Ferrofluids
Nov 20
Ég verð að setja þetta vídjó hingað inn, ef ég skil þetta rétt þá er þetta einhver fljótandi málmblanda og hún bregst svona við segulsviðum sem þessir tveir “turnar” mynda. Þetta er s.s. ekki gert í tölvu:
Nov 20
Ég verð að setja þetta vídjó hingað inn, ef ég skil þetta rétt þá er þetta einhver fljótandi málmblanda og hún bregst svona við segulsviðum sem þessir tveir “turnar” mynda. Þetta er s.s. ekki gert í tölvu:
Nov 20
Vá ég hreinlega elska Japanska sjónvarpsþætti, ég er hérna í svefngalsa eftir að hafa lokið við vikulangt verkefni og er hreinlega liggjandi hérna í krampakasti úr hlátri yfir hvað þeim dettur í hug. Það er líka eitthvað við Japan sem heillar mig, mig er farið að langa mikið þangað í skiptinám og sérstaklega að læra japönsku.
Leikur inná bókasafni (má ekki heyrast hávaði)
Hrekkir á skíðasvæði
Pacman
Human tetris
Slowmotion Foodfight - þetta er reyndar bara kúl hjá þeim ![]()
Nov 15
Ég er að reyna eins og ég get að einbeita mér við að læra en ég get ekki hætt að horfa á og hlægja yfir eftirfarandi vídjóum á jútjúb:
Fyrsta myndbandið - Achmed the dead terrorist:
Seinna myndbandið - Tónlistarmyndband frá Indlandi:
Þetta sýnir ágætlega “cultural differences”
, á meðan Indverjarnir eru að missa sig yfir þessu lagi þá efast ég um að Bubbi mortens kveikji eitthvað í þeim með Stál og hnífur
. Það er kannski vert að taka fram að textinn við þetta er ekki bein þýðing heldur hálfgert grín.
Svo verð ég að bæta einu við sem mikill aðdáandi Heroes þáttanna, ég er búinn að finna endi á þáttunum sem ég er reiðubúinn til að sætta mig við!
Oct 30
Ég elska budweiser auglýsingarnar, hver man svo ekki eftir WUUUAAAAAZZZZAAAAP auglýsingunum þeirra:
Oct 03
Strákar, við látum eldstaupin eiga sig bara framvegis er þaggi? ![]()
Another Flaming Shot Goes Bad - Watch more free videos
Sep 24
Jæja það er kominn tími á venjulegt blogg sem ekki snýst um sældarlífið í Danmörku. Margir sem mig þekkja hafa klárlega fengið Tool ræðuna frá mér, um hvað þetta er mikil gæða tónlist sem allir ættu að hlusta á og um leið eðal karlmennskurokk
Það lag sem ég hef helst notað máli mínu til stuðnings um gæði tónlistarinnar sem Tool semur hefur verið Lateralus. Lagið kemur af samnefndri plötu sem einnig inniheldur einhverja allra bestu Tool slagarana á borð við Schism, Parabol og Parabola, Reflection, Triad og The Grudge. Meðal þess sem er merkilegt við þetta lag er að atkvæði söngsins eru í Fibonazzy röð sem er gömul þekkt stærðfræðiruna, sem m.a. er hægt að setja fram sem:
Loksins hefur svo einhver nennt að gera myndband við lagið sem útskýrir eitthvað af því sem höfundarnir eru að hugsa:
Jul 30
Lengi vel var Terminator II uppáhalds bíómyndin mín og ég man vel eftir þessum efasemdarpésum sem töluðu um að hvað allt í þessari mynd væri tóm vitleysa
Reyndar er stór hluti af þessari mynd eimmitt þannig en einn hlutur úr henni hefur ratað inn í nútímann! Einhverjir snillingar eru búnir að hanna vélhönd sem getur farið eftir skilaboðum frá taugakerfi þess sem höndina ber.
Hér fyrir neðan er svo skot úr myndinni sjálfri til samanburðar, ekki mikill munur er það?
ATH, þetta er ‘dubbað’ á einhverju óþolandi tungumáli og í skítlélegum gæðum, vinsamlegast slökkvið á hljóðinu
Hver hefur ekki hugsað með sér hvað líf manns yrði vonlaust ef maður myndi missa útlim, sjón, heyrn eða lamast algjörlega. Svona lagað minnkar áhyggjurnar til muna. Hugsum okkur hvað það hefur tekið fá ár að þróa þessa tækni og svo hvernig þetta verður þá eftir um 40-50 ár!
Jul 19
Eins ótrúlega fáránlega og þetta hljómar… þá er þetta satt ![]()
Rabbits Fight Broken Up By Roosters - Watch more free videos
Jul 19
Ég hreinlega verð að setja inn uppáhalds atriðin mín í Family guy! Simpsons er orðið að leiðinlegri sápuóperu við hlið þessara þátta