Smashing pumpkins, heimsóknir ofl.
Mar 03
Haffi kíkti hingað í heimsókn í síðustu viku og var í 5 daga. Niðurstaða þeirrar heimsóknar er sú að
- sófinn er betri en vindsængin
- gestasængin er aaaaaaaaaaaaalltof viðustyggilega stór og heit
- ég er með ofnæmi fyrir hrotum og hugsanlega furuhnetum
Annars var bara fjör hjá okkur þar sem bjór, xbox og reyka vodka komu nú við sögu. Ég bauð svo nokkrum hingað í mat á föstudeginum og eldaði kjúklingasalat að hætti mömmu. Í því partíi komst ég að því að ég var með ofnæmi fyrir einhverju, líklegast furuhnetum, enda allur rauðflekkóttur í framan og leið eins og ég væri með astma, þakkir fá þeir sem tóku myndir af þessu, fannst þetta voða fyndið og pirruðu mig duglega mest allt kvöldið.
Á miðvikudeginum fór ég svo á tónleika með Smashing pumpkins í Valby hallen. Ég er reyndar enginn svaka aðdáandi þeirra en mér fannst þessir tónleikar mjög góðir og þeir fóru langt framar mínum vonum… því miður þar sem ég þurfti að vakna svo HRESS morguninn eftir til að fara að vinna.
Hulda kom svo á fimmtudaginn og var í 3 daga, tókst m.a. að gera mig að miklum aðdáanda sushi og kenndi mér taktana við þetta. Við fórum á Sticks’n'Sushi sem ég mæli með, frábær staður með góðum mat. Reyndar eru 5 slíkir staðir í Kaupmannahöfn og allir með ólíku sniði, þessi sem við fórum á nálægt Nörreport var eins og að fara fínt út að borða, sem var akkúrat það sem við vorum að leita að. Á föstudaginn grilluðum við okkur nautasteik og meððí
. Laugardagurinn fór svo í verslunarleiðangur og afmælispartí um kvöldið hjá Evu og Erni. Við enduðum svo kvöldið hópurinn á Vega, næturklúbbi á Vesterbro, þar sem drepleiðinlegir skífuþeytar gerðu út af við okkur. Áðan ætlaði ég svo að baka köku… ég hafði keypt þennan “easy few steps” pakka þar sem niðurstaðan hefði átt að vera ljúffeng pistasíukaka með glassúri… þar til ég fattaði að fjandans matarolían sem ég notaði í kökuna var með hvítlauk! Mmmmm the smell….