Sagði einhver retry-hóra?
Jun 20
*retry hóra = einhver að springa úr þrjósku ![]()
Jun 14
Nú hef ég undanfarið mikið tekið eftir fólki, oftast mjög gömlu fólki, ráfandi um umferðareyjur og vegkanta að tína flöskur og dósir. Ég auðvitað dauðvorkenni þessu fólki því að heill dagur af svona dósatínslu skilar í mesta lagi 1000 kr. (gefið að viðkomandi takist að finna um 167 flöskur og fái 6kr. fyrir stykkið). Tilgangurinn er alls ekki að gera lítið úr þessu, sérstaklega ef fólk þarf á þessum pening að halda og gerir þetta í blárri neyð. Ég vil bara vita, af hverju fer fólkið ekki að týna golfkúlur á golfvöllunum? Litlu bræður mínir fóru með hrífur og ýmis tól á golfvöllinn í Setbergi þegar þeir voru… ja.. ennþá minni. Þeir náðu um 200 golfkúlum í hverri ferð og það var beinlínis eins og golfkúlur yxu í tjörnum og lækjum vallarins. Kúlan fer síðan á 50-100kr. stykkið í golfbúðir, sem gerir um 15.000 krónur. Þar með hafa litlir krakkagemlingar með hrífu náð jafn miklum pening fyrir sitt erfiði á 4 tímum og dósatínslumaður á hálfum mánuði (gefið að viðkomandi sé að 24 / 7 ).
Nú ef of margir fara að hugsa um þetta sama verða golfvellir landsins fljótlega yfirfullir, en þá er bara hægt að snúa sér að því að týna maðka og selja í veiðibúðir, þeir borga víst fúlgur fyrir þessa stórvöxnu orma sem koma uppá yfirborðið í görðum landans þegar rignir :). Mér bara dettur ekki í hug lélegri nýting á tíma fólks en að týna upp eina og eina flösku við vegi, þetta gefur lægra tímakaup en…. held ég bara allt annað
Og finnst að ég er nú byrjaður að nöldra á annað borð, hvað er eiginlega með fólkið sem fær sér flottan bíl og svo númeraplötur á borð við: 2FAST4YOU(Too fast for you), CUL8ER(See you later), OWNAGE(ugh), ofl.? Fyndnasta einkanúmer sem ég hef séð er þó án efa eldri maður á flottum landcruiser og “FÁG” á númeraplötunni. Hann hefur a) greinilega ekki áttað sig á hvað komman fyrir ofan A’ið sést illa og b) ekki grænan grun um hvað FAG þýðir á ensku. ![]()
Jun 14

Jæja ég er búinn að sætta mig við að ég er lúði, mér finnst þessi mynd ógeðslega fyndin… reyndar ætti flestum að finnast það sem hafa tekið línulega algebru í skóla og muna eitthvað eftir því sem þeir lærðu ![]()
Jun 07
Ansi áhugaverður hugbúnaður sem vinir vors og blóma í Micro$oft eru að hanna, reyndar fyrirtæki sem þeir keyptu:
Hugbúnaðurinn gerir fólki kleift að skoða myndir teknar víðsvegar um heiminn í þrívíddarumhverfi, það er meiraðsegja hægt að prófa þennan hugbúnað hjá þeim ókeypis á netinu (keyrist í vafranum, ekki sérstakt install)
http://labs.live.com/photosynth/
Jun 04
Þá er komið að því… Valdi er orðinn pabbi, til hamingju Valdi og Stella! Þegar við vinirnir vorum í versló spáðum við mikið í það hver yrði fyrstur í þessum málum. Krissi kom auðvitað sterklega til greina enda góðar líkur á að hann eigi einhverja bastarða hér og þar
en ég og Valdi komum einhvernveginn síst til greina og þá Valdi sérstaklega. Ekki af neinum öðrum ástæðum en þeirri að menn óttuðust einfaldlega afsprengi okkar þar sem við erum báðir ofvirkari en 7 ára ADHD barn á páskunum… á súkkulaði-trippi. Ásamt því auðvitað vorum við allir með þroska á við 12 ára að fíflast í öllum og gera kennurum og samnemendum lífið leitt með fíflaskap, showoffi og slagsmálum.
Til allrar hamingju er barnið hans Valda stelpa, þær eru víst eitthvað rólegri
Nú magnast barnabarnanöldrið í mömmu ennfrekar, sérstaklega í ljósi þess að ég hef tjáð henni að mun ekki stefna á barneignir næstu árin, enda á leiðinni í krefjandi nám til Danmerkur og fleira, nógur tími til að vera gamall þegar maður er orðinn gamall
Þess má reyndar geta að ég á nú þegar tvö uppkomin börn, tvo litla stráka, reyndar tveir yngri bræður mínir sem ég hef barið til og alið upp síðan ég var 8 ára. Ég kunni líka að skipta um bleyjur, mixa pelamjólk, svæfa og allt þar fram eftir götunum um þann aldur, beat that BARNAFÓLKÁMÍNUMALDRI!! maður kann þetta allt saman, ég býð uppá námskeið
Edit: Valdi mér finnst að þið eigið að versla eitthvað af barnafötum HÉR
…og svo snuð HÉR
