Feb 09
Jæja, ég er sestur niður í “þreytunni” eftir rosalegt kvöld á South Beach í gær. Við fórum s.s. á South Beach í gær til Vilborgar og meðleigjanda hennar, SEM ER AUSTURRÍSKUR TVÍFARI VIGGA!! See for yourself:

Við(Ég, Berglind, Helgi og Svava) byrjuðum á því að fara á South Beach ströndina þar sem við eyddum deginum í sjónum og spókuðum okkur í sólinni. Við Helgi fórum svo að kasta rúbbíbolta, sem er merkilega gaman, eftir svona hálftíma bolta kom svartur gaur sem var jafn breiður og ég er stór, svona rúbbígaur, og kallaði til mín áður en ég náði að senda boltann á Helga; “YO MY MAN, throw me the ball!”. Ég auðvitað varð að þeirri ósk og kastaði tuðrunni til hans, svo köstuðum við 3 boltanum á milli í svona klukkustund. Þetta var algjör snillingur, með góða bolta líka, og að nafni Rizzo. Ég auðvitað gat svo ekki legið kjurr í sólbaði eftir þetta þannig að ég fór að grafa upp ströndina og bjó til “fótinn”, listaverk sem ég hef tileinkað mér og sett upp til sýninga á nokkrum ströndum :). Upp úr klukkan 4 fórum við og fengum okkur smá að éta, forrétt fyrir grillveisluna heima hjá Vilborgu og co. Við keyrðum í gegnum miðja Miami á leiðinni til Vilborgar bara til að fá staðfestingu á því að þetta er flottasta borg sem ég hef komið til :). Þegar til Vilborgar var komið, hoppuðum við í sturtu og skiptum yfir í djammgallann. Þetta var stærðarinnar partí þar sem 4 vinir Jóhannesar (Austuríski meðleigjandi Vilborgar) voru í heimsókn ásamt 4 vinum Vilborgar, þannig að við vorum um 14 talsins. Við höfðum gripið Tópas drykkinn með okkur fyrir útlendingana. Reyndar vantaði staupglös en einn úr hópnum tók sig til og bjó til staupglös fyrir allan hópinn úr gúrkum! Það svínvirkaði og bráðum voru útlendingarnir farnir að gretta sig af tópasinu :). Við fengum líka þessa delishjuuuuus ostborgara sem Jóhannes grillaði, já Jóhannes er s.s. Austurríska útgáfan af Vigga, sjá mynd að ofan. Þegar búið var að taka vel á því þarna var stefnan sett á skemmtistaðinn Mansion á south beach að mig minnir. Jóhannes reddaði öllum í VIP röðina þar sem við gengum inn eins og ekkert var því gjaldmiðillinn var: STELPUR. Þeir töldu stelpurnar og hleyptu þeim inn og töldu svo hvað við strákarnir vorum margir og einhverjir þurftu að borga sig inn þar sem hlutfallið var ekki yfir 50% eða eitthvað í þá áttina :).
Þessi skemmtistaður er sá allra flottasti sem ég hef komið inná. Hann er á 2 hæðum og skipt samtals niður í 3 stóra sali sem eru algerlega hljóðeinangraðir hver frá öðrum en samt vel opnir á milli. Í hverjum sal var mismunandi mood (stemning) og mismunandi tónlist. Stærsti salurinn var auðvitað með þessa klassísku miami tónlist, R&B, Rap ofl, næsti var með electroník og fleira í þá áttina (loved it
) og sá þriðji, sem var lokaður er held ég með rokk.
Svo fyrir ótrúlega tilviljun hittum við 2 íslenskar stelpur á djamminu þarna inni, báðar í bekk með bróður mínum Fannsa í grunnskóla og í Versló á sama tíma og við. Eftir rosalegt tjútt fram eftir allri nóttu (þarna lokar sko ekki kl 1) fórum við á einhvern stað og fengum okkur rottupítsu, alveg delisjus. Við komum heim svo uppúr kl 5 minnir mig eftir klukkutíma heimferð þar sem ég steinsofnaði á fáránlegan hátt og vaknaði með kreisí hálsríg.
