Lengi vel var Terminator II uppáhalds bíómyndin mín og ég man vel eftir þessum efasemdarpésum sem töluðu um að hvað allt í þessari mynd væri tóm vitleysa Reyndar er stór hluti af þessari mynd eimmitt þannig en einn hlutur úr henni hefur ratað inn í nútímann! Einhverjir snillingar eru búnir að hanna vélhönd sem getur farið eftir skilaboðum frá taugakerfi þess sem höndina ber.
Hér fyrir neðan er svo skot úr myndinni sjálfri til samanburðar, ekki mikill munur er það? ATH, þetta er ‘dubbað’ á einhverju óþolandi tungumáli og í skítlélegum gæðum, vinsamlegast slökkvið á hljóðinu
Hver hefur ekki hugsað með sér hvað líf manns yrði vonlaust ef maður myndi missa útlim, sjón, heyrn eða lamast algjörlega. Svona lagað minnkar áhyggjurnar til muna. Hugsum okkur hvað það hefur tekið fá ár að þróa þessa tækni og svo hvernig þetta verður þá eftir um 40-50 ár!
Ég hef aldrei hlustað á Björk af neinu ráði hingað til né keypt diska með henni, þrátt fyrir að vera auðvitað stoltur af þessum fellow Íslendingi sem heimurinn virðist dýrka. Eitt af lögunum á nýju plötunni hennar er samt eitthvað svo catchy svo ég varð að kaupa það á iTunes þar sem hún á það alveg skilið
Eftir um 10 ár eigum við eftir að hlægja þegar við hugsum til baka til þeirra tíma sem við notuðum lyklaborð og mús, ég er búinn að vera að fylgjast með þessari tækni og er búinn að bíða spenntur í nokkur ár eftir því að þetta komi á markað. Einhverjir snillingar í NYU háskólanum í New York (duh) fundu upp einfalda og ódýra tækni fyrir nýja og nákvæmari snertiskjái sem styðja margar snertingar í einu. See for yourself
í gær hringdi í mig stelpa, sem ég hélt að væri önnur(drukkinn vinnufélagi actutally ) þannig að ég talaði við hana í stutta stund þar til hún spurði hvort ég ætti hvítt í nebbann handa sér. Ég hélt nú ekki og tók smá tíma í að útskýra að ástæðan fyrir svari mínu var ekki það að ég væri out of supply heldur væri þetta klárlega rangt númer.
Nú rétt í þessu var einhver spánverji adda mér á msn. Kauði kallar sig ‘quiero chatear’ sem babelfish segir að þýði langar að spjalla, ég óska eftir þýðingu á því sem hann hafði að segja: quiero chatear says:
oli
quiero chatear says:
comtellam
quiero chatear says:
ai algen ai
quiero chatear says:
oli
quiero chatear says:
q pasq
Fyrir um ári síðan var einhver spánverji sem addaði mér líka á msn og ég reyndar bullaði í þeim gæja ansi lengi með hjálp babelfish… held hann hafi orðið eitthvað skelkaður því hann hefur ekki viljað tala við mig síðan
Fyrir rúmum 2 árum síðan tók ég eftir missed call á símanum, ég skoðaði númerið, sem var laaaaaaaaaaaaaaaaaaaangt og fór að grenslast fyrir um hvaða landakóði þetta væri eiginlega. Í ljós kom að ég var með missed call frá afghanistan, ég ætlaði nú ekki að þora að hringja til baka af hryðjuverkafóbíu en sló til… þá svaraði einhver hryðjuverkamaður og talaði háa, harðorða arabísku af miklum móð í símann og ég ákvað bara að skella á og láta þetta gott heita.