Search

Rss Posts

Rss Comments

Login

 

Posts from November, 2007

Viðbjóður á netinu

Nov 29

Fyrst vil ég taka fram að ég ætla ekki að linka í neitt af þessu sem ég er að tala um :). Forvitnir geta hjálpað sér á Gúggúl.

Nú hef ég séð margan viðbjóðinn á netinu, maður var sviptur sakleysinu í HR, þegar tubgirl blasti við manni í desktop bakgrunni ef maður skildi tölvuna eftir ólæsta einhversstaðar. Næst tók hver viðbjóðurinn við af fætur öðrum, goatse.cz, eftir það meatspin, lemonparty, ofl. Með tímanum varð ég eins og allir sem ég umgengst ónæmur fyrir þessu og manni er farið að finnast þetta bara ógeðslega fyndið. Toppurinn hjá mér er klárlega dagurinn sem ég náði Bjarka. Bjarki skrapp út á miðjum fundi, ég rauk á fætur, settist í stólinn hans og byrjaði að “Tubgirl’a” tolvuna hans, þessi líka ótrúlega viðbjóðslega(fyndna núna) mynd komin beint í bakgrunninn hjá honum og svo var búið um þannig að hann sæji þetta ekki áður en hann lokaði tölvunni. Seinna um kvöldið hafði Hjördís kærastan hans fengið tölvuna að láni og opnaði hana tengda við skjávarpa á einhverjum fundi (fer ég ekki með rétt mál Bjarki? :) ) þar sem öll dýrðin blasti við. Sú hélt allavega að hann Bjarki sinn væri kominn í einhvern viðbjóðs klámbransa :D

Anyways, þrátt fyrir að hafa myndað ónæmi gagnvart svona viðbjóði þá er eitt vídjó á netinu, ber heitið 2 Girls, 1 Cup, svo mikið ógeðslegt að meiraðsegja hörðustu scat-lovers þurfa að horfa undan. Sjálfur gat ég bara horft á brot af byrjuninni áður en ég var hlaupinn inn á klósett með æluna í hálsinum. Svo fann ég þetta hrikalega fyndna myndband af aumingja ÖMMU einhvers drengs sem hafði það í sér að sýna henni þetta vídjó sem um ræðir:

Þessi er góður líka, best að horfa á þau bæði í einu ef maður nær að samstilla þau :)

Svo er mun meira af þessum viðbragða vídjóum á netinu :)þetta ber svolítið uppúr af þeim

Ferrofluids

Nov 20

Ég verð að setja þetta vídjó hingað inn, ef ég skil þetta rétt þá er þetta einhver fljótandi málmblanda og hún bregst svona við segulsviðum sem þessir tveir “turnar” mynda. Þetta er s.s. ekki gert í tölvu:

Japanskir sjónvarpsþættir + Svefngalsi = Krampakast úr hlátri

Nov 20

Vá ég hreinlega elska Japanska sjónvarpsþætti, ég er hérna í svefngalsa eftir að hafa lokið við vikulangt verkefni og er hreinlega liggjandi hérna í krampakasti úr hlátri yfir hvað þeim dettur í hug. Það er líka eitthvað við Japan sem heillar mig, mig er farið að langa mikið þangað í skiptinám og sérstaklega að læra japönsku.

Leikur inná bókasafni (má ekki heyrast hávaði)

Hrekkir á skíðasvæði

Pacman

Human tetris

Slowmotion Foodfight - þetta er reyndar bara kúl hjá þeim :)

Að reyna að læra …

Nov 15

Ég er að reyna eins og ég get að einbeita mér við að læra en ég get ekki hætt að horfa á og hlægja yfir eftirfarandi vídjóum á jútjúb:

Fyrsta myndbandið - Achmed the dead terrorist:


Seinna myndbandið - Tónlistarmyndband frá Indlandi:


Þetta sýnir ágætlega “cultural differences” :) , á meðan Indverjarnir eru að missa sig yfir þessu lagi þá efast ég um að Bubbi mortens kveikji eitthvað í þeim með Stál og hnífur :) . Það er kannski vert að taka fram að textinn við þetta er ekki bein þýðing heldur hálfgert grín.

Svo verð ég að bæta einu við sem mikill aðdáandi Heroes þáttanna, ég er búinn að finna endi á þáttunum sem ég er reiðubúinn til að sætta mig við!

