Search

Rss Posts

Rss Comments

Login

 

Posts from August, 2006

Officially lélegasta sumarið

Aug 30

Jæja nú er ekki hægt að segja annað en að haustið sé gengið í garð enda er skítakuldi úti! Fyndið hvað þetta bara skall á, og í Ágúst!! En jæja þar sem þetta er þá opinber endir á sumrinu getum við innsiglað metið: Þetta sumar var klárlega það lélegasta í manna minnum. Rigning og rok alla daga nema 5 eða svo. Þó að manni þyki vænt um landið þá fer óneitanlega mikið í taugarnar á mér að geta ekki skíðað hérna á veturna vegna “hita” og ekki spilað golf nægilega mikið á sumrin vegna rigningar og rokreisgeits.

Edit: Ég greinilega jinxaði veðrið, það er orðið heitt úti, farinn í golf

Afbrotamaður og stórkrimmi í Reykjanesumdæmi

Aug 29

Yessir, ég átti eftir að ljúka USA ferðasögunni, sem lyktaði svo:

Ég ákvað að festa kaup á ferðatölvu nokkrum tímum fyrir brottför. Upphaflega var ekki á borðinu að fá sér ferðatölvu en mér bauðst hún á ótrúlegu verði, 1800$(120.000,- kr c.a.), vél sem kostar 476.000,- kr í EJS (staðfest) :D. Vélin ber heitið Dell Precision M90 og er með meiri vinnslugetu en Einstein heitinn, m.ö.o. ég get vel spilað á henni tölvuleiki. Ég hafði ekki tíma til að vera neitt lúmskur með vélina þannig að ég var bara með hana í handfarangri og var svo tekinn í tollinum heima. Ég skeit á mig þegar kom að því að finna uppá afsökun fyrir því af hverju ég fór ekki með vélina í “rauðahliðið” (e. tollskyldur varningur) og hljóðaði sektin + skattur uppá 76.000,- kr. Brotalýsingin(feitletrað því þetta er feitt orð) segir eitthvað í þá áttina að hinn seki hafi gengið með vélina í farangri inn um hlið merkt “Enginn tollskyldur varningur” og svo komið með fáránlega lélega lygi þess efnis að vélin væri vinnuvél og keypt hérna heima :)

Eins ótrúlega og það hljómar þá kenni ég upplýsingaskorti um hvernig fór. Fyrst og fremst hafði ég ekki hugmynd um hvað ég þyrfti mikið að greiða af vélinni. Second of all þá stóð ég í þeirri saklausu meiningu að maður borgaði bara ef maður væri böstaður. Ég hafði þó sterkan grun um að það væri eitthvað orðum aukið en þó ekki staðfestan :D. OG ef þetta hlið er VEL merkt ENGINN TOLLSKYLDUR VARNINGUR þá má ég blindur heita og þetta rauða hlið er falið einhversstaðar fyrir augum almennings því tollazistarnir eru á bónus eftir fjölda bösta hef ég eftir ónafngreindum óáreiðanlegum heimildarmanni.

Ég hef ákveðið að einn daginn þegar ég má vera að og nenni ætla ég að opna vefinn borgarsig.is þar sem fólk getur reiknað út hvort það í raun og veru borgi sig að reyna að smygla varningi til landsins. Ég kem til með að nýta mér underground heimildir (Nonni kuti og Villi köttur) til að læra inná vinnubrögð tollayfirvalda svo hægt sé að áætla væntalegar líkur þess að upp komist um áformin. T.d. voru um 100% líkur á því að ég yrði tekinn því að:

  • Ég var að koma frá USA
  • Ég er karlmaður
  • Ég var með ferðatölvutösku
  • Ég var með golfkylfu (dýra)
  • Ég var eitthvað spóskur á svipinn þegar ég labbaði í gegn, ég má þakka fyrir að hafa sloppið við xray

Valdi, ég er með djobb fyrir þig sem lögfræðing, ég þurfti að þvælast alla leiðina upp í Keflavík að sækja vélina og vill að bensínkostnaðurinn, sem er hár vegna mikils mótvinds báðar leiðir (i know, sounds weird, but hey, it’s Iceland), komi til niðurgreiðslu á sektinni. Ég ætti kannski að hætta þessu væli og vera sáttur við mitt, mér skilst að þeir hefðu getað gert vélina upptæka og látið mig samt borga af háar fjárhæðir.

Dagur 16 - New York (skoðunarferðir og smá búðarráp)

Aug 21

Dagurinn átti eiginlega bara að fara í skoðunarferðir. Við byrjuðum á 2 litlum búðum og fórum svo í bókabúðir. Ég auðvitað festist í 3D/Programming/Design rekkunum og tókst eftir daginn að kaupa mér svoleiðis bækur ásamt einni stærðfræði/eðlisfræði bók fyrir rúma 300$.

