Search

Rss Posts

Rss Comments

Login

 

Posts from January, 2007

Flórída - Dagur 1

Jan 31

Jæja, fæstir vita líklega að ég og Berglind erum komin til Svövu og Helga á Delray Beach, Floooorida. Það stóð alltaf til að Berglind færi en ég ætlaði ekkert með þar sem að ég er m.a. nýkominn úr skíðaferð í Austurríki og svona. Þar sem flestir strákarnir höfðu beilað á golfferðinni tók ég ákvörðun með innan við sólarhrings fyrirvara að smella mér með í ferðina, enda an offer i couldn’t resist :) 11 daga ferð til Flórída og borga bara fyrir flugið (55þús + flugvallaskattar). Þegar við komum uppá flugvöll og gerðum okkur líkleg til að planta okkur aftast í röðina að check-in sáum við okkur til mikillar furðu að ekki einn stakur farþegi var að checka sig inn, flughöfnin var nánast galtóm! Engar raðir :D og svo var flugvélin rétt hálf-full þannig að maður fékk nóg pláss fyrir sig. Flugið er c.a. 8 tíma langt, en ekki nógu langt til að láta mér leiðast. Ég var með lappann, psp, vísindatímarit :) og ipod. Nóg að gera alla leiðina og tíminn fljótur að líða.

Svava og Helgi stóðu svo fyrir utan þegar við komum út af flugvellinum og tóku á móti okkur. Við skelltum okkur á Hops að borða (Babyback ribs fyrir mig :)) og eftir það tók við þriggja tíma keyrsla suður í átt að Miami. Ég var með GPS’ið tengt við lappann fyrripart ferðarinnar, ég býst við að Svava og Helgi fái sér svoleiðis núna þar sem þau hafa notað oldschool landakort hingað til :). Við vorum ekkert lítið þreytt þegar við komum loksins til Delray Beach, 8 tíma flug og 3 tíma keyrsla.

Nú vorum við að vakna, úti er c.a. 20 stiga hiti og sól. Plan dagsins er að labba um svæðið hérna að skoða allt sem er hægt að gera, fara í Target og versla mat og eitthvað fleira og svo held ég bara sólbað og eitthvað hangs. Förum svo í bíó í kvöld, enda bíó hérna á “campusnum”.

Er í Austurríki þessa dagana

Jan 12

Ahh