Þær tvær:

…að kyssast! :o

Hættur að lesa mbl.is

Nov 13

Ég er kominn með alveg feikinóg af þessum athyglissjúku moggabloggurum sem blogga, eins og lífið lægi við þeim, við allar greinar einungis til þess eins að fá gesti á síðurnar hjá sér. Gott dæmi um þetta eru meðlimir Feministafélags Íslands sem stunda þessa iðju m.a. við allar þær greinar þar sem eitthvað karlkyns kemur fyrir en hvergi minnst á konur, þvílíkt karlrembusamfélag sem við búum í. Þær njóta þess svo að svara eins og óþroskaðar litlar skólastelpur, ómálefnalega og hreinlega heimskulega, þegar pirraður almúginn lætur þær heyra það. Blog.is “umræðan” svo á miðkafla mbl.is forsíðunnar er engu skárri en þar eru greinar þessara bloggara birtar eins og hver önnur frétt.

Ég les blogg fólks sem ég þekki og hef áhuga á að vita hvað er að gerast hjá en hef ekki nokkurn áhuga á að láta mbl.is þröngva uppá mig heimskulegum skoðunum fólks þegar ég er að reyna að lesa fréttirnar.

Ég hvet alla sem mér eru sammála að skipta yfir á vísi.is, nú eða digg :)

Edit:
Þeir sem eru orðnir alveg brjálaðir yfir þessu líka en geta ekki vanið sig af því að skrifa mbl.is í address bar mega þakka fyrir hvað ég er mikið nörd því eftirfarandi leiðbeiningar redda þessum vanda:

  1. Smelltu á Start og Run
  2. Skrifaðu þar: notepad C:\WINDOWS\System32\drivers\etc\hosts
  3. Neðsta línan í skránni ætti að innihalda t.d. 127.0.0.1 localhost
  4. Bættu við tveimur línum á eftir neðstu línunni:
    87.117.209.208 mbl.is
    87.117.209.208 www.mbl.is
  5. Smelltu á File og Save og lokaðu notepad
  6. Til að færa allt í eðlilegt horf aftur þarf einfaldlega að fylgja þessum sömu leiðbeiningum nema taka út þessar línur sem bætt var inn og vista skjalið aftur

Eftir þetta fer vafrinn þinn alltaf á visir.is ef þú skrifar mbl.is eða www.mbl.is, vandi leystur í mínu tilfelli amk.

Edit: Íbbi sendi mér örlítið mildari aðferð: http://blogg.kj.is/?p=2056
Gott að sjá að fleiri en ég eru komnir með gjörsamlega nóg af þessu

Kaloríur!

Nov 13

Ég er fór aðeins rétt í þessu að spá í kaloríufjölda í mat sem ég ét og ákvað að taka bjórinn inn í dæmið, tökum eitt köben djamm:

  1. lítill carls special = 330ml bjór = (3.3 * 38) = 125.4 kaloríur
  2. 125.4 * 12 stykki (gætum hófs) = 1504 kaloríur
  3. 6 mcDonalds ostborgarar + kók(500ml) = (6 * 300)+(5*42) = 1800 + 210 = 2010 kaloríur
  4. 1 Durum med kylling + kók(500ml) = 500 kaloríur + (5*42) = 710 kaloríur
  5. Samtals um 4.224 kaloríur, Meðalmaður á þessum aldri er held ég að brenna um 2.500 á dag, skv. einhverjum útreikningum og íþróttagenum á ég að vera að brenna um 3.500
  6. Matur og snarl sem étið er yfir daginn fram að kvöldi er ekki tekinn inn í myndina þannig að svona dagur fer uppí 6.000 kaloríur giska ég á
  7. 3500 excess kaloríur sem líkaminn þarf ekki að nota = 500gr af fitu :)

Þegar Egill kom tókum við 3 svona daga, sem eru um 18.000 kaloríur, og sömu sögu var að segja þegar Jón Örn kom þessa helgi, reyndar vorum við örlítið rólegri en engu að síður 3 daga fjör :)

Og nei ég er ekki kominn með bjórvömb, ræktin er hinum megin við götuna(sem ég fer reglulega í) og svo er ég í fótbolta 2x í viku og stefni auðvitað í að verða helköttaður fyrir jól, massaður í rusl og tanaður í drasl! :)

P.s. já ég fylgist líka með næturvaktinni hérna úti, þökk sé Jóni Erni, hann kom með þetta á disk og svo er þetta allt komið á Jútjúb

Hvernig á að strauja?

