Matur
Sep 27
Ekki þýðir að éta kebab öll kvöld, þrátt fyrir að þetta er með lang besta verð vs. gæði ratio’ið(e. Price-Deliciousness ratio). Allavega, ég eldaði mér kjúkling í ofni í gær, þá erum við ekki að tala um preheated pakkamat heldur bara kjúkling, frosin stykki. Það smakkaðist bara fínt, shit hvað maður er orðinn fullorðinn. Í kvöld var ég líka að spá í hvort ég ætti að elda mér þessar 2 nautalundir, sem ég keypti á tilboði. Gallinn var bara sá að ég á ekki sósu og það er hálf hrátt eitthvað að éta tvær unaðslega vel útlítandi nautalundir án nokkurrar sósu. Ég fann sem betur fer Bjarka á msn, hér eftir bjarkibj02-Bjarka þar sem nokkrir Bjarkar skoða þessa síðu, og setti fram þetta scenario um hvað ég ætti að gera:
Þú ert með 2 nautalundir sem voru á mega tilboði útí búð og ætlar að éta þær í kvöldmat en þig vantar sósu og átt bara skíta hamborgarasósu og tómatsósu, hvað gerirðu?
A) lætur hamborgarasósu og tómatssósu nægja
B) borðar kjötið sósulaust, at least you got ze rauðvín
C) Botherar að hlaupa útí Nettó(bónus)
D) Býrð til sósu úr sveppapakkasósu með mjólk (ekki til rjómi)
E) Kastar kjötstykkjunum í reiðikasti fram af svölum og ferð og færð þér kebab handan við hornið
Það fylgdi ekki spurningunni að ég á sveppasósu-bréf en vantar rjómann, ég á þó mjólk og Bjarki hitti naglann á höfuðið þegar hann sagði mér að það slyppi alveg ef ég eldaði hana aðeins lengur, props fyrir það ![]()
Ég grillaði svo ekki lundirnar þar sem ég festist á netinu og setti m.a. upp þessa gjörsamlegatilgangslausufáránlegu formúlu hér að ofan og wiki síðuna fyrir hana. Endaði á því að fara og fá mér kebab á 30kr danskar sem fékk alveg 8/10 fyrir deliciousness(10/10 á kebabskala) og 8/10 fyrir fillness. Ég þarf að mixa þessa formúlu miklu betur því þessi máltíð á að fá alveg helvíti góða einkunn. Ath ég bendi áhugasömum stærðfræðilúðum að skoða wiki síðuna, ég hef tekið þá ákvörðun að gera farþegaþotu úr mýflugu með þetta litla módel, það er voðalega basic eins og er:

Í dag setti ég í tvær þvottavélar, tók til í íbúðinni, ryksugaði, skúraði, setti upp tengingar fyrir sjónvarpstenginguna í gegnum ljósleiðarann og fór með alla kassa og drasl niður í sorpgeymslu. Nú kemur spurning til þeirra sem þekkja mig… Hvað getur mögulega valdið því að ég nennti að standa í þessu í dag? Svar kemur hérna fyrir neðan í ljósgráum stöfum:
Vegna þess að ég átti að vera að læra, nennti því ekki og er með athyglisbrest dauðans. Ofan á það var ég svo ákveðinn í að eyða deginum ekki í nethangs, sem getur verið stórhættulegt og gert góða daga að engu. Seinnipartinn og um kvöldið(s.s. núna) lærði ég þó og nokkuð ágætlega bara.


