Ívar poppar upp hér og þar
Sep 29
Ég tók mynd af götu í hollywood sem heitir Ivar, svo rakst ég á þessa síðu http://www.ivars.net/ fyrir einskæra tilviljun.
Nokkuð magnað, Íbbi nafnið þitt er í útrás.
Sep 29
Ég tók mynd af götu í hollywood sem heitir Ivar, svo rakst ég á þessa síðu http://www.ivars.net/ fyrir einskæra tilviljun.
Nokkuð magnað, Íbbi nafnið þitt er í útrás.
Sep 29
Jæja á föstudögum eiga menn til að brávsa netið meira en eðlilegt þykir og þá oftar en ekki horfa á fyndin myndbönd ofl.
From now on ætla ég að setja það helsta hingað inn undir flokknum Föstudagshangs.
Rednecks í canada teknir í reisgeitið (Haffi sendi þessa)
Slow motion myndataka af byssukúlu, heví kúl
Stærðarinnar padda í Þýskalandi, í raun padda sem flæktist með í scanni á myndinni (stærðfræðiBjarki )
Athyglisverð og eflaust sársaukafull leið til að draga bíla
Tónlistarmyndband með Zlad, sound er must
(Haffi/Simmi)
Borat !! mynd sem maður verður að fara á í bíó (Fyrri hluti) (Seinni hluti) (Frétt á vísi)
Sep 28
Ok,
I’ve just got to get this out of my system… ég horfði á America’s Next Top model í sjónvarpinu í gær. Ég get samviskusamlega fullyrt að mig hefur aldrei langað til að lemja konur, nema þrisvar:
Öll skiptin stóðst ég þó mátið og lét ekki greipar sópa
enda lemur maður ekki konur… fyrr en þær ná fram fullkomnu jafnrétti kynjanna
EEEEEEN ef ég væri á tökustað America’s Next Top Model þá myndi ég hiklaust lemja þær allar þar til þær myndu sættast á að hætta að vera svona óbærilega heimskar og vitlausar. Það á þá sérstaklega við um nokkrar þeirra og ber þá helst að nefna þessa she-male legu með kynnbein á við Arnold sjálfan Svartnegger. Bara það að heyra hana tala ískrar alveg í mínum fínustu pirrtaugum, hún kemur ekki upp orði án þess að segja SSSSSS báðum megin orðsins.
Og þar sem ég er nú að pirrast út í þennan þátt þá skil ég ekki eitt. Ég sá einn þátt af Australia’s Next Top Model, þar voru bæði fallegar og eðlilegar stelpur. Í þeim Ameríska eru bæði ómyndarlegar og skíheimskar stelpur, að nokkrum undanskildum. Þessir dómarar líka… allt drasl fyrir utan þennan ljósmyndaragaur, Nigel ef ég man rétt, hann virðist vera með sitt á hreinu.
Sep 19
Ég veit ekki hversu oft ég er búinn að horfa á þetta myndband (síðasta blogg). Hvort það sé lagið sem er svona helvíti gott, myndbandið, hvað aðalleikonan er eitthvað svo spes falleg(dæmi um skandínavíska fegurð
eins og einhver sagði) eða bara allt saman. Svo verð ég að bæta því við, eins gay og það hljómar, að hárið á henni er bara helvíti flott þó það sé alveg aflitað, spurning hvort maður fái sér ekki bara hvítt hár í klippingu á eftir


Vá smá edit! Mér fannst þetta svo ólíklegt að ég þurfti að grafa þetta betur upp, allir eru að tönnlast á því að þetta sé lizzie grubman en í rauninni er þetta norsk stelpa sem heitir Marianne Schroeder. Merkilegt, hlaut líka að vera.
Mér til mikilla vonbrigða er þessi stelpa, að nafni Lizzie Grubman ekki baun falleg venjulega og er apparently stórkrimmi og vandræðabarn. Ég hefði líka haldið að hún væri álíka gömul og ég en hún er 71 módel. Þetta vefst svolítið fyrir mér, hvernig getur verið svona rosalegur munur á manneskju á tveimur myndum (þeas borið saman við myndir í tenglinum við nafnið hennar)? Auðvitað eru til góðar og slæmar myndir af öllum og oftast mikill munur á þeim en fyrr má nú vera. Ekki svo eins og þetta sé photoshopp’að því það er nánast ekki hægt í svona myndböndum. Hún er líka algjörlega ómáluð í myndbandinu þannig að ekki er hægt að kenna sminkinu um þetta.
Vil jafnframt benda á að þetta er ekki söngkona The Knive heldur bara eitthvað módel, söngkonan kemur þó fyrir í myndbandinu, sitjandi við borðið í prestsfötum.
Sep 15
Röyksopp(Norsk) og The Knife(Sænsk). Ótrúlegt hvað þetta er lítið spilað hérna á Íslandinu, eins og þetta er nú vinsælt í hinum norðurlöndunum. Stofna bara útvarpsstöð og endurvekja musik.is.
