Search

Rss Posts

Rss Comments

Login

 

Posts from November, 2006

Thank you!

Nov 27

Var að grafa upp gamla snilld, fínt fyrir jólin :)

Myndir fyrir greinina að neðan!

Nov 22

Jæja ég er kominn með nokkrar myndir sem áttu að fylgja þessari grein. Ég myndi segja að það væri nauðsynlegt að lesa hana fyrst en hér eru þær í réttri röð:


Byrja að moka

1. Byrja að moka

og meira ...

2. og meira …

Flugbrautin tilbúin, nú er að taka tilhlaup með 4 að ýta

3. Flugbrautin tilbúin, nú er að taka tilhlaup með 4 að ýta

Tókst!

4. Tókst!

Egill býr sig undir að labba heim í snjóstormi sem var nýskollinn á

5. Egill býr sig undir að labba heim í snjóstormi sem var nýskollinn á

Löggan að draga mömmu

6. Löggan að draga mömmu

Urðum úti í nótt!

Nov 19

Gærnóttin var rosaleg. Við vorum svona 7 manns í hang-out’i hjá Gunna og co á Garðastrætinu til rúmlega 6 í morgun. Krissi kom svo hress beint af djamminu með 3 petsur og kók, hann ætlaði að næla sér í far heim þar sem hann nennti auðvitað ekki að standa í leigubílaröðinni, enda snjóstormur úti. Við stóðum allir úti í glugga að mönshja pítsurnar og horfðum á nokkra bíla ásamt 2 rútum fullum af ferðamönnum festast á gatnamótunum fyrir neðan. Einn og einn pöddufullur kraftajötuns wannabe átti leið hjá og taldi sig geta ýtt annarri rútunni með hægri og með bjórinn í þeirri vinstri. Loksins klárðuðum við matinn (Krissi fær props fyrir að koma með mat) og ákváðum að drulla okkur heim. Ég, Gunni, Egill, Börkur og Krissi lögðum af stað þangað sem ég lagði bílnum…

Eftir að hafa gengið í snjó upp fyrir hné í svona 5 mínútur fundum við loksins bílinn, á KAFI í snjó. Ég hafði verið svo sniðugur þegar ég lagði af stað fyrr um kvöldið að taka með mér skíðaúlpu og lúffur þannig að ég fékk það hlutverk að moka ofan af bílnum með höndunum. Þegar uppgreftri á bílnum var lokið var næsta mál á dagskrá að bakka bílnum út. Hann komst um 2 metra. Við byrjuðum að moka fyrir aftan bílinn, með fótum og höndum, skítkaldir. Eftir 10 mínútna mokstur hófst næsta tilraun við að bakka bílnum út. Það tókst með 4 að ýta en eftir það erfiði horfðum við niður 100 metra langa kaflann sem við áttum eftir að koma bílnum til að komast á rutt svæði. Svartsýnin helltist yfir menn en í þrjósku minni krafðist ég þess að við myndum bara moka og moka.
Við ruddum 100 metra langa götu með um metersdjúpum snjó og eftir klukkutíma af blóði, svita og tárum hafði okkur tekist að mjaka bílnum út. Krissi tók nokkrar kodak-moment myndir af þessu, enda alveg ótrúlegt afrek. Krissi fær reyndar mínusstig fyrir að röfla allan tímann um að hann hefði átt að taka leigubíl og að þetta væri alveg hopeless, i don’t blame him though, bíllinn er á 17″ low profile sumardekkjum sem renna betur í snjó og hálku en skíði! Til mikils léttis kom svo í ljós að nánast enginn fékk leigubíl þessa nóttina vegna ófærðar og hægagangs þannig að þetta var okkar eina von um að komast heim.

Jæja, þegar út á rudda veginn var komið gátum við keyrt niður Garðastrætið og loks út á Sæbrautina. Við fórum yfir rauð ljós enda enginn bíll nálægur og ef við myndum stoppa þá þyrftu menn að hoppa út og ýta af stað aftur. Gunni hoppaði út á smá ferð þegar við komum að Skúlagötu, ekki hægt að stoppa :). Nú þurftum við að aka alla leiðinna upp í Ártúnsholt með Krissa röflara, á 40 km hraða tókst okkur að komast uppá brúnna hjá Ártúnsholti þar sem Krissi hoppaði út. Þar sem við stoppuðum og gatan lá örlítið upp í mótið var ekki möguleiki fyrir okkur að komast áfram. Ég tók því hollywoodstyle snúning á bílinn og hóf keyrslu á móti umferð með hazard’inn á að mislægu gatnamótunum, yfir þau og niður í ártúnsbrekkuna. Þetta var ágætis stress enda um mjög stór gatnamót að ræða og við á móti umferð en okkur tókst að komast á rétt ról og settum stefnuna á Garðabæinn þar sem Börkur ætlaði út. Ferðin gekk vel fyrir sig þar til við komum inn í Garðabæinn, þá skall á blinda (skafrenningur) og við festumst aftur. Við stukkum 3 út og fórum að ýta á meðan bíllinn var í hlutlausum. Það gekk vel, Börkur gekk svo bara heim þaðan og við Egill héldum áfram för okkar til Hafnarfjarðar.