Við fórum á American Museum of Natural History (sjá myndir :)), mín hugmynd og frekja auðvitað :D en þetta var eitthvað sem ég hefði ekki viljað sleppa. Sáum allskonar risaeðlubein, sögu mannsins, þróunarsögu jarðarinnar ofl ofl. Fórum svo í enn einn hátæknisýningarsalinn (síðast IMAX í Vegas) á sýningu sem heitir Cosmic Collisions, mjög skemmtileg upplifun, ekkert smá flott!

Eftir að hafa skoðað safnið stóra löbbuðum við í gegnum central park, mættum íkorna sem hljóp næstum á okkur, ekkert stressaður snúðurinn. Svo tókum við leigubíl á Ground Zero, fyrrum World Trade Center, rosalegt að upplifa þetta svæði. Eftir það gengum við í gegnum Wall street, fengum okkur starbucks(chocolate frappochino að vanda). Sjá myndina af Berglindi hlægjandi, ég ætlaði að segja eitthvað við hana og tókst að ropa svona líka hrikalega óvart á almannafæri og Berglind hló eins og ég hefði flogið á hausinn í hálku. Ég afsakaði mig svona lágt yfir staðinn, awkward :D.

Við gengum svo áfram suður og sáum frelsisstyttuna í fjarska. Eftir þetta tókum við leigubíl á hótelið þar sem við hvíldum okkur aðeins áður en við löbbuðum niður á Times Square, fórum í Virgin megastore þar sem ég hékk á stærðarinnar fræðslumynda-rekka :$
Við fórum svo á Fridays og fengum okkur að borða, engin smá hraðafgreiðsla, fengum matinn bara nokkrum mínútum eftir að við pöntuðum og vorum enga stund að þessu. Svo var ferðinni heitið uppá hótel í rólegheit. Reyndar er Berglind að pakka núna því hún ætlar að sjoppa snemma í fyrramálið þegar ég ætla að pakka. Ástæðan fyrir því er sú að á Discovery er held ég besta strákafræðslumynd sem ég gat hugsað mér, Future weapons, um vopnaþróun í heiminum og vopn morgundagsins :)

P.s. SUNNEVA til hamingju með skírnina, við kíkjum á Telmu fljótlega eftir heimkomu ;)

P.p.s ÍVAR varstu búinn að sjá þessa mynd :)
4179

Dagur 15 - New York (shopping again)

Aug 19

Myndir komnar!

Versluðum og versluðum í dag og fundum betri verslanir :)

Dagur 14 - New York(shopping)

Aug 19

shopping, shopping, shopping… Berglind var eins og litlu börnin á jólunum í morgun, ekkert sátt við mig að nenna ekki að rífa mig á fætur fyrr en kl 11 :) Hún tók bara forskot á sæluna á meðan ég var í sturtu og kom til baka með tvo poka þegar ég var búinn, veit ekki hvort það sé vegna þess að ég er lengur en verstu kellingar í sturtu eða hvort Berglind sé bara extreme shopper.

Við keyptum annars ekki mikið í dag, fórum í Bloomingdales og Macy’s, ég hef aldrei séð jafn mikið úrval af ljótum fötum :|. Boss hornið þarna sem er 2x stærra en búðin í Kringlunni og með jafn mikið af flottum fötum og ein slá í þeirri á Íslandi… ömurlegt. Hinsvegar fundum við slatta af flottum fötum í öðrum búðum, þeas dedicated búðunum. Morgundagurinn er planaður aðeins betur þar sem við skoðuðum helstu verslunarstaði á netinu í kvöld, aðra en þá sem við fórum á í dag.

Ég man allt í einu að ég var ekki búinn að kvarta yfir klórinu í ísmolunum hérna!!! Ég fór á Quiznos í L.A. um daginn og fékk (Þórða check this out) BLÓÐBÁT MEÐ KLÓRKÓKI. Málið er að þetta var einhver nautasteikarbátur og kjötið var svo illa eldað að hann var bara blóðugur og brauðið varð fljótt bleikt af blóði. Eftir nokkra bita af þessu(var mjög svangur) gat ég ekki meir og ætlaði að fá mér risasopa af girnilega kókinu mínu (var mjög þyrstur)… ég fékk meira af klóri uppí mig en ef ég hefði drukkið uppúr sundlaug, engar ýkjur!
Eftir þessa máltíð var ég alltaf að bíða eftir gaur hlaupandi fyrir hornið “You’ve been food-punk’d !”, gaurinn bara kom aldrei þannig að þetta var greinilega ekki djók.

Á flestum stöðum er ógeðslegt klórbragð af gosdrykkjunum, þeas úr vél, niðurstaðan var sú að klakarnir séu úr klórvatni og maður fær alltaf 50/50 af klóri og gosi.

