Search

Rss Posts

Rss Comments

Login

 

Posts in ‘Tæknin sko’

Verkefnavinna

May 27

Ég er búinn að vera á kafi í verkefnavinnu en þetta er allt að klárast fljótlega. Ég verð að kynna verkefnið mitt, sem ber heitið Three dimensional music library browser, á svokölluðum Vision day á föstudaginn eins og áður hefur komið fram, áhugasamir geta skoðað plagatið mitt á netinu.

Phoenix lentur!

May 26

Jæja, ég veit að sumum finnst þetta ekkert voðalega merkilegt en geimfarið Phoenix var að lenda á Mars. Ég held að líkurnar á að allt myndi takast hafi verið um 50/50. Geimfarið er búið að vera um 10 mánuði á leiðinni þangað og á að framkvæma rannsóknir á ís sem það lendir á, m.a. til að athuga með líf þar. Hér er tilkynningin af NASA síðunni sem hefur verið með niðurtalningu í gangi:

A NASA spacecraft landed in the Martian arctic today to begin three months of examining a site chosen for the likelihood of having frozen water within reach of the lander’s robotic arm.

Radio signals received at 4:53 p.m. Pacific Time confirmed that the Phoenix Mars Lander had survived its difficult final descent and touchdown 15 minutes earlier. In the intervening time, those signals crossed the distance from Mars to Earth at the speed of light.

Hér er vídjó sem sýnir ferðina alla:

Hér er svo útskýringarmyndband um flugið inn í gufuhvolfið

Terminator vitleysa

Jul 30

Lengi vel var Terminator II uppáhalds bíómyndin mín og ég man vel eftir þessum efasemdarpésum sem töluðu um að hvað allt í þessari mynd væri tóm vitleysa :) Reyndar er stór hluti af þessari mynd eimmitt þannig en einn hlutur úr henni hefur ratað inn í nútímann! Einhverjir snillingar eru búnir að hanna vélhönd sem getur farið eftir skilaboðum frá taugakerfi þess sem höndina ber.

Hér fyrir neðan er svo skot úr myndinni sjálfri til samanburðar, ekki mikill munur er það? :) ATH, þetta er ‘dubbað’ á einhverju óþolandi tungumáli og í skítlélegum gæðum, vinsamlegast slökkvið á hljóðinu :)

Hver hefur ekki hugsað með sér hvað líf manns yrði vonlaust ef maður myndi missa útlim, sjón, heyrn eða lamast algjörlega. Svona lagað minnkar áhyggjurnar til muna. Hugsum okkur hvað það hefur tekið fá ár að þróa þessa tækni og svo hvernig þetta verður þá eftir um 40-50 ár!

Nýjasta nýtt í þrívídd og tölvusjón

Jun 07

Ansi áhugaverður hugbúnaður sem vinir vors og blóma í Micro$oft eru að hanna, reyndar fyrirtæki sem þeir keyptu:

Hugbúnaðurinn gerir fólki kleift að skoða myndir teknar víðsvegar um heiminn í þrívíddarumhverfi, það er meiraðsegja hægt að prófa þennan hugbúnað hjá þeim ókeypis á netinu (keyrist í vafranum, ekki sérstakt install)
http://labs.live.com/photosynth/

Meira:
http://www.ted.com/index.php/speakers/view/id/117

Vélmenni

May 04

Sem mikill tækniunnandi er ég oft að bitrast yfir því að tæknin þróast of hægt til að ég geti eytt ellinni á fimm stjörnu hóteli á Mars með vélþjóna allt í kringum mig. Þar af leiðandi finnst mér svona myndbönd hughreystandi og benda til þess að einhverjir þarna í heiminum séu að vinna vinnuna sína til að tryggja notalega framtíð mína :)

Reyndar tel ég ansi ólíklegt að gervigreindin þarna í lokin sé alvuru, líklegast sett upp fyrirfram :)

Ég skora reyndar á Vigga og Sæla að kommenta á þetta enda eru félagarnir að klára M.Sc í Artificial Intelligence