Search

Rss Posts

Rss Comments

Login

 

Posts from October, 2007

Duuuuuude…

Oct 30

Ég elska budweiser auglýsingarnar, hver man svo ekki eftir WUUUAAAAAZZZZAAAAP auglýsingunum þeirra:

Ein pæling

Oct 17

Er hægt að kenna gömlum hundi að sitja? Svona í alvurunni? Ég er bara að velta því fyrir mér hvort þetta sé sama lögmál og “Það er ekki hægt að kenna óskipulögðum manni að verða skipulagður” (sbr. ég).

Og þar sem við erum í svona pælingum á annað borð, veit einhver hvaðan orðið “pæling” kom eiginlega?? Og ekki segja stytting á orðinu spekúlering því það væri í besta falli spæling.

Jæja burtséð frá þessu, þá setti ég inn fleiri myndir, m.a. úr partíi sem ég fór í með Vilborgu, Gauja (Pox) og frú um síðustu helgi til Andra nokkurs sem var með okkur í Verzló, já svona er nú Íslandið lítið. Maður er nú orðinn vanur þessu, ef maður þekkir ekki einhvern Íslending hérna í Danmörku þá þekkir maður amk 3 heima sem þekkja viðkomandi eða eiga sameiginlegan vin með viðkomandi.

Ég er svo aldeilis óhress með djammið hérna í Danmörku þar sem íslenskar djammhefðir eru ekki beinlínis móðins hérna:

  1. Annaðhvort fer maður í partí eða bæinn, ekki bæði
  2. Undantekning er á (1) ef partý byrjar kl 17 og farið í bæinn fyrir kl 23
  3. Ef farið er í bæinn eftir kl 1 má búast við því að góðu staðirnir séu ýmist lokaðir eða að loka, þá enda flestir bara á stöðum eins og Moose og Pilegården sem eru svona oversized pöbbar niðrí miðbæ með mikilli Sirkus® stemningu. :)

Ég hafði reyndar ekkert á móti Moose þar til ég lenti á bannlista hjá einum barþjóninum þarna eftir að hafa arkað þangað inn með líters víkinga bjórkrús og drukkið af með góðri list þar til barþjónninn áttaði sig á því að ölið var ekki frá honum komið.

Egill er að koma núna á morgun og verður fram á sunnudag og má fastlega búast við hörku-þriggjadaga-skralli :)

Óeirðir, skólinn og Bíbí

Oct 09

Það er búið að vera brjálað að gera í skólanum þannig að ég hef lítið gefið mér tíma til að vera á netinu, hvað þá að blogga. Á laugardaginn var ég að reyna að læra en óeirðirnar hérna trufluðu námið, hehe ég er reyndar töluvert frá aðal óeirðastöðunum sem eru mun nær miðbænum. Þrátt fyrir það örkuðu 6 svartklæddir unglingar upp götuna og á móti þeim tók óeirðarlöggan, sem hefur greinilega verið að eltast við þá með hjálp þyrlunnar sem var nú sveimandi í rétt um 100m hæð yfir okkur. Þeir ullu samt engu tjóni eða voru með neitt vesen, það kom mér þó á óvart að sjá þau með gasgrímur en það er víst móðins hérna að drita á þetta lið táragasi.

Á morgun byrja ég svo í haustfríi og er í fríi fram til 22. október. Ég ætlaði fyrst að kíkja á Krissa í Lugano en ég neyðist til að læra hérna í staðinn, enda kominn töluvert afturúr. Ég stefni þó alveg á að stunda næturlífið hérna á næstu 2 vikum enda er víst menningarnótt hérna þessa helgi og svo er allt skólafólk í efterårsferie og mikið að gerast :)

Til að tapa ekki glórunni í einverunni hérna á daginn keypti ég mér svo Bíbí í dag, greyjið fuglinum var troðið í kassa, hjólað með hann 2km og svo settur í ókunnugt búr með engum öðrum fuglum. Hann er með ágætis case af taugaáfalli sýnist mér, hann þarf samt að bíta á jaxlinn, byrjar í þjálfunarbúðunum bráðlega. Núna situr hann á efsta prikinu í búrinu, horfir í kringum sig og andar eins og hann hafi flogið maraþon.

Ég bætti inn myndum líka í dag á myndasíðuna, myndir frá liðnum vikum.

Hversu fyndið…

Oct 03

Strákar, við látum eldstaupin eiga sig bara framvegis er þaggi? :)

Another Flaming Shot Goes Bad - Watch more free videos