Search

Rss Posts

Rss Comments

Login

 

Posts from October, 2006

Women - know your limits

Oct 19

Vá hvað þetta er fyndið :) …EN áður en kvenremburnar byrja ræðuhöldin skal tekið fram að þetta er grín

London - Dagur 5 & 6

Oct 17

Ég verð eiginlega að klára það sem ég byrjaði á þó að ég sé kominn heim. Eftir vinnu á degi 4 fór ég rakleiðis í verslunarleiðangur og tókst að versla mér þónokkuð í Niketown og Virgin superstore. Eftir leiðangurinn kíkti ég í Baug grúpp til Hödda og Óla sem stefndu á allnighter uppí vinnu, bara hliðargata af Oxford street þannig að þetta var ekki langur gangur. Höddi pantaði einhverja huuuuuuuuuges burgera sem aldeilis stóðu fyrir sínu.

(Dagur 5) Gísli og Bjarki áhættustýringapjakkar voru mættir út á ráðstefnu og planið var að ganga um miðbæinn um kvöldið og fá okkur eitthvað gott að borða. Þar sem Bjarki hafði búið í London nokkuð lengi á meðan hann var í námi var um ókeypis, góðan leiðsögumann að ræða. Við hittumst á piccadilly sirkus (ef ég man rétt), þeas hjá “Times square Londonar” eins og ég vil kalla það. Við borðuðum á einhverjum snilldar pizzastað og fundum ágætis pöbb eftir á þar sem við sötruðum bjór (ég auðvitað Guinness) fram að miðnætti.

(Dagur 6) Morguninn eftir vaknaði ég snemma enda ætlaði þurfti ég að tékka mig út af hótelinu og þar að auki ætlaði ég að klára snemma, vegna þess að:

  1. Ég var á undan áætlun með flest í vinnunni þannig að ég gat leyft mér það :)
  2. Ég átti eftir að verslast aðeins meira
  3. Nennti ekki að standa í stressi í lestarkerfinu fyrir flugið

Þegar ég kom upp í vinnu, kl 9 á staðartíma, 8 á íslenskum, byrjaði vesenið. Netið var ekki að virka, eða amk var það mjög hægvirkt. Þar að auki gat ég ekki tengst Glitni á Íslandi. Ég hringdi heim í Glitni til að spyrja hvað gæti verið að og þá hafði rafmagnið farið af vegna mistaka hjá viðgerðargaur. Rafmagnsleysið varði þó ekki nema í sekúndubrot en var þó nóg til að einhver þurfti að ræsa aftur tölvuna mína heima svo ég kæmist inná hana. Um það leiti sem ég hélt að allt væri að blessast og að ég gæti byrjað að vinna kom Shane með þau sorgartíðindi að einhver gröfu-/viðgerðargaur hefði óvart grafið í sundur ljósleiðarann(nettenginguna) fyrir allt hverfið og því væri netið keyrandi á hægvirkri old school nettenginu. Eftir þessi tíðindi var ljóst að ekkert var hægt að gera þennan daginn, sem ég harmaði mjög, hvað er leiðinlegra en að fá heilan dag útaf fyrir sig í London? :)

Skondið líka að á nákvæmlega sama tíma í 2 mismunandi löndum, hafi tveir viðgerðarmenn staðið vandræðalegir úti á bílaplani, báðir 2 að valda mér veseni og báðir 2 mjög hugsanlega að fara að vera dreknir(as in fóstbræðrum the tv show).

Ég vann þó fram að hádegi við það sem ég gat án nettengingar og fór svo með lestinni beint niður á Oxfordstreet og verslaði, keypti m.a. 3 skópör í Niketown og 1 í Aldo, eins og versta gella. Hitti svo Bjarka í svipuðum erindum sem sýndi mér svo aðra virgin megastore búð þar sem ég náði mér í nokkra dvd og leiki. Ég fékk mér jafnframt Sehnnheiser headfónin sem eyða bakgrunnshljóðum. Ég sá svona hjá Hödda 2 kvöldum áður og varð bókstaflega að fá mér svona. Þetta eru ótrúlegar græjur, eyðir um 80% af umhverfishljóðum þegar maður er með þau á sér, t.d. í flugvélum losnar maður að mestu leiti við þetta leiðinlega suð í hreyflunum og allt skvaldur í flughöfnum hverfur!

Eftir leiðangurinn fór ég með allt draslið uppá hótel þar sem ég var í hálftíma í lobbýinu að troða dóti í þessa meðalstóru ferðatösku sem ég hafði tekið með mér. Ég tók ekki stóra með mér því ég hafði ekki hugsað mér að versla neitt úti, good thinking there! Ég hélt svo fótgangandi uppá Paddington station þar sem ég fór með lest niður á Earl’s Court þar sem ég tók Piccadilly line að terminal 1,2,3 stöðinni á Heathrow. Lestarferðin tók svona 40 mínútur en mér til mikils léttis var röðin að afgreiðsluborðinu mjög stutt og ég var rétt um 5 mín að tékka mig inn. Ég fór með 14 kíló út en úttroðna töskugreyjið var nú orðið 22 kíló. Afgreiðslustelpan var ekkert að kippa sér upp við þessi 2 kíló, blikkið mitt hlýtur að hafa virkað.