Ég var að enda við að taka mynd af íkorna hérna fyrir utan, ég dýrka þessi dýr, hann hafði komist í Ritz kex einhversstaðar og sat í rólegheitum og mönshjaði á því:

Svo þegar ég ætlaði að komast ennþá nær fór hann að vera stressaður, setti kexið í kjaftinn, horfði á mig og beið átekta:

Svo náði ég mynd af öðrum um daginn sem lá bara heví sáttur og japlaði á salthnetu sem ég hafði gefið honum:

Feb 06
Allur dagurinn snérist um Superbowl, engin smá stemmning :). Við fórum í huges matvöruverslun og keyptum inn fyrir “game night”, chicken wings, popkorn, loads of beer, ídýfur, ofl ofl. Leikurinn, sem var á milli Chicago Bears og Indianapolis Colts byrjaði kl 17:30 hérna (GMT-5). Eftir að flest allt hafði verið undirbúið fórum við bara í tennis öll sömul og skallatennis, strákar á móti stelpum. Við Helgi slökuðum svo mikið á reglunum að stelpurnar unnu okkur eitt skiptið með miklum sigurhrópum, við bitum það bara ofan í okkur. Eftir hamaganginn sturtaði liðið sig allt saman og sest var við sófann með snacks & beer, by the way bjórinn hérna er með svo miklu minna alkóhólmagni en bjórinn heima í evrópu að maður getur verið að drekka bjór heilt kvöld eins og mountain dew. Leikurinn byrjaði vel, Bears náðu fyrsta marki sinnar tegundar í deildinni frá upphafi, þeas touchdown marki í fyrsta kickoffi leiksins með hlaupi upp allan völlinn, algjör snilld enda var ég designated Bears maður. Helgi var með stórfínan drykkjuleik fyrir okkur, t.d. að fá sér sopa í hvert skipti sem við sáum hvítan mann, þegar interceptions náðust ofl. Leikurinn snérist heldur betur við eftir fyrsta leikhluta og Colts hreinlega rústuðu þessu. Þetta var á köflum jafn spennandi og handboltinn. Eftir leikinn fórum við í póker, Ég, Berglind, Vilborg, Svava og Helgi og vorum í því eitthvað frameftir. S.s. frábær dagur að baki, gaman að fá svona fílinginn af þessari stemmningu hérna í kringum þetta allt saman.
Feb 04
Við vöknuðum nokkuð snemma í gær og fórum á ströndina, við komum við í Target og keyptum okkur rúbbíbolta, blakbolta og fleira stranddót. Úrslitaleikurinn í superpowl er á næsta leiti og því eru allir með svona bolta út um allt og NFL auglýsingar eru á hverju horni. Við tókum gott session í sjónum og í strandblaki, stelpurnar eru allar að koma til í þessum íþróttum :). Systir hans Helga kom hingað þannig að við erum núna 6. Eftir að hafa buslað í sjónum og hamast í bolta á ströndinni í 2 tíma eða svo fórum við á eitt veitingahúsið þarna við ströndina og átum okkur södd af góðum mat og drukkum auðvitað strawberry daiquiry. Um kvöldið tókum við bara djammið, stelpurnar voru voða heimilislegar og útbjuggu snarl með bjórnum og svo mixuðum við Mohító (Mojito). Við fórum svo á local “laugaveginn” hérna í Delray og fléttuðum helstu skemmtistaðina. Þegar kom að því að fara inn á aðal skemmtistaðinn hérna vorum við beðin um skilríki og kredit/debit kort virkuðu ekki þannig að við fórum heim og náðum í ökuskírteini og vegabréf. Þegar við komum svo öll aftur til að naga í aumingja dyraverðinum bauð hann okkur frítt inn ómaksins vegna en við stöldruðum svo ekki lengi við því allir staðir loka kl. 2 (am). Við létum það ekki á okkur fá og fórum bara í sjóðandiheitapottinn við sundlaugina og tókum bara sundlaugapartí til 4 og fórum svo að sofa :).
