Search

Rss Posts

Rss Comments

Login

 

Posts in ‘Fyndið’

Það sem sumum dettur í hug

Feb 18

Einhverjum kínverja datt í hug að búa til lag og nota til þess eingöngu hljóð úr Windows XP og 98!

Í tilefni dagsins

Feb 14

http://www.liquidgeneration.com/…/Valentines_Day_You_Complete_Me/

:)

Vandræðalegt

Jan 09

Verð bara að bæta við einu stuttu… Ég sat áðan í hádeginu í mötuneitinu, sem var stútfullt af nemendum, og var að hlusta á einhverja mússík með headphone’in tengd í tölvuna. Eftir nokkurn tíma leit ég upp og tók eftir því að óþægilega margir voru að gefa mér óþægilegt augnarráð og óþægilega margir voru hlægjandi og horfandi á mig sem benti óþægilega mikið til þess að ég væri aðhlátursefnið. Eftir smá stund hætti mér að lítast á blikuna og tók headphone’in úr eyrunum, sem eru þannig úr garði gerð að þau loka á flest önnur hljóð í umhverfinu. Við þetta áttaði ég mig á því að tónlistin var einnig á hæsta styrk á hátölurunum á tölvunni!!

Eftir að hafa roðnað eins og epli fyrir framan svona 100 manns tókst mér reyndar að líta á björtu hliðarnar, ég hefði getað verið að hlusta á eitthvað svona eins og Simmi á til að senda manni af og til… þá hefði ég held ég pakkað saman og sótt um í CBS.

Japanskir sjónvarpsþættir + Svefngalsi = Krampakast úr hlátri

Nov 20

Vá ég hreinlega elska Japanska sjónvarpsþætti, ég er hérna í svefngalsa eftir að hafa lokið við vikulangt verkefni og er hreinlega liggjandi hérna í krampakasti úr hlátri yfir hvað þeim dettur í hug. Það er líka eitthvað við Japan sem heillar mig, mig er farið að langa mikið þangað í skiptinám og sérstaklega að læra japönsku.

Leikur inná bókasafni (má ekki heyrast hávaði)

Hrekkir á skíðasvæði

Pacman

Human tetris

Slowmotion Foodfight - þetta er reyndar bara kúl hjá þeim :)

Að reyna að læra …

Nov 15

Ég er að reyna eins og ég get að einbeita mér við að læra en ég get ekki hætt að horfa á og hlægja yfir eftirfarandi vídjóum á jútjúb:

Fyrsta myndbandið - Achmed the dead terrorist:


Seinna myndbandið - Tónlistarmyndband frá Indlandi:


Þetta sýnir ágætlega “cultural differences” :) , á meðan Indverjarnir eru að missa sig yfir þessu lagi þá efast ég um að Bubbi mortens kveikji eitthvað í þeim með Stál og hnífur :) . Það er kannski vert að taka fram að textinn við þetta er ekki bein þýðing heldur hálfgert grín.

Svo verð ég að bæta einu við sem mikill aðdáandi Heroes þáttanna, ég er búinn að finna endi á þáttunum sem ég er reiðubúinn til að sætta mig við!

Þær tvær:

…að kyssast! :o

Duuuuuude…

Oct 30

Ég elska budweiser auglýsingarnar, hver man svo ekki eftir WUUUAAAAAZZZZAAAAP auglýsingunum þeirra:

Ungamismunun !

Jul 25

Eins og einhverjir vita eru fuglar með mínum uppáhalds dýrum. Í ljósi þess verð ég að smella þessari snilldarmynd hingað:
Bíbí

Föstudagshangs, Stewie, my alltime favorite

Feb 23

HAHA ég er með þetta lag á heilanum!

Feb 19

AND SO WILL YOU :) Ég heyrði þetta í útvarpinu áðan, þetta er víst edit á einhverju finnsku lagi (#1 #2)…

Góð upplyfting á mánudagsmorgni og varla hægt annað en að brosa yfir þessu :D

Edit: Haha þetta lag á sér víst sögu og þótt ótrúlegt sé þá er þetta ekki bull heldur allt á Finnsku, Sjá texta (nr 10.) og wikipedia grein um “faraldurinn”

Ahh og commentið frá Íbba á msn eftir að hann heyrði þetta lag gerði þetta blogg þess virði :D:
Ívar Örn says:
   fokk ertu að grínast á leiðinlegu lagi
Ívar Örn says:
   þetta er eins og einhver sé að sprauta krabbameini í eyrun á mér

Edit 2: Í kjölfar vinsældanna sem “hljómsveitin” sem flutti lagið upphaflega fékk í kringum þessa EffEmm útgáfu af því virðist vera að þau séu að poppa sig upp :)

Að rappa sér mat á McDonalds

Dec 10

Haha fyndin leið til að panta sér mat á McDonalds