Nú hafði ferðin tekið um 2 og hálfan tíma og loksins komum við að fyrsta hringtorginu í Áslandinu, EINA sem var eftir var um 600 metra löng, brött, ótroðin brekka. Eftir að hafa komist þetta langt á eins illa búnum vetrarbíl og hægt er að hugsa sér þá stóðumst við ekki mátið en að reyna. Við festumst auðvitað strax og vorum í klukkutíma 2 að ýta bílnum til baka sömu leið. Bíllinn virtist ætla að festast alveg á lokasprettinum. Við það kom einn gaur á okkar aldri sem ætlaði sömu leið og hjálpaði okkur að komast þessa svo metra sem eftir voru. Loksins komumst við út á hringtorgið aftur (sem var rutt) og klukkan orðin 9. Við keyrðum niður að Essó stöðinni í við Setbergið í Hafnarfirði og auðvitað var ekki hægt að fá leigubíl ásamt því að úti var blindbilur og skafrenningur. Mamma hringdi og sagðist vera pikk föst neðst í götunni hjá okkur og væri að bíða eftir hjálp frá löggunni. Ekkert annað var hægt í stöðunni fyrir okkur Egil en að labba heim. Egill var góður, var ekki með neina húfu eða hettu þannig að hann vafði hausinn með sárabindi sem hann tók með fyrir öklann á sér :) Við fórum út úr bílnum og lögðum af stað fótgangandi til okkar heima. Eftir langa…langa göngu(um 2-3km) í strigaskóm tókst mér loksins að komast á leiðarenda. Þess skal getið að ég var með skíta hálsbólgu og kvef fyrr þetta kvöldið.. nú held ég að ég sé kominn með berkla!!

Þegar heim var komið greip ég skóflur og gekk svo niður götuna að bílnum hennar mömmu þar sem hún hafði nú setið í yfir klukkutíma á kafi í snjó. Löggan var reyndar mætt á staðinn með spotta. Þegar ég nálgaðist bílinn fann ég þessa svakalegu brunalykt, svona eins og einhver hefði verið að brenna úr mótor. Löggan sagði mér að þetta væri kúplinga-lykt. Þá hafði mamma í þrjósku sinni verið að reyna að jugga bílnum út úr þessu í rúma klukkustund! Við erum að tala um að hún var á pínulitlum, framhjóladrifnum bíl föst í snjó sem náði yfir fjórðung af hæð bílsins og mamma var pirruð yfir hvað bíldruslan dreif stutt :D Ég gat nú ekki annað en hlegið, hún var svo staðráðin í að halda áfram í vinnuna þrátt fyrir að ég sagði henni að einn sjúkrabíll, 2 leigubílar og jeppi væru fastir á hringtorginu fyrir ofan götuna okkar. Þetta hlýtur að teljast afbragðs-þrjóska :)

Loksins komst ég í rúmið rétt fyrir kl 10 með skítaflensu og berkla!

Tökustaður Desperate Housewifes ofl.

Nov 17

Var að rifja upp ferðina til L.A. og skoðaði m.a. Universal Studios á google maps. Fann þá m.a.:
Tökustað Desperate Housewifes
Öll stúdíóin þar sem megnið af flestum þáttum eru teknir upp

var að leita af fleirum þarna, t.d. war of the worlds tökustaðinn með brotlentu flugvélinni… finn hann síðar

ú og hérna er vídjó af einum af rússíbönunum sem við fórum í.. nokkuð rosalegt

Ný tónlist!

Nov 14

Þar sem ég keypti mér iTunes music card úti í U.S. and A. þá hef ég verið óður að kaupa mér nýja tónlist til að hlusta á. Ég uppgötvaði Trentemöller fyrir stuttu og svo benti Bjarki vinnufélagi mér á Amon Tobin en sá gaur gerði m.a. alla tónlistina fyrir Splinter cell. Báðir eru svona í anda Orbital og DJ Shadow

Lögfræðingar sem lesa þetta (Valdi og félagar):
Mig vantar að vita hvort það sé löglegt fyrir mig að hafa lög hérna til niðurhals sem sýnishorn, hvað þarf þá að taka fram. Ef það er ólöglegt þá vantar mig að vita hvort ég megi þá ekki vera með stutt sýnishorn úr lögum, hversu löng þau mega vera og hvað ég þarf að taka fram :)

Fókuslisti:
Amon Tobin - Four Ton Mantis
Amon Tobin - El Cargo
Amon Tobin & Michael Shrieve - Oracle Geðveikt lag

