Search

Rss Posts

Rss Comments

Login

 

Posts from February, 2007

London revisited - Dagur 1

Feb 27

Mér tókst að vakna fyrir allar aldir, koma mér út á lestarstöð (Leicester Square) og mæta rétt yfir 8 í vinnuna. Dagurinn leið bara nokkuð hratt enda gekk vel, fyndinn gæji sem ég er að vinna með, Peter, ég man að fyrir ári síðan sagðist hann ekki mega drekka kaffi, kók eða aðra gosdrykki, sérstaklega þá sem innihalda sykur og koffein. Í morgun þrammaði hann inn á skrifstofuna með kók í hönd og var bókstaflega sá ofvirkasti í allan dag, ímyndið ykkur breta sem talar hraða, breska ensku fyrir og er jafnframt sjúklega ofvirkur og byrjaður að sötra kók í lítratali, niðurstaðan er sú að ég segi “Sorry” as in “I beg your pardon?” eftir aðra hverja setningu hjá honum :).

Anyways, ég rauk út af offic’inu kl 17, var kominn uppá hótel 40 mínútum síðar og fór í ræktina þar og spriklaði þar til ég gat ekki meir. Ekki slæmt að hafa svona líkamsræktaraðstöðu í sama húsi, makes things easier i’ll tell you. Eftir átökin gekk ég niður að Piccadilly Circus og fékk mér að borða, all alone… á bakaleiðinni sá ég þetta fína bíó þar sem myndin “Number 23″ var að byrja eftir 10 mínútur og ákvað því að skella mér á hana, ég held að þetta sé í fyrsta skipti sem ég fer einn í bíó, og ábyggilega það síðasta :) Ég get ekki sagt að myndin hafi verið góð, hún var þó ekkert voðalega léleg en samt varla mikið meira en dávnlódmynd sem maður á bara að horfa á í lappanum á meðan maður gerir eitthvað annað á meðan.

By the way… hvað erum við að kvarta yfir háu bíóverði heima?! Hérna kostar bíómiðinn 12 pund :S eða hátt upp í 1600 kr.

London revisited

Feb 25

Jæja, nú er mér farið að líða eins og flugfreyju, ég er búinn að vera meira úti í löndum en heima það sem af er árinu. Í þetta skiptið, viku löng vinnuferð í London á vegum Glitnis. Þetta er þá í annað skiptið sem ég fer í slíka vinnuferð og reynsluboltinn ég lenti ekki í neinu veseni á leiðinni eins og síðast og ferðin hingað á hótelið gekk eins og í sögu. Hótelið er líka frábært, töluvert betra en síðast en samt á sama verðbili. Staðsetningin gæti heldur ekki verið betri, í Covent Garden, m.ö.o. nálægt ÖLLU. Stutt líka að fara í lestina, ég þarf að drullast snemma á fætur morgun og taka 30 mínútna langa lestarferð frá Leicester square station til Wimbledon.

Föstudagshangs, Stewie, my alltime favorite

Feb 23

Breakdance og beatbox

Feb 21

Ég bara verð að deila þessum vídjóum, ég held að þetta sé elite af sitthvoru:

Breakdance: Hér verður að bíða eftir gaurnum í appelsínugula bolnum

Beatbox:

Svo fylgja þessi tvö rosalegu vídjó með sem beatbox, bara sett saman með tölvu :)
http://www.youtube.com/watch?v=LVCb52iQrfo
http://www.youtube.com/watch?v=JzqumbhfxRo

HAHA ég er með þetta lag á heilanum!

Feb 19

AND SO WILL YOU :) Ég heyrði þetta í útvarpinu áðan, þetta er víst edit á einhverju finnsku lagi (#1 #2)…

Góð upplyfting á mánudagsmorgni og varla hægt annað en að brosa yfir þessu :D

Edit: Haha þetta lag á sér víst sögu og þótt ótrúlegt sé þá er þetta ekki bull heldur allt á Finnsku, Sjá texta (nr 10.) og wikipedia grein um “faraldurinn”

Ahh og commentið frá Íbba á msn eftir að hann heyrði þetta lag gerði þetta blogg þess virði :D:
Ívar Örn says:
   fokk ertu að grínast á leiðinlegu lagi
Ívar Örn says:
   þetta er eins og einhver sé að sprauta krabbameini í eyrun á mér

Edit 2: Í kjölfar vinsældanna sem “hljómsveitin” sem flutti lagið upphaflega fékk í kringum þessa EffEmm útgáfu af því virðist vera að þau séu að poppa sig upp :)

Að kreista flöskuna til að bjarga gosinu

Feb 16

Allt í einu man ég það! Einhverntímann sagði ég við sjálfan mig, ef ég á einhverntímann eftir að byrja að blogga þá mun ég byrja á því að bitrast yfir þessu.