Ég fékk sæti við hliðina á gömlum breskum kalli. Mér leist nú ekki á blikuna og eftir að hafa staðið í svaka olnbogarýmisslagsmálum við hann í 5 mínútur ákvað ég að færa mig bara í miðjusætið hjá Gísla og Bjarka sem sátu í sætunum við hliðiná mér. Þeir voru búnir að tala um eitthvað spil sem átti að vera svo skemmtilegt sem heitir gúrka (nei ekki sama spil og idiot). Ég var eins og venjulega með alla tækjaflóruna með mér í handfarangri: Ferðatölvu, PSP og haug af leikjum, IPod, tæknilegustu headfone í heimi, ofl. Þrátt fyrir þetta notaði ég ekki neitt af þessu því þetta spil, Gúrka, var svo skemmtilegt að við vorum í því allan tímann frá flugtaki að lendingu án þess að átta okkur á því hvað tíminn leið hratt. Við vorum nánast reknir út úr flugvélinni því við þurftum að klára keppnina.

Ég var svo vitanlega tekinn í tollinum, gæjinn ætlaði heldur betur að bösta mig þegar hann sá ferðatölvuna og allt draslið í gegnumlýsingunni. Samtalið var svona: “Ertu með ferðatölvu í töskunni? -Já. Er þetta ný tölva? -Já. Keyptirðu hana úti? -Já …een þið böstuðuð mig með hana síðast þegar ég fór út þannig að ég er með svona miða á henni. Má ég sjá hann? -Sure. Ok, en þessi ipod? -Hann er eldgamall, ipod photo. Ok, free to go.” 

London - Dagur 4

Oct 11

Núna er dagur 4 hérna, ég skrifa alltaf um miðjan dag hvað gerðist í gær þannig að þetta ætti að vera dagur 3 - 3,5 :)
Í gær stóð til að kíkja í verslanir en District lestarkerfið datt niður af einhverjum sökum, mig grunar að talíbanar hafi verið að verki. Ég var því einn og hálfan tíma á leiðinni heim og þegar ég kom úr sturtu var klukkan orðin 18:50 og ég komst af því að búðirnar loka flestar kl 19 þannig að ég ákvað að fresta þessari verslunarferð. Höddi og Óli djonnson buðu mér í mat, kjúklingur í súrsætri sósu og meððí, Bjór með og hlaupsnuddur í eftirrétt. Eðaldinner i must say, Óli er góður kokkur, ég hef líka lítið annað éti hérna en skyndibita þannig að þetta var góð tilbreyting og ekki fer ég að sitja einn yfir bjórdrykkju.

Við glöptum á TV’ið eitthvað frameftir, horfðum m.a. á þátt um menn sem höfðu keypt sér dúkkur fyrir eiginkonur. Mjög raunverulegar og um 60 kíló. Þetta er einhver mest freaky þáttur sem ég hef séð. Eitt atriðið var t.d. þegar gaurinn sem var að stjórna viðtalinu bað viðmælandann um að sýna sér “konuna” sína, þeir gengu upp stiga, inn í herbergið hennar og þá sagði gaurinn, “no sorry, she’s still asleep, let’s check later”. Þá fékk ég svona geðsýkishroll. Svo þurfa gæjarnir að senda þær reglulega í viðhald, skipta um vagínu og stífa útlimina. Dúkkuviðgerðargaurinn var líka mjög nasty, vann allt með berum höndum, þeas við að skipta út úrsérgengnumhlutum á dúkkunni, þið getið ímyndað ykkur hvaða hlutir það eru. Eftir viðbjóðinn ákvað ég að leyfa þessum vinnuhundum að vinna eitthvað fyrir svefninn og fékk American psycho lánaða, classic, Batemann er idolið mitt. Fór heim í leigubíl og DAJÖFULL eru leigubílarnir hérna dýrir, mun dýrari en á Íslandi, þessi leið kostaði um 1000 kr!

London - Dagur 3

Oct 10

Þegar vekjaraklukkan hringdi í morgun tók ég þá skynsamlegu ákvörðun að sofa 45 mín lengur en að drullast á lappir og í sturtu. Þ.a.l. er sjoppulegheitadagur hjá mér í dag, þó ég sé í jakkafötum, ég er hvítari en allt, órakaður og með úfið hár. Eins gott að ég er hérna með mitt eigið office :) SEM BY THE WAY er stærra en hótelherbergið mitt! Þannig að ég fæ að vera sjoppulegur hérna í friði. Fékk mér svo smoky beef bbq kvisnós, vá hvað hann er góður, ég ætla að stofna undirskriftarlista fyrir því að hann verði til boða á Íslandinu.