Hér er myndband með lagi eftir Röyksopp þar sem söngkonan í The Knife syngur, good stuff i must say
Sep 14
Ok, nú þegar heilsufríkurnar á borð við Vibbsí og frænku mína Siggu tala ekki um annað en að maður eigi að borða spelt í staðinn fyrir hveiti hvenær sem tækifæri gefst getur maður nú varla annað en tekið smá mark á því. Eini gallinn er að þegar ég heyri orðið spelt fæ ég mynd af einhverjum viðbjóði í hausinn á mér. Hollt == Viðbjóðslegt, right? WRONG, ég var í 1011 áðan að kaupa mér morgunmat þegar ég rakst á þessar girnilegu “kökur” sem eru speltheilsufæði, hálfgerðar eplabökur og ávaxtabökur.
Auðvitað er þetta(eplabakan) ekkert 100% hollt en mun hollara en vörur úr hveiti. Sjá grein á heilsa.is og á kornax.is. Það besta er að ég finn engan mun á þessu og “venjulegum mat”, þannig að ef maður getur skipt út óhollustu fyrir hollustu án þess að tapa t.d. góðu bragði osfrv. þá gerir maður það vitanlega.
Sep 14
Já ég veit að fyrirsögnin hljómar svolítið eins og Krissi og Villi myndu orða “rca í jack fleisað um xyz hnit í veldinu e = mc2″.
Þetta er fítus í gluggakerfunum í linux, mjög nifty if you ask me :), ég hvet fólk sem vinnur við tölvur allan daginn til að skoða þetta og sjá hversu mikið þægilegra væri nú að kunna bara á Linux
Reyndar eru margir komnir með “Makka” og ég veit ekki betur en að þetta sé til nú þegar fyrir slíkar tölvur.
http://youtube.com/watch?v=Rj3UPnriIxc
Sep 11
Jæja… Þessi fína brúnka sem ég var búinn að safna mér á ströndum Californiu er smátt saman (merkilega hratt) að deyfast í þennan gráa aríska lit
Næsta tækifæri til að ná einhverjum lit er næstum eftir 1 ár, þökk sé þessum klaka sem við búum á þar sem sjaldan sést til sólu.
Margir taka uppá því að stunda ljósabekkina grimmt til að þurfa ekki að líta út eins og alnæmissjúklingur á lokastigi 9 mánuði á ári. Þessu fylgir mikil hætta á húðkrabbameini og til eru dæmi um fólk sem hefur fengið húðkrabbamein með aðeins örfáum ljósatímum, ekki áhætta sem maður ætti að taka umhugsunarlaust. Annar möguleiki er að fara í þessa brúnkuklefa sem sprauta á mann brúnku. Ég hef ekki prófað þetta en get ímyndað mér að þessi brúnka sé óraunveruleg og jafnframt fljót að fara(ahh… friends þátturinn með Ross :)). Þriðji möguleikinn er að finna sér gott metro brúnkukrem fyrir karlmenn
Again, yfirleitt sést þegar menn eru með brúnkukrem og gerir það bara illt verra. Persónulega finnst mér síðasti kosturinn þó skástur af þeim þremur.
Þá komum við að öðru máli, margir eru á því að karlmenn sem nota brúnkukrem eða brúnkulit séu bókstaflega skínandi af gayness. Ég get ekki verið annað en ósammála þessu því því ef það er gay að nota brúnkukrem eða eitthvað í þeim flokkinum þá er klárlega gay að fara í ljós eða liggja í sólbaði í því skyni að “tan’a” sig því tilgangurinn er sá sami í báðum tilfellum. Ég hvet þá sem eru mér ósammála að commenta á þetta með rökum.
Óneitanlega er þvílíkur munur á manni næpuhvítum og með góðri sólarbrúnku, í flestum tilfellum svo mikill að oft mætti halda að um 2 ólíkar manneskjur væri að ræða. Ég legg til að við komum hvítum lit aftur í tísku eða finnum einhverja heilbrigða leið til að viðhalda raunverulegri brúnku á einfaldan hátt.
Sep 08
Ég hef fundið candidat fyrir titilinn þrjóskasti hundur heimsins. Þessi hundur sá broddgölt og ákvað greinilega að hann myndi frekar dauður liggja en að hætta að böggast í honum. Annað orð yfir svona er retry-hóra ![]()
Broddgöltur(inn)
Venjulega þætti mér þetta ekki fyndið en það var enginn sem gerði honum þetta nema þrjóskan þannig að þetta hlýtur að teljast fyndið ![]()
Sep 07
AHA! Mig hefur svo lengi langað að blogga um þetta
Hlustiði á útvarpsauglýsinguna hjá Brimborg:
“Ööööööuuuruggan staaaaaað til að vera aaaáaaaaú…”
og allt í lagi með það en ég get ekki mögulega annað en heyrt:
“Höööööfum engan staaaaað til að vera ááá”
sem er auðvitað mjög fyndið, heyrist þetta ábyggilega vegna þess að sú sem syngur þetta syngur “höfum” bara svona… tja asnalega
Takið eftir þessu þegar þið heyrið þessa auglýsingu næst, once it’s in your head you can’t get it out ![]()