Sumt fólk heldur því fram að gosið í gosflöskum haldist betur ef flaskan er kreist þannig að hún sé ekki fyllilega útþanin og tappinn svo skrúfaður á þannig. Ég vil að þeir sem halda þessu fram vinsamlegast gefi sig fram hérna, mig langar að vita hversu marga heimska fávitamikið af illa upplýstu fólki ég þekki :). Sko koltvísýringi (carbon dioxide, CO2) er dælt í vökva undir töluverðum þrýsingi til að láta það bindast vökvanum, t.d. kók og annað gos. Til hjálpa koltvísýringnum (gosinu) að losna úr vökvanum er fyrst og fremst best að hafa vökvann ekki undir neinum þrýsingi, auk þess er eykur hiti mjög á losunina. Þegar flaska er lokuð og þanin út getur aðeins ákveðið mikið magn af koltvísýringi losnað úr vökvanum, eða þar til þrýsingurinn inní flöskunni er orðinn það mikill að hann hindrar frekari losum. Ef flaskan er hinsvegar kreist og henni síðan lokað þannig þá hljóta flestir að átta sig á því að vegna þess að koltvísýringurinn getur losnað á meðan þrýsingur í flöskunni leyfir þá er verið að gefa mun meira rúm til slíkrar losuna með því að kreista helvítis flöskuna!!

Og ef svo vill til að heimska illa upplýsta fólkið sé enn að þrjóskast við að vera heimskt illa upplýst, takið vinsamlegast 2 flöskur af gosi, tæmið helminginn úr þeim báðum, kreistið aðra flöskuna eins og þið mögulega getið án þess þó að hrista innihaldið og setjið tappann á, lokið hinni flöskunni á eðlilegan hátt ÁN ÞESS að hrista. Drekkið eftir nokkra tíma, og til að gera þetta skemmtilegra má prófa að drekka eftir sólarhring þegar þær verða báðar fyllilega út þandar og harðar.

Ahh, glad i’ve gotten that out of my chest :)

Edit 19.02.2007: Hey svo fann ég mynd sem lýsir þessu sem ég er að röfla um, setjið bara flöskukreistarana í hóp trúar, mig í hóp vísindanna :) Sjá mynd

Flórída - Dagur 10 - Meira af íkornanum

Feb 10

Flórída - Dagur 10

Feb 09

Jæja, ég er sestur niður í “þreytunni” eftir rosalegt kvöld á South Beach í gær. Við fórum s.s. á South Beach í gær til Vilborgar og meðleigjanda hennar, SEM ER AUSTURRÍSKUR TVÍFARI VIGGA!! See for yourself:

VIGGATVÍFARI

Við(Ég, Berglind, Helgi og Svava) byrjuðum á því að fara á South Beach ströndina þar sem við eyddum deginum í sjónum og spókuðum okkur í sólinni. Við Helgi fórum svo að kasta rúbbíbolta, sem er merkilega gaman, eftir svona hálftíma bolta kom svartur gaur sem var jafn breiður og ég er stór, svona rúbbígaur, og kallaði til mín áður en ég náði að senda boltann á Helga; “YO MY MAN, throw me the ball!”. Ég auðvitað varð að þeirri ósk og kastaði tuðrunni til hans, svo köstuðum við 3 boltanum á milli í svona klukkustund. Þetta var algjör snillingur, með góða bolta líka, og að nafni Rizzo. Ég auðvitað gat svo ekki legið kjurr í sólbaði eftir þetta þannig að ég fór að grafa upp ströndina og bjó til “fótinn”, listaverk sem ég hef tileinkað mér og sett upp til sýninga á nokkrum ströndum :). Upp úr klukkan 4 fórum við og fengum okkur smá að éta, forrétt fyrir grillveisluna heima hjá Vilborgu og co. Við keyrðum í gegnum miðja Miami á leiðinni til Vilborgar bara til að fá staðfestingu á því að þetta er flottasta borg sem ég hef komið til :). Þegar til Vilborgar var komið, hoppuðum við í sturtu og skiptum yfir í djammgallann. Þetta var stærðarinnar partí þar sem 4 vinir Jóhannesar (Austuríski meðleigjandi Vilborgar) voru í heimsókn ásamt 4 vinum Vilborgar, þannig að við vorum um 14 talsins. Við höfðum gripið Tópas drykkinn með okkur fyrir útlendingana. Reyndar vantaði staupglös en einn úr hópnum tók sig til og bjó til staupglös fyrir allan hópinn úr gúrkum! Það svínvirkaði og bráðum voru útlendingarnir farnir að gretta sig af tópasinu :). Við fengum líka þessa delishjuuuuus ostborgara sem Jóhannes grillaði, já Jóhannes er s.s. Austurríska útgáfan af Vigga, sjá mynd að ofan. Þegar búið var að taka vel á því þarna var stefnan sett á skemmtistaðinn Mansion á south beach að mig minnir. Jóhannes reddaði öllum í VIP röðina þar sem við gengum inn eins og ekkert var því gjaldmiðillinn var: STELPUR. Þeir töldu stelpurnar og hleyptu þeim inn og töldu svo hvað við strákarnir vorum margir og einhverjir þurftu að borga sig inn þar sem hlutfallið var ekki yfir 50% eða eitthvað í þá áttina :).
Þessi skemmtistaður er sá allra flottasti sem ég hef komið inná. Hann er á 2 hæðum og skipt samtals niður í 3 stóra sali sem eru algerlega hljóðeinangraðir hver frá öðrum en samt vel opnir á milli. Í hverjum sal var mismunandi mood (stemning) og mismunandi tónlist. Stærsti salurinn var auðvitað með þessa klassísku miami tónlist, R&B, Rap ofl, næsti var með electroník og fleira í þá áttina (loved it :) ) og sá þriðji, sem var lokaður er held ég með rokk.
Svo fyrir ótrúlega tilviljun hittum við 2 íslenskar stelpur á djamminu þarna inni, báðar í bekk með bróður mínum Fannsa í grunnskóla og í Versló á sama tíma og við. Eftir rosalegt tjútt fram eftir allri nóttu (þarna lokar sko ekki kl 1) fórum við á einhvern stað og fengum okkur rottupítsu, alveg delisjus. Við komum heim svo uppúr kl 5 minnir mig eftir klukkutíma heimferð þar sem ég steinsofnaði á fáránlegan hátt og vaknaði með kreisí hálsríg.