Annar góður vinnudagur er nú að baki, loksins fær maður frið til að vinna við EITT verkefni í stað svona 10 í einu, munar engu smá. Ætlunin er að flýta sér heim með lestinni áður en allt verður kreisí troðið, sturta sig upp, setja upp andlitið og hairdúið og hommast niður á Oxfordstreet og kíkja m.a. í Nækítown(Nike Town). Þar sem ég er búinn að vera að svekkja Berglindi með þessu datt mér í hug að ég gæti nú keypt á hana skó í sárabætur en þá varð ég hræddur um eitt…. Ekki það sem flestir myndu halda, að karlmenn geta ekki valið skó á konur, heldur eru ágætis líkur á því að Berglind eigi þá alla nú þegar!

London - Dagur 2

Oct 09

Ég vaknaði kl 8, klæddi mig í jakkafötin, setti upp bindið og pússaði skóna, reddí fyrir þessa 35 mín lestarferð frá Paddington til Wimbledon. Ég gekk út af hótelinu og hélt í þá átt sem ég taldi líkleg átt til Paddington lestarstöðvarinnar. Þeir sem mig þekkja vita að ég er yfirleitt of þrjóskur til að spyrja strax til vegar, frekar að gera það þegar illt er orðið í efni :D. Ég reyndar rataði, því ég mundi eftir loftmynd af staðnum af google maps og mundi hvar þetta var út frá hyde park. Ég fór í lestina til Wimbleton, skipti í Earl’s Court yfir í lestina til Upeitthvað til að komast til Westminister. Þegar þangað var komið leit ég á kort sem einn af mönnunum sem beið mín hérna hafði teiknað fyrir mig á Íslandi til að rata. Þar sem hann hafði teiknað “White building” horfði ég á sjálfa Big ben. Auðvitað hugsaði ég strax með mér að maðurinn væri algjörlega ófær í kortagerð og að ég þyrfti bara að labba þarna um allt pleisið til að finna þessa hvítu byggingu. Eftir 40 mínútna leit og meiraðsegja búinn að reyna að fá lögregluþjón til að botna í kortinu fyrir mig, sem hann(hún) gerði ekki, hætti mér að lítast á blikuna og hringdi í starfsfélaga minn Bjarka sem tjáði mér að þetta væri í Wimbledon, EKKI í Westminister.

Ég áttaði mig þá á að ég hafði ruglað þessum “líku” orðum saman í hausnum í morgun og farið í 30 mín lestarferð í hina áttina frá staðnum sem ég átti að fara til, sem leiðir mig að því að ég átti þá, sveittur, svangur og með hælsæri, eftir að ferðast í klukkutíma með lest suðvestur. Loksins komst ég á leiðarenda og verkefnastýran Telma var orðin mjög stressuð yfir að mér hefði verið rænt en gaurunum hérna datt í hug að ég hefði kannski farið á pöbbarölt í gær og til að ýta undir þá kenningu er ég með kvef og með þessa svaka viskírödd :)

Vinnan gekk svo vel í dag, nóg að gera, ætla að fara að drífa mig heim í lest núna og fá mér eitthvað að éta, mengið er {KFC, McDonalds, Quiznos}. Ég veit svo ekki hvað ég geri í kvöld, kíki kannski á Hödda sem býr rétt hjá hótelinu mínu, svona svo ég fái ekki innilokunarkennd. Ég hef amk ekki neitt að gera í þessu litla hótelherbergi, tými ekki einusinni að fara á þráðlausa netið því það kostar 1000 kall klukkutíminn!!

 

London - Dagur 1

Oct 09

Mjæja, ég er farinn í vinnuferð til London og er þetta jafnframt jómfrúarlondonferðin mín :) m.ö.o. hef ég ekki komið til London áður. Þegar ég kom í fríhöfnina þá tók ég strax eftir því að úglandafiðringurinn lét ekki á sér kræla, annarsvegar vegna þess að fríhöfninni hefur verið breytt, hinsvegar vegna þess að ég var að ferðast einn til útlanda, í fyrsta sinn. Já fríhöfninni hefur verið breytt þannig að hún er núna jafn ömurleg og þessar í hinum löndunum, dull biðsalir með svona litlum leiðinlegum verslunum út um allt (fyrir utan auðvitað þessa gömlu góðu sem maður tekur alltaf góðan hring í), meiraðsegja skemmtilegi matsalurinn þarna er horfinn :(.

