Ég fann vídjó á jútjúb þar sem fólk er að dást að íslenska tungumálinu í einhverjum Latabæjarþætti þar sem eitt lag er sungið á íslensku:
Nema hvað að þegar ég byrjaði að spila þetta fór fuglinn að syngja með eins og aldrei fyrr… ég sem var búinn að eyða svo miklum tíma í að fá hann til að fýla TOOL…
Og já… ég er búinn að dusta rykið af sjálfum pöppísvipnum! -Svipurinn sem hjálpar mér að komast upp með allt sem mér sýnist resist that and you’re gooooood
Vá ég get ekki sagt að ég sakni þess mikið að búa á klakanum Ég var að enda við að kaupa miða á Smashing pumpkins 28. febrúar og í leiðinni ákvað ég að skoða hverjir eru að halda tónleika hérna á næstu mánuðum:
KoRn, janúarlok
Smashing pumpkins, febrúar
Mars Volta, febrúar
Queens of the stoneage, febrúar
DJ Shadow, mars
Kylie , Júní
Whitesnake, júní, haha Fannar á ekki að skella sér
Ég er núna í kúrsi sem heitir Applied Statistics, þar sem við notum tól á borð við R og S-Plus við tölfræðigreiningu, líkanagerð og úrvinnslu á gögnum sem við þurfum að greina og skila skýrslum fyrir. Ég er að segja frá þessu til að reyna að gera ykkur grein fyrir hversu fjölbreytilega kúrsa ég er að taka hérna á Computational Data Analysis línunni ! Ég er svo ánægður með þetta, það er hægt að gera þetta nám svo fjölbreytilegt og skemmtilegt, sem er snilld því maður fær fljótlega leið á því að vera að gera sömu hlutina endalaust. Anyways, hér er listinn af kúrsunum sem ég tek á vorönn 2008:
Real-Time graphics for Virtual Reality þar sem við búum til rendering engine, þar sem allskonar stærðfræðilíkön og útreikningar koma við sögu, skemmtilegir og fjölbreytilegir, m.a. í ljósútreikningum, árekstraprófunum(collision detection) og eðlisfræðihermunum. Advanced Autonomous Robots Forrita vélmenni! Enough said! Computer Animation and modeling Smíða módel í þrívídd með Autocad, 3Dstudio Max ofl.
Róbótakúrsinn er reyndar í allt annarri deild, rafmagns- og vélaverkfræðideildinni í DTU. Einir og Örn stungu uppá þessum kúrs við mig og þetta var aldrei nein spurning eftir það Maður er jafnframt skyldugur til að taka 15 ECTS(einingar) í öðrum deildum og víkka þannig sjóndeildarhringinn svo námið sé ekki of einhliða. Mér finnst þetta mjög sniðugt hjá þeim enda er þetta Applied Mathematics, sem ganga út á að nota stærðfræði í margvíslegum tilgangi, ekki bara sitja við borð og reikna
Verð bara að bæta við einu stuttu… Ég sat áðan í hádeginu í mötuneitinu, sem var stútfullt af nemendum, og var að hlusta á einhverja mússík með headphone’in tengd í tölvuna. Eftir nokkurn tíma leit ég upp og tók eftir því að óþægilega margir voru að gefa mér óþægilegt augnarráð og óþægilega margir voru hlægjandi og horfandi á mig sem benti óþægilega mikið til þess að ég væri aðhlátursefnið. Eftir smá stund hætti mér að lítast á blikuna og tók headphone’in úr eyrunum, sem eru þannig úr garði gerð að þau loka á flest önnur hljóð í umhverfinu. Við þetta áttaði ég mig á því að tónlistin var einnig á hæsta styrk á hátölurunum á tölvunni!!
Eftir að hafa roðnað eins og epli fyrir framan svona 100 manns tókst mér reyndar að líta á björtu hliðarnar, ég hefði getað verið að hlusta á eitthvað svona eins og Simmi á til að senda manni af og til… þá hefði ég held ég pakkað saman og sótt um í CBS.
Jæja ég er kominn aftur “heim” til Danmerkur. Jólafríið var mjög viðburðarríkt og skemmtileg , full (djamm)dagsskrá allan tímann, enda ekki við öðru að búast þegar við strákarnir re-unite’um!
Sérstakar þakkir fá svo eftirfarandi:
Valdi og Stella (foreldrar gellu mánaðarins) fyrir að hafa skellt sér með okkur eitt kvöldið og verið hin hressustu fram undir morgun, þrátt fyrir að Valdi þyrfti að mæta í vinnuna örfáum tímum síðar! Ég og Valdi reyndar tókum upp á því að vanda að byrja að bíta hvorn annan… ég á eftir að sjá hvernig Valdi lítur út en vona að hann sé jafn illa farinn og ég!
BOS fyrir snilldar jólahlaðborð, mjög skemmtilegt pókermót, góðan bolta og endalaust fjör um jólin
Krissi fyrir að tapa fyrir mér í lokaeinvígi pókermótsins
Mamma og pabbi fyrir eðal jól og dýrindis jólamat að vanda
Afi og Amma, Sigga frænka og fjölskylda fyrir matarboð!
Hulda fyrir að sannfæra mig um að fara ekki niðrí 101 miðbæ um áramótin
Sunneva fyrir að taka við opinni stöðu sálfræðings
Krissi fyrir að lána mér skyrtu og nöldra næstum ekkert yfir að ég sé ekki enn búinn að skila henni
Egill og co fyrir partíhöld
Höddi fyrir að vera duglegur að draga mig í mönshj
Margeir (fyrrverandi svili) fyrir að greina tölvuna mína(sem fór í hakk) rétt í gegnum msn
Sérstakar óþakkir fá eftirfarandi:
Reyka vodka fyrir þynnku
Viking fyrir þynnku
Vegamót, fyrir að hleypa ekki svarta manninum inn og láta röðina standa úti í kuldanum í yfir klukkutíma hans vegna
Húbba-Búbba fyrir að nást ekki úr rúmfötum, Mamma þú reddarussu
Garðar bró auli fyrir að nenna ekki að vera einkabílstjóri um áramótin
Bíltúrsblandið!!
Ég er jafnframt reynslunni ríkari eftir þetta góða frí, en læt mér nægja að nefna aðeins nokkra punkta sem hafa verið færðir í “Note-to-self minnið”:
Ekki plana að klára verkefni yfir jólin, það er enginn tími til þess og ef það er einhver tími til þess þá fer hann í eitthvað annað
Ekki sofna með stórt, skærblátt Húbba-Búbba tyggjó uppí sér……..
Þegar maður fer í frí og skilur íbúðina sína eftir í yfir 2 vikur er skynsamlegt að hella klóri eða sterkri sápu í öll niðurföll, annars lyktar íbúðin eins og ruslageymsla þegar heim er komið!
Besta pókerfeisið er að vera skelþunnur, með brennivínsrödd dauðans og skartandi trucker sólgleraugum… ekki má svo gleyma að mæta fashionably late
Ég er reyndar búinn að lýsa óánægju minni við óábyrga foreldra stúlkunnar, svona myndir gera ekkert nema að hringla í eggjastokkum landans! Áróðurs-tól segi ég!
Sunneva og Kristín, þið hafið tíma fram að næstu mánaðarmótum til að senda inn myndir í keppnina um ungfrú Febrúar, að öðru leiti er Lilla Hjartmann sjálfkjörin!