Nov 08

Ég vildi bara deila þessu fína myndbandi með ykkur sem ég fann á netinu þegar ég var að reyna að læra að strauja :)

Got it all figured out now :)

En svona án djóks þá fann ég svo þessi fínu kennslumyndbönd:
Skyrtur
Bæði

Barða og Egil Glysnegra í Eurovision!

Nov 04

HAHA ég var að horfa á lagið hans Barða á ruv.is. Það er kominn tími til að við hættum að reyna að senda góð lög í þessa keppni lélegra laga, þetta lag er bókaður sigurvegari enda europopp dauðans. Og hvað er það sem austantjaldsþjóðirnar og megnið af löndum meginlandsins hlustar helst á, jú europopp, enda þaðan sem nafnið kemur.

Eftir mikinn hlátur að lagi loknu bætti Erpur svo enn við húmorinn með því að kalla Gillzinegger “Egil Glysnegra” :)

Stiklað á stóru

Nov 01

Þar sem vefurinn hefur legið niðri núna í viku hef ég fært hann yfir á vél sem ég er með á leigu í Bretalandinu. Ég breytti líka um útlit, þeminn er svona dass af danmörku og dass af Glitni :). Nú kemur sitt lítið af hverju sem mig hefur langað að blogga um síðustu dagana:

Ég er farinn að hlakka alveg hrikalega til að koma heim yfir jólin og áramótin, Krissi kemur hingað 19. des og við ætlum að mála bæinn rauðan fram á 22. des, en þá fljúgum við heim og beint í jólahlaðborð BOS (Stálbræðrafélagið :) ). Ég hef núna verið í 2 vikur að læra eins og vitleysingur og sé seinnipart desember alveg í hyllingum!

Ofan á það er brósi litli hann Garðar nýorðinn 17 ára sem þýðir bara eitt…. nei annars það þýðir alveg þrennt:

  • ENGIN LEIGUBÍLARÖÐ FYRIR MIG UM GAMLÁRSKVÖLD
  • Ekkert leigubílastand allan tímann sem ég er heima… period
  • Ekkert vesen eins og að sækja bílinn daginn eftir

Að vera með driver á gamlárskvöld/nýársmorgun er eins og að vera með einkaflugmann aðra daga ársins. Þess má geta að ég er byrjaður að taka við pant-ég requestum en þau sæti eiga eftir að kosta an arm and a leg. Eftir tvö ár fær svo næsti litli bróðir bílpróf þannig að ég sé ekki fram á að ég sé að fara að ferðast neitt á Íslandi án einkabílstjóra.

Ég fór í ræktina um daginn og þar voru svona arabastelpur að æfa sig í fullum herklæðum, þeas það rétt sást í andlitið á þeim fyrir slæðum og drasli. Stærðarinnar spikfeitur arabagaur fylgdi þeim um hvert fótspor og fór alltaf í einhver tæki rétt hjá þeim til að það sæjist ekki hvað í raun var um að vera; þær voru eins og hundar í bandi greyjin. Það alveg lá við að ég færi úr bolnum massaðurídrasleftirlyftingarnar, greiddi hárið aftur og gæfi mig á tal við eina þeirra, bara til að sjá hvort varðhundurinn þeirra myndi froðufella og pútta cap in my brainhouse eða sprengja pleisið í loft upp.

Bíbí var skýrður TuB’s sem má rekja með eftirfandi hætti: BíBí = BB (á ensku) = 2 B’s = TuB’s. Hann er allur að koma til kallinn, sofnaði meiraðsegja í lófanum á mér áðan, ég er búinn að uppfæra myndaalbúmin nokkuð, bætti m.a. inn vídjói af fuglinum að renna niður lampann, nokkuð fyndið.

