Jæja það er kominn tími á venjulegt blogg sem ekki snýst um sældarlífið í Danmörku. Margir sem mig þekkja hafa klárlega fengið Tool ræðuna frá mér, um hvað þetta er mikil gæða tónlist sem allir ættu að hlusta á og um leið eðal karlmennskurokk
Það lag sem ég hef helst notað máli mínu til stuðnings um gæði tónlistarinnar sem Tool semur hefur verið Lateralus. Lagið kemur af samnefndri plötu sem einnig inniheldur einhverja allra bestu Tool slagarana á borð við Schism, Parabol og Parabola, Reflection, Triad og The Grudge. Meðal þess sem er merkilegt við þetta lag er að atkvæði söngsins eru í Fibonazzy röð sem er gömul þekkt stærðfræðiruna, sem m.a. er hægt að setja fram sem:
Loksins hefur svo einhver nennt að gera myndband við lagið sem útskýrir eitthvað af því sem höfundarnir eru að hugsa:
Nú getur fólk hlustað á alla tónlistina sem ég er með, því miður eins og er inniheldur stöðin alla tónlist sem ég er með á ipodinum, ég reyni að vera duglegur við að taka út lélegu lögin. Þetta er það blandaður listi af lögum (um 6000 lög) að ég efast ekki um að allir finni amk eitthvað við sitt hæfi.
Ég hef aldrei hlustað á Björk af neinu ráði hingað til né keypt diska með henni, þrátt fyrir að vera auðvitað stoltur af þessum fellow Íslendingi sem heimurinn virðist dýrka. Eitt af lögunum á nýju plötunni hennar er samt eitthvað svo catchy svo ég varð að kaupa það á iTunes þar sem hún á það alveg skilið
Þar sem ég keypti mér iTunes music card úti í U.S. and A. þá hef ég verið óður að kaupa mér nýja tónlist til að hlusta á. Ég uppgötvaði Trentemöller fyrir stuttu og svo benti Bjarki vinnufélagi mér á Amon Tobin en sá gaur gerði m.a. alla tónlistina fyrir Splinter cell. Báðir eru svona í anda Orbital og DJ Shadow
Lögfræðingar sem lesa þetta (Valdi og félagar):
Mig vantar að vita hvort það sé löglegt fyrir mig að hafa lög hérna til niðurhals sem sýnishorn, hvað þarf þá að taka fram. Ef það er ólöglegt þá vantar mig að vita hvort ég megi þá ekki vera með stutt sýnishorn úr lögum, hversu löng þau mega vera og hvað ég þarf að taka fram
Ég veit ekki hversu oft ég er búinn að horfa á þetta myndband (síðasta blogg). Hvort það sé lagið sem er svona helvíti gott, myndbandið, hvað aðalleikonan er eitthvað svo spes falleg(dæmi um skandínavíska fegurð eins og einhver sagði) eða bara allt saman. Svo verð ég að bæta því við, eins gay og það hljómar, að hárið á henni er bara helvíti flott þó það sé alveg aflitað, spurning hvort maður fái sér ekki bara hvítt hár í klippingu á eftir
Vá smá edit! Mér fannst þetta svo ólíklegt að ég þurfti að grafa þetta betur upp, allir eru að tönnlast á því að þetta sé lizzie grubman en í rauninni er þetta norsk stelpa sem heitir Marianne Schroeder. Merkilegt, hlaut líka að vera.
Mér til mikilla vonbrigða er þessi stelpa, að nafni Lizzie Grubman ekki baun falleg venjulega og er apparently stórkrimmi og vandræðabarn. Ég hefði líka haldið að hún væri álíka gömul og ég en hún er 71 módel. Þetta vefst svolítið fyrir mér, hvernig getur verið svona rosalegur munur á manneskju á tveimur myndum (þeas borið saman við myndir í tenglinum við nafnið hennar)? Auðvitað eru til góðar og slæmar myndir af öllum og oftast mikill munur á þeim en fyrr má nú vera. Ekki svo eins og þetta sé photoshopp’að því það er nánast ekki hægt í svona myndböndum. Hún er líka algjörlega ómáluð í myndbandinu þannig að ekki er hægt að kenna sminkinu um þetta.
Vil jafnframt benda á að þetta er ekki söngkona The Knive heldur bara eitthvað módel, söngkonan kemur þó fyrir í myndbandinu, sitjandi við borðið í prestsfötum.
Röyksopp(Norsk) og The Knife(Sænsk). Ótrúlegt hvað þetta er lítið spilað hérna á Íslandinu, eins og þetta er nú vinsælt í hinum norðurlöndunum. Stofna bara útvarpsstöð og endurvekja musik.is.