Search

Rss Posts

Rss Comments

Login

 

Posts from April, 2008

Veðrið!

Apr 29

Vá ég var nöldrandi yfir því í allan vetur hvað veðrið í Danaveldi væri svipað leiðindar skítviðrinu sem er heima á veturna alltaf. Núna í apríl tóku veðurguðirnir hérna kipp og hér hefur verið 15-22°C hiti í næstum 2 vikur. Núna er 18 stiga hiti í skugga…

reykjavik_copenhagen_29.04.2008

í morgun fór ég í skólann í stuttermabol og stuttbuxum á hjólinu. Svo fórum við strákarnir í 14 manna útibolta eins og venjan er 2-3x í viku í blíðunni. Eftir þetta var drukkinn einn öl eða svo og lærdómi sinnt. Ég var að koma heim sveittur eins og selur og sit úti á svölum og læt renna af mér (svita). Svo á ég flug heim í kvöld kl 21:30 með iceland express og verð á Íslandinu í 6 daga. Ég stefni á að láta dekra við mig MIKIÐ :), sinna cónan, læra eins og brjálæðingur og mæta hress á árshátíð BOS! Veitir ekki af, ég get talið tjútt ársins á annarri hendi!

Status update!

Apr 02

Jæja, mánuður liðinn frá síðasta bloggi. Það hefur verið mikið að gera undanfarnar vikur, aðallega í skólanum en líka í vinnunni. Páskafríið allt fór í lærdóm þar sem kennararnir hérna virðast halda að páskafríið eigi að nýta í verkefnavinnu. Sem betur fer var ég heima á Íslandi í góðu yfirlæti, sem minnir mig á það… ætlunin var að fara með Krissa og Hödda í road trip um Ítalíu yfir páskana en ég þurfti að beila á því þar sem einn kennarinn setti deadline á HUGES skilaverkefni daginn eftir páskafrí. Ég ákvað því bara að fara heim í staðinn og vinna verkefnið þar, þetta var um mánuði fyrir páskafrí en ég sagði Huldu ekkert frá þessu. Daginn sem ég flaug heim um kvöldið bað ég Huldu um að vera á skype í kringum kl 23 því ég væri uppí skóla í verkefnavinnu og ætlaði að reyna að komast á skype í smá stund. Þegar heim var komið fékk ég far hjá Eini og Birki beint heim til Huldu, tengdist þráðlausa netinu hennar fyrir utan dyrnar og fór á skype þar. Ég þóttist vera á uppí skóla og var með webcam, við fórum að tala um að ég væri að fara til Ítalíu morguninn eftir og kæmi ekki heim fyrr en eftir 3 vikur og að Hulda greyjið þyrfti að eyða páskunum ein og fara makalaus á árshátíð hjá Kaupþingi ofl. :) Eftir svona 10 mínútna spjall snéri ég svo myndavélinni að útidyrahurðinni hjá henni og spurði hana hvort hún kannaðist eitthvað við númerið. Þakkir fá þeir sem vissu plottið og náðu að halda þessu fyrir sig allan þennan tíma.
Eftir þetta tók alvara lífsins við…. endalaus lærdómur, það mikill að ég fór ekki einusinni á skíði!

Lærdómurinn er ennþá á fullu, hellingur að gera, aðallega í virtual reality kúrsinum en robotics kúrsinn tekur sinn toll stundum, og talandi um robotics þá finnst mér þróun á vélmennum farin að nálgast einhver atriði úr Sci-Fi bíómynd:

Ég held að fáir geri sér grein fyrir þeirri þróunarvinnu sem hefur farið í svona tæki… svo gerðu einhverjir gæjar grín að þessu með vídjói sem hægt er að horfa á hér, a must-see verð ég að segja, ég öskraði úr hlátri mestallan tímann :)

Ég fékk svo minn fyrsta launaseðil um daginn, reyndar bara fyrir nokkra daga, og get ekki sagt að ég sé neitt himinlifandi yfir þessum 60% skatti sem er hérna! Bara rugl… ég þarf svo að gera mér ferð til skattstjóra og fá námsmannastatus á mig svo ég fái skattaafslátt og eitthvað. Ekki veitir af þar sem bara yfir páskana má segja að kostnaður hérna fyrir Íslendinga hafi hækkað um 30% vegna gengishruns krónunnar. Á móti kemur að svo má segja að ég hafi líka hækkað í launum um 30%, þannig að ég kvarta svosem ekki. GLBFX sjóðurinn hjá Glitni er líka að standa sig mjög vel þannig að þetta vesen á krónunni er langt frá því að takast að buga mann hérna.

Í gær skall svo vorið á með látum, mér skilst að það hafi farið upp í 17° hita um hádegisbilið. Ég fór á stuttermabol í skólann og klæddi mig ekki í peysu fyrr en um kvöldið þegar ég fór heim og tók upp línuskautana :) Ég er farinn að hlakka mikið til þess að upplifa danskt sumar, stefnan er að ferðast svolítið og koma nokkuð reglulega til Íslands.

By the way, hver ætlar að flytja með mér hingað ??