Dec 27
Árið 2007 er officially árið sem ekki er lengur lúðalegt að spila tölvuleiki. Það spila næstum allir tölvuleiki, reyndar 99% drengja, hlutfallið er mun lægra hjá stelpum reyndar. Af hverju ætli það sé?? Comments vel þegin.
Anywho, nú langar mann í svona leikjavél og um 3 slíkar vélar er að ræða þegar kemur að vali á þeim: Playstation 3, Nintendo Wii og XBox 360. Nú veit ég bara ekki hvað maður á að fá sér þannig að hér koma kostir og gallar sem ég hef velt fyrir mér:
Playstation 3:
Pros: Klárlega langflottasta og raunverulegasta grafíkin af öllum. Að eiga PSP er stór plús, ÉG Á PSP
Cons: Henni hefur seinkað ítrekað og þær sem hafa komið út hafa fengið slæma dóma um stöðugleika. Sjá
þessa fáránlega fyndnu frétt um skýringar Sony starfsmanna á þessum óstöðugleika. Svo er hún líka 2x dýrari en Nintendo Wii
Nintendo Wii:
Pros: Ekkert smá sniðugir stýripinnar, ég var að prófa þetta hérna í vinnunni (Já við erum með Nintendo Wii tengda við 52″ plasmasjónvarp hérna!!) og þetta er svoo gaman! Ég prófaði Tennisleik þar sem maður sveiflar höndunum til eins og maður sé með alvuru tennisspaða og vélin nemur hreyfingarnar. Stór plús þarna og ég held að þessi vél sé hentugust fyrir stelpurnar, fær topp einkunn í skemmtanagildi fyrir
“túpleijer”. Hún er líka ódýrust og… Ú og já… hún spilar alla gömlu nintendo leikina, Super Mario Bros here i come …
Cons: Langt frá því að vera eins góð grafík og í hinum… langt frá því.
XBox 360:
Pros: Góð vél, stabíl og ódýrari en PS3
Cons: Ekki eins flott grafík og í PS3, samt góð. Microsoft vara og mér er einhvernveginn illa við microsoft.
Dec 18
Þegar vissar frumur verða fyrir áreiti dæla þær Histamíni út í vefina í kringum sig. Histamín bindist taugaendum og kemur þeim skilaboðum áleiðis til heilans að mann klægji og NÚ SKULI KLÓRA. Þegar maður svo klórar losnar um Dopamín sem vekur vellíðan. Það má segja að heilinn noti dópamín til þess að verðlauna sjálfan sig. Fullnæging er m.a. dæmi um hálfgert dópamín overdose í líkamanum :). Fólk á það nær undantekningarlaust til að ítreka þá hluti oft sem valda dópamínlosun í heilanum. Dæmi um hluti í daglegu lífi sem sýnt hefur verið fram á að hafa dópamínlosandi áhrif: Að fara á klósettið og gera nr. 1 eða 2(sérstaklega þegar maður er í spreng), að borða súkkulaði (women, know your limits!), að stunda kynlíf og að hnerra.
Aftur að kláðanum, ég er kominn með þetta nasty sár á ristina vegna þess að ég get ekki hætt að klóra mér. Þetta byrjaði sem lítil saklaus rispa en er orðið að töluvert stóru sári núna sem ég er reyndar búinn að binda um núna til að freista þess að hætta þessu. En af hverju get ég ekki hætt að klóra mér?!? Jú vegna þess að mig klægjar og svo klóra ég mér og þá fæ ég dópamín í blóðið fyrir að klóra mér þannig að ég klóra og klóra og klóra. Svona einfaldur er nú líkaminn… heimskur even?
Og ég ætla strax að svara fyrirsjáanlegu commentunum: nei klórið mitt kemur ekki í stað annarra dópamínslosandi umsvifa 
Dec 12
Dj*full er spamm óþolandi. Þetta blasti við mér í bloggkerfinu þegar ég loggaði mig inn:
Þetta þýðir það að ég þarf að renna yfir þennan lista til að sjá hvort einhver comment frá vinum séu þarna og eyða restinni. Ég þarf greinilega að smella Captcha inná þetta til að losna við þennan viðbjóð í framtíðinni. Örstutt um captcha, þetta er ein tegund af svokölluðum Turing prófum sem eiga að greina menn frá vélum, athyglisverðar lesningar fyrir þá sem vita ekkert um þetta. Þetta hefur mikið með gervigreind(AI) að gera , þó að sú grein(innan tölvunarfræðinnar) hafi það kannski meira að markmiði að gera Turing-test að engu :).
Dec 07
…og ertu með nýja Internet Explorer í gangi?? Prófaðu að:
- fara í task manager (Start->Run: taskmgr)
- velja Processes
- raða eftir Mem Usage
- sjá hvað er efst
Þú sérð að öllum líkindum eitthvað svona:
sem segir þér að IE er að drepast úr svokölluðum minnisleka… meira ruslið