Search

Rss Posts

Rss Comments

Login

 

Posts in ‘What's with that...’

Spes fólk í ræktinni

Dec 02

Ég var í ræktinni áðan sem er svosem ekki í frásögur færandi en á staðnum var slatti af aröbum að lyfta lóðum sem er reyndar ekki heldur í frásögur færandi hérna á norðurbrúnni :). Nema hvað að einn þeirra var í ÚLPU og bar húfu á höfði og hinir voru í fullum fötum og viðbjóðslega sveittir. Lyktin af liðinu líka angaði út um allt og ég varð fyrir þeirri ólukku að eftir að hafa tekið all hressilega á því í einni æfingunni þurfti ég heldur betur að kasta mæðinni, sem ég og gerði en í sömu andrá gekk einn af þeim fram hjá og mér hefur ekki verið svona flökurt síðan frostaveturinn mikla. Með lungun stútfull af klukkutíma uppsöfnuðu soðnu arabísku steikar-svitalofti sem gaus út frá gaurnum og lyktin var svo sterk að ég tel mig hafa séð hana sveima um, svona eins og í teiknimyndunum. Nema ég hafi verið með óráði?

Picture this: Gæjinn í úlpunni, töluvert feitur, búinn að vera að svitna í klukkutíma í síðum buxum, þykkri peysu og úlpu fjandinn hafi það og ofan á allt var svona vond matarlykt af gaurnum, svona eins og hann hafi verið nýbúinn að steikja og belgja sig út af einhverjum svona halal-allah-steikarviðbjóði. Þeir sem telja að hér sé um mikinn rasistahátt að ræða af minni hálfu þá vil ég að þið setjið ykkur í mín spor, burtséð frá trú og öllum þessum complexum sem ríkja okkar á milli þá hlýtur að vera hægt að drulla sér út í sportvöruverslun og kaupa sér stuttbuxur, bol og svitalyktaeyði og reyna svo að vera ekki klæddur í þessi föt þegar “maturinn” er “eldaður” heima.

Ahh… gott að létta svona biturleika af sér
Pís!

Spurning til landans

Jun 14

Nú hef ég undanfarið mikið tekið eftir fólki, oftast mjög gömlu fólki, ráfandi um umferðareyjur og vegkanta að tína flöskur og dósir. Ég auðvitað dauðvorkenni þessu fólki því að heill dagur af svona dósatínslu skilar í mesta lagi 1000 kr. (gefið að viðkomandi takist að finna um 167 flöskur og fái 6kr. fyrir stykkið). Tilgangurinn er alls ekki að gera lítið úr þessu, sérstaklega ef fólk þarf á þessum pening að halda og gerir þetta í blárri neyð. Ég vil bara vita, af hverju fer fólkið ekki að týna golfkúlur á golfvöllunum? Litlu bræður mínir fóru með hrífur og ýmis tól á golfvöllinn í Setbergi þegar þeir voru… ja.. ennþá minni. Þeir náðu um 200 golfkúlum í hverri ferð og það var beinlínis eins og golfkúlur yxu í tjörnum og lækjum vallarins. Kúlan fer síðan á 50-100kr. stykkið í golfbúðir, sem gerir um 15.000 krónur. Þar með hafa litlir krakkagemlingar með hrífu náð jafn miklum pening fyrir sitt erfiði á 4 tímum og dósatínslumaður á hálfum mánuði (gefið að viðkomandi sé að 24 / 7 ).

Nú ef of margir fara að hugsa um þetta sama verða golfvellir landsins fljótlega yfirfullir, en þá er bara hægt að snúa sér að því að týna maðka og selja í veiðibúðir, þeir borga víst fúlgur fyrir þessa stórvöxnu orma sem koma uppá yfirborðið í görðum landans þegar rignir :). Mér bara dettur ekki í hug lélegri nýting á tíma fólks en að týna upp eina og eina flösku við vegi, þetta gefur lægra tímakaup en…. held ég bara allt annað

Og finnst að ég er nú byrjaður að nöldra á annað borð, hvað er eiginlega með fólkið sem fær sér flottan bíl og svo númeraplötur á borð við: 2FAST4YOU(Too fast for you), CUL8ER(See you later), OWNAGE(ugh), ofl.? Fyndnasta einkanúmer sem ég hef séð er þó án efa eldri maður á flottum landcruiser og “FÁG” á númeraplötunni. Hann hefur a) greinilega ekki áttað sig á hvað komman fyrir ofan A’ið sést illa og b) ekki grænan grun um hvað FAG þýðir á ensku. :)

X factor

Mar 16

Sko… annað af eftirfarandi veldur því að ég á ekki orð yfir þessum drasl þætti

1. Dómararnir eru skítlélegir eða bleyður og þora aldrei að koma með alvuru gagnrýni á við það sem Símon Cowell nokkur lætur uppúr sér
2. Mic’arnir hjá þeim eru ónýtir og þ.a.l. útsendingin í ruglinu og raddirnar hljóma falskar eins og lélegt karókí

allavega þá eins og fyrr sagði á ég ekki orð yfir þessu talentleysi í þættinum. Það er enginn þarna sem getur sungið af neinu ráði og þetta hljómar í besta falli eins cheesy karókí og í versta falli eins og ég í Singstar®. Ég er búinn að horfa á parta af þessu svona af og til og alltaf þegar ég sé einhvern syngja þá sest ég niður og bíð spenntur eftir að einhver hrauni yfir viðkomandi (eins og í idol þegar slíkt gerist) en nei nei, þá kemur eitthvað í þessa áttina “Vá ég bara skil ekki að þú/þið hafið ekki verið uppgötvuð áður!”. Ég ætla ekki einusinni að byrja á þessari furðulegu kellingu þarna í dómarasætinu… sagði einhver crystal meth?

Reyndar myndi ég segja að ef einhver hefur vott af talent þarna þá er það yngsta stelpan og færeyingurinn en það er samt engu skárra en söngvakeppni grunnskólanna þó þetta eigi að kallast keppni á landsvísu.