Flugið var stutt, rétt um 2 tímar, þurftum reyndar þar að auki að hringsóla yfir Heathrów í 30 mín vegna umferðar. Ég var eldsnöggur að finna dótið mitt og koma mér niður í lest. Eftir talsvert vesen á vísakortinu (bilaður örgjörvi kom síðar í ljós) tókst mér að ná mér í vikupassa fyrir lestarkerfið. Lestarkerfið er ekkert voðalega flókið, ég var nokkuð fljótur að átta mig á því að ég tók bláu lestina til Earl’s Court og skipti þaðan í “District Line”(græn) til Paddington. Ég dó úr hlátri í fyrri lestinni þegar ég sá skilaboðin “Train is for cockfosters” skína á öllum skilaboðaskjám lestarinnar. Þetta minnti mig auðvitað á Simma og Lordinn sem við vorum með á repeat yfir 2. önnina í HR í 434 (todo: linka í lordinn).

Þegar ég kom á Paddington station sem er lestarstöðin rétt hjá hótelinu mínu veifaði ég leigubíl. Eftir að hafa hoppað inn sagði ég bílstjóranum hvert ferðinni var heitið og hann tjáði mér að það væri nú bara hérna rétt handan við hornið. Fljótlega áttaði ég mig á að ég var ekki með neina breska mynt og því bað ég hann um að fara með mig á næsta hraðbanka. Þegar þangað var komið hélt visa vesenið áfram og ég kom til baka tómhentur í bílinn en lofaði honum 10 evrum fyrir ómakið. Hann ætlaði nú bara að gera þetta frítt en við áttuðum okkur á því að hótelið gæti skipt evrunni minni í pund. Ég hljóp inn til að skipta en ég þurfti að tékka mig inn fyrst til að afgreiðslumaðurinn gæti skipt fyrir mig. Tékk’in’ið tók sinn tíma því vísa kortið mitt var bilað og ekki veit ég PIN númerið á nýja mastercardinu mínu né debit kortinu. Hann gat þó rukkað vísa kortið mitt á gamla mátann og allt endaði þetta vel nema fyrir greyjið leigubílstjórann sem hafði tekið 30 mínútur að fara með einn aula um 300 metra.

Ég fór upp á 3. hæð með lyftunni og gekk inn um þrönga litla stigaganginn að herberginu mínu. Mér brá nokkuð þegar ég opnaði hurðina því við mér blasti 10 fm herbergi. Ekkert smá lítið! Sjónvarpið hafði heldur ekki uppá miklu að bjóða, bara fréttastöðvar og svo 2 rándýrar klámstöðvar með svörtu yfir þar til maður borgar big bucks. Ég var nú ekkert að stressa mig yfir þessu því ég tók nú með mér nokkrar bíómyndir og svona á ferðatölvunni, þá var bara að tengja tölvuna og leggjast uppí rúm og éta room’serviced samloku og límonaði. Nú fyrst var Eddi pirraður, pokinn með fríhafnarnamminu, London Guide PSP “leiknum” og innstungumillistykkjunum hafði gleymst í leigubílnum og þegar þetta er skrifað hefur ekkert af honum spurst. Ég tók aftur gleði mína þegar mér var litið á eitt hornið á herberginu. Það hafði uppá 2 innstungur að bjóða, báðar jafn furðulegar, önnur þeirra eins og þessar heima nema með svona pinna út úr í miðjunni. Svo skemmtilega vill til að innstungan á ferðatölvunni minni gerir ráð fyrir svona bjánaskap með því að hafa holu í miðjunni á sér (secondary jarðtenging). Eddi gat s.s. étið samlokuna sína yfir Terminator 2(classic :) ) og sofnað sáttur.

Vekjaraklukka sem er fífl

Oct 02

Vekjaraklukkan mín er gædd þeim einstaka hæfileika að geta stillt sig sjálf. Yessir, hún nemur langbylgjusendingar, frá að ég held Þýskalandi, og stillir sig eftir þeim svo að hún haldist rétt no matter what. Ég held þó að einhver hafi skitið á sig við þróun þessarar vekjaraklukku og ekki hugsað dæmið til enda, því vekjaraklukkan á það til að stilla sig ýmist 1 tíma aftur í tímann eða 2 tíma fram í tímann.
T.d. vöknuðum við Berglind í morgun kl 6 og vorum farin að klæða okkur þegar við áttum okkur á að klukkan var ekki 8 heldur var hún 6! Reyndar var þetta mjög sweet því fátt er betra en græða 2 tíma í svefn á morgnanna. Hitt er þó verra, þegar hún stillir sig 1 tíma aftur í tímann! Um daginn vaknaði ég kl 8 haldandi að klukkan væri 7 og að ég hefði nægan tíma áður en ég þyrfti að ver mættur í vinnu kl 8:00… Eftir hálfa skál af serjósi leit ég á eldhúsklukkuna og var þá ljóst að klukkufjandinn hafði svikið mig.