Trentemöller - Take me into your skin
Trentemöller - Always something better (Trentemöller dub remix)

Má reyndar ekki gleyma 2 nýjum Röyksopp sem ég var að kaupa:
Röyksopp - Remind Me (Someone Else’s Radio Remix) - Remind Me EP
Mekon - Please Stay (Röyksopp Remix)

Harðsperrur

Nov 14

Ég er að deyja úr harðsperrum, svo mikið að þetta hefur talsverð áhrif á daglegt líf:

  • Einfaldir hlutir eins og að klæða sig í sokka er núna orðið jafn vont og að láta Villa og Valda bíta í sitthvora öxlina pöddufullir
  • Ég stýri bílnum mínum eins og gömul kona keyrir bíl með aflstýri
  • Ég get ekki komið gemsanum að eyra sömu megin þeirrar handar sem ég held á honum
  • …og ef ég reyni hitt eyrað þá er ég kominn með verk eftir 1 mín

Örlítið um harðsperrur, það er víst misskilningur að þær séu vegna uppsöfnunar mjólkursýru í vöðvunum, þær eru vegna rifinna og skemmdra vöðvafruma! Sjá grein á wikipedia. Harðsperrur á ensku eru Delayed onset muscle soreness, skammstafað DOMS

Update á hraðasektinni

Nov 10

Smá update á þessari grein: http://eddi.gauksas.is/archives/51, sektin var 15.000 kjell, sem er svipað og lögfræðingurinn minn hafði skotið á

Misstig og aumingjaskapur

Nov 02

Maður hefur tognað all oft all rosalega um æfina á hinum og þessum æfingum. Í fyrra tognaði ég í fótbolta alveg ógeðslega og svo 3 vikum síðar aftur á sama fæti. Ég skoðaði tognunarskilgreiningar á netinu og greindi tognunina sem: Type 2 spraint - Partially torn ligaments (Slitin liðbönd að hluta til). Eftirfarandi skilgreiningar eru til:
sprain_def1
sprain_def2
sprain_def3

Hér eru svo myndir af öklanum á sínum tíma:

Eftir þetta hef ég verið að misstíga mig við ótrúlegustu tilefni, t.d. nokkrum sinnum í golfi í sumar! Fyrir fótboltann og annað álíka keypti ég mér hlíf/spelku í Flexor (össur retail) sem gerir það að verkum að ég get ekki einusinni reynt að misstíga mig. Ég var svo að lesa mig um það núna að svona öklameiðsli lagast ekkert með tímanum af sjálfu sér. Ég hélt að þetta lagaðist með tímanum en það er alrangt víst, liðböndin haldast svona slök. Það sem á að gera er að fara til læknis og fá endurhæfingarprógram fyrir öklann og gera reglulegar styrktaræfingar á honum, aðeins þannig kemst hann aftur í samt horf með tímanum.

Nýjum áfanga náð

Nov 01

Ég náði merkum áfanga í kvöld. Ég er búinn að vera með flawless record í umferðinni í 7 ár, þeas frá því að ég var 17 ára (fokk hvað tíminn er fljótur að líða). Vinir hans löggu-Valda tóku mig s.s. fyrir of hraðan akstur á kringlumýrabrautinni (hvar endar hún annars?) í fossvoginum hjá ný uppfærðu bensínstöðinni. Þetta var undercovah’ bíll og falinn í myrkri á essóstöðinni. ÞRÁTT fyrir það spottaði ég hann ansi snemma en það er eitthvað í mér sem segir mér að ögra löggunni og þ.a.l. bremsaði ég ekki. Ég skil ekki enn hvernig ég áttaði mig á því að þetta væri löggan því það var ekkert við bílinn sem bendir til annars en að um venjulegan fólksbíl sé að ræða, 6th sense? :). Fljótlega eftir að ég keyrði fram hjá stöðinni var sami bíll kominn alveg í rassgatið á mér á vinstri akgreininni(ég hugsandi: oh sonofa…), aðeins að reyna að ögra mér til að fara hraðar en ég var bara byrjaður að stoppa enda vissi uppá mig sökina. Þegar þeir sáu að ég var ekkert að fara að stíga meira á bensíngjöfina fóru ljósin í gang og ég stöðvaði bílinn. Ég hafði mælst á 107km hraða þar sem hámarkshraði var 80km, það er nú ekkert rosalegt sem betur fer. Fínir löggugaurar, bara eins og Valdi og töluðu líka eins og Valdi! :) Allt samtal á svona formlegum lagalegum nótum eins og lesnar uppúr lagabók.

Mest svekkjandi við þetta er að þessum 7 ára saklausa ferli mínum, þar sem ég hafði ekki einusinni verið tekinn í tékk, var að ljúka!! Ég er búinn að biðja valda um að boxa þá í öxlina fyrir mig eða amk benda þeim á þessa lesningu.