Dagur 13 - Los Angeles - New York

Aug 19

Við vöknuðum kl. 5:30, vorum komin út í airport shuttle kl 6, komin inn í biðsalinn á LAX kl um 7 (fljótt checkin þrátt fyrir langa röð). Flugið var kl. 8:45 þannig að ég ákvað að eyða tímanum í röðinni á starbucks :D. Flugið sem tók um 6 tíma var eins og 2ja tíma flug, þökk sé PSP + Ipod&slúðurblöð. PSP er algjör snilld í ferðalögum, dugar í nánast 16 tíma held ég straight með auka rafhlöðu og er betri/öflugri en playstation 1. Svo er líka hægt að dæla tónlist og vídjóum inná þetta.

Þetta er í fyrsta sinn sem ég kem inní New York, engin smá borg! Hótelið okkar er mjög miðsvæðis, við gengum niður að Time square sem er rétt hjá. Þvílík ljósadýrð, gatan var eins og um hábjartan dag þrátt fyrir að það væri dimmt úti. Það sem kemur mér á óvart er að ljósadýrðin í Las Vegas er bara smáræði miðað við New York.

Dagur 12 - Los Angeles (Síðasti dagurinn hér)

Aug 17

Við ákváðum loksins að láta verða að því að keyra upp að Hollywood skiltinu, við keyrðum ábyggilega um 150 km í dag. Við fórum nokkrar mismunandi leiðir að skiltinu, í fyrstu tilraun enduðum á hliði sem lokar Bel-air hverfið frá almenningi, það var þó nokkuð nálægt skiltinu fína, við prófuðum aðrar leiðir, þökk sé GPS var ekki erfitt að finna nokkrar leiðir til að velja um. Eftir að hafa tekið nokkrar myndir af skiltinu fína fórum við á Pink’s, mjög frægur lítill pylsu/borgara-staður á horni La Brea og Melrose. Ég las einhversstaðar að það væri must að smakka pylsurnar þarna ef maður færi til L.A. Þetta er svona Nonnabiti L.A. nema engin oO kona sem hótar manni lífláti með augnaráðinu einusaman. Á veggjunum þarna eru myndir af held ég öllum hollywoodstjörnunum með eiginhandaráritunum, þetta er víst vinsælasti skyndibiti fræga fólksins.

Við komum aftur á hótelið seinni partinn og ég var með hausverk eftir of mikinn akstur í of mikilli sól. Við erum að pakka saman núna því við fljúgum eldsnemma á morgun, vonum að handklæðahausarnir sofi yfir sig svo við lendum ekki í neinum töfum ;). Snæðum síðasta kvöldmatinn hérna núna eftir smá stund, Domios pizza :D

Dagur 11 - Los Angeles

Aug 15

Fyrripartur:
Vá ég hreinlega verð að skrifa um þetta, við fórum á Ihop eins og venjulega, nema maður vill alltaf vera að prófa eitthvað nýtt. Ég fékk mér pancake með blueberry topping og svona bátasamloku, álegg: grillaður kalkúnn, cheddar, grillaður ostur ofl. Mér sýndist á konunni að hún teldi að við værum að panta allt of mikinn mat en hún sagði ekkert samt. Svo kemur þetta á borðið :| þessi hlunkabátur með bönshj af frönskum og 4 stórar bandarískar pönnukökur með flóði af sultu/sírópi og rjóma. Berglindar skammtur hljómaði uppá svipað nema minna af pönnukökum.
Í þrjósku minni náði ég að borða 80% af þessu, bara til að afgreiðslukonan sigraði ekki, og ég er að springa… Ég hef aldrei á ævinni verið svona saddur og það er eimmitt ástæðan fyrir því að ég er inni, sitjandi við borð að blogga í staðinn fyrir að vera úti í sólbaði, Meatsweat® :) eða ölluheldur pancakesweat :)

Seinnipartur:
Við fórum aftur á Hollywood Blvd og borðuðum á einhverjum ágætis stað á móti Chineese Theater, eitt af flottustu bíóum sem við höfum séð. Okkur til mikillar ánægju vorum við beðin um skilríki og að segja til aldurs þegar við pöntuðum okkar Cosmopolitan á staðnum :) Alltaf gaman að lenda í svona. Við fórum svo í bíóið á móti eftir matinn, ekkert smá flott, á stórri stétt fyrir framan bíóið hafa flestar stjörnurnar sett handafar, skófar og eiginhandaráritun í steypu, maður gat þannig sett hendurnar og skó í þeirra för :). Ég er t.d. með nánast eins hendur og Tom Hanks en MUN minni hendur en tortímandinn sjálfur, Arnold Schwarzenegger (athyglisvert að sjá hvort ég skrifaði þetta rétt).