Ég auglýsi eftir einstaklingum í eftirfarandi störf:

  • Kenna mér principal component-, factor-, og discriminant analysis í multivariate statistics ásamt túlkunum á eigingildum og correlation fylkjum á gögnum.
  • Kenna mér að strauja
  • Kenna mér að elda hollan mat sem jafnframt er góður, ég kann alveg að elda hafragraut sem er bæði hollur og góður en ég er að tala um eitthvað beyond that
  • Kenna mér vera skipulagður og hætta að gera allt á síðustu stundu
  • Halda íbúðinni minni hreinni, ath ég bið ekki um kennslu hér, mig vantar mannafla, viðkomandi má eiga dósirnar sem finnast í íbúðinni við þrifin

Fyrir að verða 2 vikum síðan kom Egill í heimsókn. Hann kom með harðfisk og danskíslenskaíslenskadanskaorðabók sem ég bað um að heiman, enda hálfgert must hérna :). Ég skal reyna að hafa þessa sögu stutta… Hann lenti á fimmtudagskvöldi og þegar hingað var komið fengum við okkur öllara eða tvo… eða voru þeir svona þrír fjórir… fimm? Við skelltum okkur svo í bæinn voðalega casually klæddir og bjuggumst ekki við neinu hörkutjútti. Í bænum hittum við randomly Steina sem Egill kannaðist við sem slóst í för með okkur ….long story short… við komum heim uppúr kl 7 :)
Þar sem upprunalega planið hafði verið að djamma almennilega á föstudegi og laugardegi þá þýddi ekkert að hanga í þynnkunni eftir að við vöknuðum uppúr kl 16, drifum okkur á lappir um kl 19 og fórum að hafa okkur til og pína í okkur afréttara. Einir kom svo til okkar og slóst með í för niðrí bæ þar sem við fórum á Jolie, sem er staður sem frænka Einis á ásamt Dóru Takefúsa. Þarna inni var svona stór-sirkusstemmning og ekki alveg andrúmsloftið sem við vorum að leita að þannig að við héldum áfram för okkar niður í miðbæ, út úr Nörrebro. Planið var að reyna að finna einhverja almennilega klúbba sem við og gerðum, Emma og Jazzhouse. Emma er algjörlega my kind of pleis, stór klúbbur með almennilegri tónlist, 2-3 börum, stóru dansgólfi og fullt af sófum og borðum til að sitja við og þeir eru með góðan Móhító :). Við átum svo helling af draslmat og fórum heim uppúr kl 5. Ég hafði keypt þessa fínu stærðarinnar “vindsængurdýnu” sem maður stingur í samband og eftir 2 mín stendur stærðarinnar rúm á gólfinu, það stórt að lökin sem ég á náðu ekki yfir hana. Ég var svo snjall að búa um og gera klárt áður en við fórum út til að þurfa ekki að standa í því um morguninn en Egill sofnaði á sófanum í xbox :) þannig að það skipti litlu. Ég steinsofnaði nokkuð á undan honum eftir lauk-overdoze, note to self: ekki fá sér danska pylsu með lauk eftir djamm.

Daginn eftir, á laugardeginum vöknuðum við enn á ný sem hressleikinn uppmálaður og elduðum okkur eðal taquitos um kvöldið. Uppúr kl 20 fórum við á Sankt Hans Torv hérna í Nörrebro (skemmtistaðahverfi Nörrebro) þar sem við hittum Mariu, sem er dönsk vinkona Egils frá því þau voru saman í skóla í USA. Hún sýndi okkur nokkra eðal staði til að fara á þarna, sem er mjögott enda verður maður að þekkja þetta þegar fólk kemur í heimsókn og gerir kröfur um alvuru fjör í bænum :) Við enduðum svo með Eini og félögum og Mariu á Jazzhouse þar sem við vorum fram undir morgun. Note to self: Southern Comfort í Lime = Gott. Ég borðaði 2 kebab og svo 6 ostborgara á McDonalds eftir að við fórum út af staðnum og var ennþá svangur, ég skil þetta ekki alveg, greinilegt að svengdartaugarnar hafi orðið fyrir einhverju hnjaski þessa helgina. Við rúlluðum heim uppúr kl 8 og þurftum að dröslast á lappir til að koma Agli uppá flugvöll, þið getið rétt ímyndað ykkur hversu tussulegir við vorum í lestinni.

Ég held að nýrum og lifur hafi ekki veitt af þessari fínu pásu sem ég hef gefið þeim núna eina helgi amk. Ég hef held ég ekki tekið svona á því 3 daga í röð frá því í Eyjum einhverntímann í versló.