Ég var að enda við að taka mynd af íkorna hérna fyrir utan, ég dýrka þessi dýr, hann hafði komist í Ritz kex einhversstaðar og sat í rólegheitum og mönshjaði á því:

Svo þegar ég ætlaði að komast ennþá nær fór hann að vera stressaður, setti kexið í kjaftinn, horfði á mig og beið átekta:

Svo náði ég mynd af öðrum um daginn sem lá bara heví sáttur og japlaði á salthnetu sem ég hafði gefið honum:

Flórída - Dagur 7

Feb 06

Jæja, þetta er 4. dagurinn í röð þar sem er alskýjað, það þýðir bara eitt… GOLF. Við skutluðum Vibbsí uppá lestarstöð, Ég og Helgi fórum í golf og stelpurnar í “Mollið”. Við tókum 18 holur með einhverjum golfsnillingum sem töluðu um gras næstum allan tímann. Þeir actually spáðu m.a. í: hvaða átt grasið á flötunum óx(skal kenna ykkur þetta strákar :)), tegundir af grasi og allskonar svona pro shit sem ég vissi ekki einusinni að væri pælt í á annað borð :S. Við vorum helvíti ryðgaðir þarna en þetta kom smátt og smátt og á síðustu holunum gekk þetta bara vel, náði 3 pörum í röð og alles, ágætt til að bæta upp double, triple og quadruple bogie. Við fórum í smá shopping um kvöldið og ég m.a. lét vaða á XBOX 360 vélina eftir miklar spekúleringar. Ég keypti líka 4 stýripinna fyrir svona partymode á henni og eftir prufukeyrslu hérna um kvöldið þá verð ég að segja að ég sé ekki eftir krónu, auk þess var hún um 70% ódýrari en heima.

Flórída - Dagur 6 (SUPERBOWL DAY)

Feb 06

Allur dagurinn snérist um Superbowl, engin smá stemmning :). Við fórum í huges matvöruverslun og keyptum inn fyrir “game night”, chicken wings, popkorn, loads of beer, ídýfur, ofl ofl. Leikurinn, sem var á milli Chicago Bears og Indianapolis Colts byrjaði kl 17:30 hérna (GMT-5). Eftir að flest allt hafði verið undirbúið fórum við bara í tennis öll sömul og skallatennis, strákar á móti stelpum. Við Helgi slökuðum svo mikið á reglunum að stelpurnar unnu okkur eitt skiptið með miklum sigurhrópum, við bitum það bara ofan í okkur. Eftir hamaganginn sturtaði liðið sig allt saman og sest var við sófann með snacks & beer, by the way bjórinn hérna er með svo miklu minna alkóhólmagni en bjórinn heima í evrópu að maður getur verið að drekka bjór heilt kvöld eins og mountain dew. Leikurinn byrjaði vel, Bears náðu fyrsta marki sinnar tegundar í deildinni frá upphafi, þeas touchdown marki í fyrsta kickoffi leiksins með hlaupi upp allan völlinn, algjör snilld enda var ég designated Bears maður. Helgi var með stórfínan drykkjuleik fyrir okkur, t.d. að fá sér sopa í hvert skipti sem við sáum hvítan mann, þegar interceptions náðust ofl. Leikurinn snérist heldur betur við eftir fyrsta leikhluta og Colts hreinlega rústuðu þessu. Þetta var á köflum jafn spennandi og handboltinn. Eftir leikinn fórum við í póker, Ég, Berglind, Vilborg, Svava og Helgi og vorum í því eitthvað frameftir. S.s. frábær dagur að baki, gaman að fá svona fílinginn af þessari stemmningu hérna í kringum þetta allt saman.