Bíómyndin sem við sáum var Superman, um var að ræða val á milli The Descent og Superman og “við” ákváðum Superman, ég reyndar setti valið upp þannig fyrir Kanarífuglinn: Superman eða hryllingsmynd dauðans. Myndin (Súperman) var alveg með ólíkindum leiðinleg, mér fannst mjög flott nokkur atriði í henni, þeas art’ið í myndinni, allt annað var eintómt sorp og hún er 153 mínútum of löng, m.ö.o. þessi mynd átti aldrei að vera neitt annað en flottur trailer finnst mér.

Dagur 10 - Los Angeles (Six Flags Magic mountain)

Aug 15

Mestallur dagurinn fór í að bíða í biðröðum og ganga og ganga svo meira. Gangið borgaði sig þó vegna þess að við vorum stödd í rússíbana-garði! :| Nánast allir stærstu rússíbanar USA/Heims samankomnir á eitt risastórt svæði. Alveg var þetta rosalegt, við fórum samt bara í 5 rússíbana… á 8 tímum!! 60% af tímanum fór í að ganga um svæðið, 39% af tímanum fór í að bíða í biðröðum og 1% í sjálfar ferðirnar :) Þessi 1% gerðu þetta allt saman þess virði og meiraðsegja Berglind er mér sammála, hún bar fyrir sig hjartveiki til að byrja með og ætlaði kannski í einn lítinn rússíbana eða svo en varð svo bara spenntari en ég ef eitthvað var :).
Rússíbanarnir voru hver öðrum betri en einn stendur þó alveg uppúr. Hann fór strax upp í 50° halla upp, upp, upp í 100m hæð. Svo tekur við stressandi 2 sekúndna bið þar til hann fellur beint niður á 140 km hraða og ofan í undirgöng… og það var bara byrjunin, sjá nánari lýsingu
Ég fékk minn candyfloss að sjálfsögðu :) ásamt funnelcake, sem er svona djúpsteikt deig með flórsykri og súkkulaðisírópi… osum :).  

Við förum til New York á fimmtudaginn og svo heim eftir viku, áætluð heimkoma er 22. ágúst. Vitleysingarnir frá miðausturlöndum gera okkur flugið leitt því nú má ekki vera með neinn vökva né handfarangur með sér, ekki einusinni ipods eða PSP ! :| Má ekki fara að líða að annarri krössför kristinna manna um heiminn? …endurvekja spænska rannsóknarréttinn og kalla allt sem kemur múslimum við galdra :)

Dagur 9 - Los Angeles (Sólbað og Hollywood blvd)

Aug 15

Við vöknuðum uppúr kl 10, fengum okkur morgunmat á Ihop eins og venjan er núorðið og lágum svo bara í sólbaði í sundlaugagarðinum. Gaurinn sem á þetta hótel er með einhverja sjúklega smáhundaþráhyggju, við sundlaugina er risastór hundamynd, sama á við um alla ganga og móttökuna. Mjög spes. Eftir að hafa grillað okkur allan daginn í sólinni keyrðum við uppí Hollywood (20 mín), ætlunin var að prófa eitthvað af þessum alvuru bíóum. Við lögðum á einhverju svona huges bílastæði stuttan spöl frá Hollywood blvd (blvd:boulevard:breiðstræti) og eiginlega skokkuðum að næsta bíói þar sem klukkan var orðin 8 p.m.(20) og á sunnudagskvöldum er síðasta sýning kl. 20. Þetta bíó sem við völdum sýndi bara Pirates of the carabean II sem okkur fannst nokkuð undarlegt þar til við komum inn í gegnum miðasöluna. Allt bíóið er innréttað í stíl myndarinnar og alvuru leikmunir úr sjálfri myndinni voru á víð og dreif til sýninga. “Tvú pebsiz end som poppkourn pliz” sagði ég á amerískunni við afgreiðsludömuna. Einn skammtur af poppi hérna nægir í heilt barnaafmæli get ég sagt ykkur, meiraðsegja ég sem venjulega hef metnað fyrir klára alla skammta gat ekki einusinni klárað helminginn, hvað þá Berglind kanarífugl :).
Eftir myndina, sem var bara fínasta ræma, skoðuðum við eitthvað af Kodak Theater (þar sem Óskarinn er haldinn skilst mér). Engin smáræðisbygging :| Við sáum líka Chineese theater og ákváðum að við ætlum að fara þangað á morgun eða hinn.

Btw, gaman að sjá hvað margir eru að fylgjast með ferðasögunni og commenta :) Get trúað því að það sé hundleiðinlegt að lesa þetta heiman frá og legg því til að við komum okkur saman hópur um að stefna á roadtrip um USA einhverntímann næstu árin áður en FERTUGSALDURINN gengur í garð.