Endaspretturinn
May 07
Það er búið að vera brjálað að gera að undanförnu í skólanum og nú stefnir í 24/7 vinnu næstu 3 vikurnar. Ég er svona við það að bugast undan verkefnaálagi en þetta hefst, ég get ekki beðið eftir að klára þessa önn og byrja svo í (vonandi auðveldum) júníkúrs,Stochastic Simulation. Ekki nóg með að ég sé búinn að vera á fullu í allan vetur að vinna verkefni heldur þarf ég svo að kynna verkefnið mitt í einum kúrsinum á einhverri ráðstefnu (Vision day) með fyrirlestri, plaggati og einhverju rugli! Stundum held ég að kennararnir telji að nemendur hafi afkastagetu á við heilan vinnustað. Ég get reyndar svolítið sjálfum mér um kennt, þetta er 10 ECTS kúrs þar sem mælt er með að 3 séu saman í hóp en ég hef svo litla trú á þessu liði sem er með mér í kúrsinum að ég ákvað að bíta bara á jaxlinn og vera einn.
Annars fann ég þessa mynd á því stutta nethangsi sem ég tók í dag, mynd af sólmyrkva á suðurpólnum, helvíti kúl