Við sváfum lengi í morgun enda smá “þreyta” í liðinu, þegar við vorum búin að fá okkur að borða hérna lögðum við af stað til South Beach á Miami. Klukkutíma akstur venjulega en það er NFL weekend hérna og fleirihundruðþúsund manns streyma í borgina fyrir leikinn og allt sem er í gangi hérna í kringum hann. Það tók okkur um 2 og hálfan tíma að komast alveg inn að South beach í bílastæði, umferðin var alveg kreisí og ég tel mig vera orðinn vel sjóaðan extreme usa driving. Á leiðinni sáum við margt athugavert, ég verð að segja að þetta er að mínu mati flottasta borg sem ég hef komið til. Hér er líka flottasta hverfi sem ég hef séð, Star Island, og þá er ég að telja L.A. hverfin eins og Hollywood, Bel Air, Newport og Malibu með. Þetta er hverfi sem maður sér oft í bíómyndunum, eins og Bad Boys. Við gengum meðfram south beach og stemmningin var eins og á 17. júní heima, allt stappað af fólki klæddu bolum félaganna tveggja sem eru að keppa í úrslitunum og gargandi m.a. GO BEARS! YEAH!!. Eftir alla gönguna(Ocean Drive) fengum við okkur kvöldmat á flottum Tapas stað hérna við Espaniola Way, alveg frábær matur í svona spænsku umhverfi, það spænskt að afgreiðsluliðið kunni nánast enga ensku. Keyrslan heim gekk bara vel fyrir sig og við vorum komin heim rétt í kringum miðnætti. Svava er með myndasíðu á Smugmug, ég setti líka inn myndir á eina síðu sem ég er að prófa.
Feb 01
Fyrsti dagurinn hérna í rauninni. Við vöknuðum uppúr kl 8 á staðartíma enda líkamsklukkan ennþá stillt á GMT. Við fengum okkur morgunmat og gengum svo um svæðið í átt að sundlaugarsvæðinu þar sem við spókuðum okkur í sólinni fram að hádegi. Sundlaugin er kaldari en Jökulsá á fjöllum! Reyndar er svo heitur pottur hérna sem er svolítið fyndið, ég hef hvergi annarsstaðar en á íslandi séð heita potta. Eftir hádegi fórum við niður á strönd til að borða, Svava stakk uppá einum veitingastað þar. Þar fengum við okkur auðvitað strawberry daiquiry
og svo mikið af djúsí mat þannig að við þurftum ekki að borða neitt það sem eftir var af deginum. Um kvöldið fórum við í eitthvað huuuuges “Moll” þar sem maður verslaði eina flík eða tvær. Eftir þetta fórum við svo í bíó… risastórt bíó með égveitekkihvaðmörgumbíósölum. Mér var sannarlega hugsað til krissa þegar við pöntuðum nachos í bíóinu. Við fengum um 1/2 lítra af ostasósu! Eitthvað sem Krissi hefði glaður drukkið með röri :).
Á morgun er planið: Golf og tónleikar á Miami.
Jan 31
Jæja, fæstir vita líklega að ég og Berglind erum komin til Svövu og Helga á Delray Beach, Floooorida. Það stóð alltaf til að Berglind færi en ég ætlaði ekkert með þar sem að ég er m.a. nýkominn úr skíðaferð í Austurríki og svona. Þar sem flestir strákarnir höfðu beilað á golfferðinni tók ég ákvörðun með innan við sólarhrings fyrirvara að smella mér með í ferðina, enda an offer i couldn’t resist
11 daga ferð til Flórída og borga bara fyrir flugið (55þús + flugvallaskattar). Þegar við komum uppá flugvöll og gerðum okkur líkleg til að planta okkur aftast í röðina að check-in sáum við okkur til mikillar furðu að ekki einn stakur farþegi var að checka sig inn, flughöfnin var nánast galtóm! Engar raðir
og svo var flugvélin rétt hálf-full þannig að maður fékk nóg pláss fyrir sig. Flugið er c.a. 8 tíma langt, en ekki nógu langt til að láta mér leiðast. Ég var með lappann, psp, vísindatímarit
og ipod. Nóg að gera alla leiðina og tíminn fljótur að líða.
Svava og Helgi stóðu svo fyrir utan þegar við komum út af flugvellinum og tóku á móti okkur. Við skelltum okkur á Hops að borða (Babyback ribs fyrir mig :)) og eftir það tók við þriggja tíma keyrsla suður í átt að Miami. Ég var með GPS’ið tengt við lappann fyrripart ferðarinnar, ég býst við að Svava og Helgi fái sér svoleiðis núna þar sem þau hafa notað oldschool landakort hingað til :). Við vorum ekkert lítið þreytt þegar við komum loksins til Delray Beach, 8 tíma flug og 3 tíma keyrsla.
Nú vorum við að vakna, úti er c.a. 20 stiga hiti og sól. Plan dagsins er að labba um svæðið hérna að skoða allt sem er hægt að gera, fara í Target og versla mat og eitthvað fleira og svo held ég bara sólbað og eitthvað hangs. Förum svo í bíó í kvöld, enda bíó hérna á “campusnum”.