Ferrofluids
Nov 20
Ég verð að setja þetta vídjó hingað inn, ef ég skil þetta rétt þá er þetta einhver fljótandi málmblanda og hún bregst svona við segulsviðum sem þessir tveir “turnar” mynda. Þetta er s.s. ekki gert í tölvu:
Nov 20
Ég verð að setja þetta vídjó hingað inn, ef ég skil þetta rétt þá er þetta einhver fljótandi málmblanda og hún bregst svona við segulsviðum sem þessir tveir “turnar” mynda. Þetta er s.s. ekki gert í tölvu:
Feb 16
Allt í einu man ég það! Einhverntímann sagði ég við sjálfan mig, ef ég á einhverntímann eftir að byrja að blogga þá mun ég byrja á því að bitrast yfir þessu.
Sumt fólk heldur því fram að gosið í gosflöskum haldist betur ef flaskan er kreist þannig að hún sé ekki fyllilega útþanin og tappinn svo skrúfaður á þannig. Ég vil að þeir sem halda þessu fram vinsamlegast gefi sig fram hérna, mig langar að vita hversu marga heimska fávitamikið af illa upplýstu fólki ég þekki :). Sko koltvísýringi (carbon dioxide, CO2) er dælt í vökva undir töluverðum þrýsingi til að láta það bindast vökvanum, t.d. kók og annað gos. Til hjálpa koltvísýringnum (gosinu) að losna úr vökvanum er fyrst og fremst best að hafa vökvann ekki undir neinum þrýsingi, auk þess er eykur hiti mjög á losunina. Þegar flaska er lokuð og þanin út getur aðeins ákveðið mikið magn af koltvísýringi losnað úr vökvanum, eða þar til þrýsingurinn inní flöskunni er orðinn það mikill að hann hindrar frekari losum. Ef flaskan er hinsvegar kreist og henni síðan lokað þannig þá hljóta flestir að átta sig á því að vegna þess að koltvísýringurinn getur losnað á meðan þrýsingur í flöskunni leyfir þá er verið að gefa mun meira rúm til slíkrar losuna með því að kreista helvítis flöskuna!!
Og ef svo vill til að heimska illa upplýsta fólkið sé enn að þrjóskast við að vera heimskt illa upplýst, takið vinsamlegast 2 flöskur af gosi, tæmið helminginn úr þeim báðum, kreistið aðra flöskuna eins og þið mögulega getið án þess þó að hrista innihaldið og setjið tappann á, lokið hinni flöskunni á eðlilegan hátt ÁN ÞESS að hrista. Drekkið eftir nokkra tíma, og til að gera þetta skemmtilegra má prófa að drekka eftir sólarhring þegar þær verða báðar fyllilega út þandar og harðar.
Ahh, glad i’ve gotten that out of my chest
Edit 19.02.2007: Hey svo fann ég mynd sem lýsir þessu sem ég er að röfla um, setjið bara flöskukreistarana í hóp trúar, mig í hóp vísindanna
Sjá mynd
Dec 18
Þegar vissar frumur verða fyrir áreiti dæla þær Histamíni út í vefina í kringum sig. Histamín bindist taugaendum og kemur þeim skilaboðum áleiðis til heilans að mann klægji og NÚ SKULI KLÓRA. Þegar maður svo klórar losnar um Dopamín sem vekur vellíðan. Það má segja að heilinn noti dópamín til þess að verðlauna sjálfan sig. Fullnæging er m.a. dæmi um hálfgert dópamín overdose í líkamanum :). Fólk á það nær undantekningarlaust til að ítreka þá hluti oft sem valda dópamínlosun í heilanum. Dæmi um hluti í daglegu lífi sem sýnt hefur verið fram á að hafa dópamínlosandi áhrif: Að fara á klósettið og gera nr. 1 eða 2(sérstaklega þegar maður er í spreng), að borða súkkulaði (women, know your limits!), að stunda kynlíf og að hnerra.
Aftur að kláðanum, ég er kominn með þetta nasty sár á ristina vegna þess að ég get ekki hætt að klóra mér. Þetta byrjaði sem lítil saklaus rispa en er orðið að töluvert stóru sári núna sem ég er reyndar búinn að binda um núna til að freista þess að hætta þessu. En af hverju get ég ekki hætt að klóra mér?!? Jú vegna þess að mig klægjar og svo klóra ég mér og þá fæ ég dópamín í blóðið fyrir að klóra mér þannig að ég klóra og klóra og klóra. Svona einfaldur er nú líkaminn… heimskur even?
Og ég ætla strax að svara fyrirsjáanlegu commentunum: nei klórið mitt kemur ekki í stað annarra dópamínslosandi umsvifa ![]()
Dec 07
Nov 02
Maður hefur tognað all oft all rosalega um æfina á hinum og þessum æfingum. Í fyrra tognaði ég í fótbolta alveg ógeðslega og svo 3 vikum síðar aftur á sama fæti. Ég skoðaði tognunarskilgreiningar á netinu og greindi tognunina sem: Type 2 spraint - Partially torn ligaments (Slitin liðbönd að hluta til). Eftirfarandi skilgreiningar eru til:



Hér eru svo myndir af öklanum á sínum tíma:


Eftir þetta hef ég verið að misstíga mig við ótrúlegustu tilefni, t.d. nokkrum sinnum í golfi í sumar! Fyrir fótboltann og annað álíka keypti ég mér hlíf/spelku í Flexor (össur retail) sem gerir það að verkum að ég get ekki einusinni reynt að misstíga mig. Ég var svo að lesa mig um það núna að svona öklameiðsli lagast ekkert með tímanum af sjálfu sér. Ég hélt að þetta lagaðist með tímanum en það er alrangt víst, liðböndin haldast svona slök. Það sem á að gera er að fara til læknis og fá endurhæfingarprógram fyrir öklann og gera reglulegar styrktaræfingar á honum, aðeins þannig kemst hann aftur í samt horf með tímanum.