Þegar ég flutti til Danmerkur tók ég strax eftir því hvað netið þar er mun hraðvirkara og betra. Ég borga fyrir 25Mbita tengingu og fæ 25Mbita tengingu. Hér á Íslandi virðist þessu vera háttað öðruvísi því eftir mínum skilningi eru internetþjónustuaðilar hérlendis að svíkja peninga úr viðskiptavinum sínum og enginn virðist gera neitt í því. Ég tók á það ráð fyrir ári síðan að byrja að mæla nettenginguna heima sem HIVE útvegar okkur. Mælingin fer þannig fram að á 5 mínútna fresti sækir tölva upplýsingar af HIVE beininum um hraða til og frá honum ásamt fjölda virkra tenginga. Þessar mælingar sýna svart á hvítu að hive veitir í mínu tilfelli aðeins að hámarki 60% af þeirri þjónustu sem ég borga þeim fyrir. Þeir rukka mig fyrir 12Mbita tengingu og gefa mér aðeins 7.2Mbita. Burt séð frá þessu er tengingin einnig léleg að öðru leiti sem m.a. gerir það nánast ómögulegt fyrir menn að stunda netleiki.
Ég sendi HIVE fyrirspurn varðandi þetta og krafðist svara sem ég og fékk:
Sæl veriði íbúar Gauksáss.
Eins og er tekið fram í skilmálum okkar er verið að tala um hraða Allt að 12 Mb. Er það við bestu mögulegu skilyrði.
Það er að sjálfsögðu svo margt sem getur spilað inn í hraðatap, fjarlægð frá símstöð, ástand koparstrengsins, símatenglar o.fl þ.h.
Þ.a.l. getur enginn ábyrgst hraða á ADSL tengingum.
Kær kveðja / Best regards
Þjónustusvið
Ég vil benda á að svar þeirra er í engu samhengi við auglýsingar þeirra(afrit), né skilmála (afrit 1. febrúar 2008 kl 15:40 )
Nú verð ég hreinlega að spyrja hvort þetta sé almennt eitthvað sem þeir eiga að komast upp með og hvort þetta sé ekki ágætis efni í málaferli. Þrátt fyrir að þeir segjast taka fram “Allt að 12Mb” þá hljóta að vera einhver takmörk sett varðandi mun á milli þeirrar þjónustu sem auglýst er og þeirri sem veitt er í raun! Ég vona að fleiri en ég fari að hugsa út í þetta og láta ekki vaða yfir sig með svona kjaftæði. Finnið frekar þjónustuaðila sem getur veitt ykkur þá þjónustu sem auglýst er og þið borgið fyrir!
Edit: Samkvæmt einum af lögfræðingum mínum, Margréti:
1.) að mínu mati er þetta gölluð þjónusta, skv. kaupalögunum nr. 50/2000 þá er óheimilt að gefa upplýsingar um vöru sem hún ekki uppfyllir - þegar vara uppfyllir ekki slíkar kröfur á neytandi rétt á 1)afslætti, 2.)skaðabótum, 3.) rifta samningi eða 4.)rifta samningi og krefkjast skaðabóta
Þeir geta ekki fyrrað sig þessari ábyrgð með einhverjum footnote texta í samningnum og ef það væri ætlunin, þá bera þeir sönnunarbirgði fyrir því að þeir hafi kynnt neytanda þessi gögn!
Edit: Frá öðrum lögfræðingi mínum, Haraldi:
Af: http://www.althingi.is/altext/lagas/nuna/2000042.html - lög um þjónustukaup :
9. gr. Seld þjónusta telst gölluð ef:
…
2. seljandi þjónustu hefur gefið rangar eða villandi upplýsingar í auglýsingum eða öðrum tilkynningum sem beint er að almenningi eða neytanda sérstaklega enda hafi þær verið forsenda fyrir kaupum á þjónustu
17. gr. Vilji neytandi bera fyrir sig galla á keyptri þjónustu skal hann tilkynna seljanda það innan sanngjarns frests eftir að neytandinn vissi eða mátti hafa verið ljóst að hún væri gölluð.
Ég hvet sem flesta sem telja sig vera í sömu sporum og ég, óháð því hver internetþjónustuaðilinn er, að hafa samband við neytendastofnun(neytendasamtökin) eða óska eftir áliti kærunefndar, sjá ofar. Ég hef það jafnframt eftir áreiðanlegum heimildum að vandamálið sé ekki það að fyrirtækin séu að brjóta lög, heldur er vandamálið það að allt of fáir gera sér grein fyrir því að verið sé að brjóta á sér og allt of fáir gera svo eitthvað í þessu!