Kominn til landsins
Dec 24
…í fyrsta sinn í 4 mánuði. Ég hef hér með ákveðið að kíkja mun oftar heim til Íslands eftir áramót
Í gær lentum við Krissi á KEF uppúr kl 16, eftir ágætis fjör í Köben. Foreldrarnir voru auðvitað mættir til að pikka upp ungana við útganginn og var svo skundað heim enda mæting kl 19 uppí Perlu á jólahlaðborð BOS. Ég setti inn nokkrar myndir af þessu svaka skralli og get ekki sagt annað en ég hafi saknað Íslands mikið hvað þetta varðar, tjútt með krúwinu
Eftir viðburðaríka og skemmtilega nótt
var ég kominn á kreik heima rétt eftir hádegi. Við bræðurnir fórum í bíltúr í reddingar, m.a. að redda mér simkorti í símann minn þar sem ég hafði verið símalaus frá því ég fór frá Köben. Megnið af bíltúrnum fór reyndar í að liggja í hláturskrampa yfir því þegar Fannar fór að renna í gegnum lög á geisladisk sem Garðar hafði skrifað… niðurstaðan var sú að tónlistin á disknum væri fyrir illa gefið fólk og fékk diskurinn að fjúka út um gluggann
Það sem er af fartölvunni minni (sem skemmdist muniði) að frétta er eftirfarandi; Maggi (fyrrv. svili
) sem vinnur hjá EJS komst s.s. að þeirri niðurstöðu að móðurborðið hlyti að vera ónýtt og því tók ég á það ráð að panta nýtt frá USA, rándýr andsk…, en ég þarf nauðsynlega á tölvunni að halda til að leysa stórt verkefni í stærsta kúrsinum hjá mér í skólanum, ég hef til 11. jan. Mér til mikillar furðu og ánægju mætti einhver dama frá hraðsendingaþjónustu með móðurborðið nýja, ég bjóst ekki við því fyrr en fljótlega eftir áramót! Þegar heim var komið eftir svaka skötuveislu hjá Ömmu og Afa hófst ég handa við að skrúfa ferðatölvuna í sundur og 3 tímum og 3254 “skrúfuðum skrúfum” síðar var vélin komin saman á ný. Ég skrúfaði síðustu skrúfuna í, setti batteríið í hana og ýtti á POWER takkann. Þar sem rúmlega 60þús kr. voru í húfi létti mér mikið þegar tölvan startaði sér án nokkurra vandræða.
P.S. Sigga frænka og fjölskylda voru að fá sér lítinn hund og ég held að ég hafi sjaldan séð eins mikið <insert extremely væmið orð here>:
I can has your bone?
Þetta er s.s. tilvísun í lolcats
