\WINDOWS\System32\drivers\etc\hosts
- Neðsta línan í skránni ætti að innihalda t.d.
127.0.0.1 localhost
- Bættu við tveimur línum á eftir neðstu línunni:
87.117.209.208 mbl.is
87.117.209.208 www.mbl.is
- Smelltu á File og Save og lokaðu notepad
- Til að færa allt í eðlilegt horf aftur þarf einfaldlega að fylgja þessum sömu leiðbeiningum nema taka út þessar línur sem bætt var inn og vista skjalið aftur
Eftir þetta fer vafrinn þinn alltaf á visir.is ef þú skrifar mbl.is eða www.mbl.is, vandi leystur í mínu tilfelli amk.
Edit: Íbbi sendi mér örlítið mildari aðferð: http://blogg.kj.is/?p=2056
Gott að sjá að fleiri en ég eru komnir með gjörsamlega nóg af þessu
Mar 29
Sem Hafnfirðingur gefst mér kostur á að kjósa um álverið fljótlega. Ég hafði hugsað mér að jafnvel kjósa með því en þegar ég rek augun í undirförul PR vinnubrögð félagsins langar mig að kjósa gegn álversstækkun. Um daginn var dagskrárrof í sjónvarpinu, fréttainnskot þar sem fram kom að Alcan hafi ákveðið að grafa niður rafmagnslínur til að draga úr sjónmengun, sem það jú vissulega gerir. Svo sé ég svona frétt á mbl.is sem er eiginlega kornið sem fyllir mælinn. Hvað ætli svona auglýsingar í formi frétta kosti hjá fjölmiðlum?? Mér finnst persónulega óheiðarlegt að reyna að bjóða almenningi mútur með einhverjum svona uppátækjum, rétt fyrir kosningar að lofa gulli og grænum skógum og gefa út falskar tilkynningar til þess eins að láta félagið líta umhverfisvænna út.
Hefði ekki t.d. verið nær fyrir þá að gera sjónvarpsauglýsingu þar sem álframleiðslan er réttlætt á þann hátt að álumbúðir eru umhverfisvænustu umbúðirnar í okkar samfélagi, þar sem 80% af þeim eru endurnýttar og held ég 60% af álframleiðslunni fari eimmitt í þessar umbúðir. Frekar tóku þeir þá ákvörðun að koma með fréttatilkynningar sem fjölmiðlarnir svo keppast um að auglýsa fyrir þá með forsíðubirtingum og rofi á sjónvarpsdagsskrá. Það er varla að sjá á þessum vinnubrögðum að fjölmiðlar séu óháðir aðilar sem landsmenn geta treyst, heldur þvert á móti.
Pirr
Feb 16
Allt í einu man ég það! Einhverntímann sagði ég við sjálfan mig, ef ég á einhverntímann eftir að byrja að blogga þá mun ég byrja á því að bitrast yfir þessu.
Sumt fólk heldur því fram að gosið í gosflöskum haldist betur ef flaskan er kreist þannig að hún sé ekki fyllilega útþanin og tappinn svo skrúfaður á þannig. Ég vil að þeir sem halda þessu fram vinsamlegast gefi sig fram hérna, mig langar að vita hversu marga heimska fávitamikið af illa upplýstu fólki ég þekki :). Sko koltvísýringi (carbon dioxide, CO2) er dælt í vökva undir töluverðum þrýsingi til að láta það bindast vökvanum, t.d. kók og annað gos. Til hjálpa koltvísýringnum (gosinu) að losna úr vökvanum er fyrst og fremst best að hafa vökvann ekki undir neinum þrýsingi, auk þess er eykur hiti mjög á losunina. Þegar flaska er lokuð og þanin út getur aðeins ákveðið mikið magn af koltvísýringi losnað úr vökvanum, eða þar til þrýsingurinn inní flöskunni er orðinn það mikill að hann hindrar frekari losum. Ef flaskan er hinsvegar kreist og henni síðan lokað þannig þá hljóta flestir að átta sig á því að vegna þess að koltvísýringurinn getur losnað á meðan þrýsingur í flöskunni leyfir þá er verið að gefa mun meira rúm til slíkrar losuna með því að kreista helvítis flöskuna!!
Og ef svo vill til að heimska illa upplýsta fólkið sé enn að þrjóskast við að vera heimskt illa upplýst, takið vinsamlegast 2 flöskur af gosi, tæmið helminginn úr þeim báðum, kreistið aðra flöskuna eins og þið mögulega getið án þess þó að hrista innihaldið og setjið tappann á, lokið hinni flöskunni á eðlilegan hátt ÁN ÞESS að hrista. Drekkið eftir nokkra tíma, og til að gera þetta skemmtilegra má prófa að drekka eftir sólarhring þegar þær verða báðar fyllilega út þandar og harðar.
Ahh, glad i’ve gotten that out of my chest
Edit 19.02.2007: Hey svo fann ég mynd sem lýsir þessu sem ég er að röfla um, setjið bara flöskukreistarana í hóp trúar, mig í hóp vísindanna
Sjá mynd
Dec 12
Dj*full er spamm óþolandi. Þetta blasti við mér í bloggkerfinu þegar ég loggaði mig inn:
Þetta þýðir það að ég þarf að renna yfir þennan lista til að sjá hvort einhver comment frá vinum séu þarna og eyða restinni. Ég þarf greinilega að smella Captcha inná þetta til að losna við þennan viðbjóð í framtíðinni. Örstutt um captcha, þetta er ein tegund af svokölluðum Turing prófum sem eiga að greina menn frá vélum, athyglisverðar lesningar fyrir þá sem vita ekkert um þetta. Þetta hefur mikið með gervigreind(AI) að gera , þó að sú grein(innan tölvunarfræðinnar) hafi það kannski meira að markmiði að gera Turing-test að engu :).
Sep 07
SHIT Hvað ég er pirraður, ég ligg hérna uppí sófa að horfa á Rokkstar Súpernóva og kveikti á lappanum spes til að pirrast yfir þessu.
“Mögnuð Tvenna” segir í auglýsingunni… mööööögnuð tvennna… það tók mann smá stund að átta sig á því að þetta fáránlega og asnalega óhljóð í bakgrunninum er rödd sem segir mögnuð tvenna.
Í leiðinni vil ég koma því pirri á framfæri að auglýsingamarkaðurinn er troðfullur af asnalegum og lélegum auglýsingum, ef þær eru góðar þá er hugmyndin af þeim komin erlendis frá. Þannig er þetta bara, mikið magn af íslenskum auglýsingum er nánast beinn stuldur erlendis frá. Auðvitað á þetta ekki við um allar auglýsingastofur, sumar eru virkilega að gera góða hluti en þær eru ekki í meirihluta.
pirr (lagaði úr spenna í tvenna, thx höddi ;))