Search

Rss Posts

Rss Comments

Login

 

Posts from October, 2008

IPod Touch og VISA gengi

Oct 07

Ég verð hreinlega að dásama iPod touch. Ég á einn slíkann, 16GB útgáfuna, ég átti erfitt val fyrir höndum þegar ég þurfti að velja á milli iPod touch(16GB) og iPod video(160GB), mér fannst 16GB vera eitthvað svo lítið en touch tæknin alveg heillaði mig. Í dag er iPodinn minn orðin meiri lífsnauðsyn en námslán að heiman, svona án gríns. Ég nota iPodinn minn m.a. í eftirfarandi:

  • Skoða hitastigið úti áður en ég fer út á morgnanna(í gegnum netið) og skoða veðurspánna
  • Vafra á netinu í strætó (wifi)
  • Fletta upp gítargripum í skyndi þegar ég er að æfa mig á gítar (eitthvað guitar chord app)
  • Spila sudoku, bubble shooter, ofl. í strætó þegar mér leiðist
  • Sem hallamál þegar ég var að festa upp skápa
  • Skoða tölvupóstinn minn(gmail app) og google reader sem sækir allar nýjustu fréttir af þeim fréttasíðum sem ég skoða
  • Bloomberg (app)
  • Geyma allar mínar myndir á einum stað
  • Hlusta á tónlist(duh)
  • Stýra tónlistinni í græjunum þráðlaust í gegnum ipodinn minn
  • Sem sjónvarpsfjarstýringu og til að stjórna ipod mini’inum mínum þegar ég horfi á bíómyndir og þætti (Front row)
  • Sem “Air mouse” þannig að ég geti stjórnað músarbendlinum á sjónvarpstölvunni minni með því að halla honum á marga vegu
  • Til að fletta upp löglegum orðum í Scrabble svo Hulda hætti að svindla :D (CheckWord app)
  • Til að fletta upp í wikipedia (app)
  • Til að tengja mig inn á vefþjóninn heima og þennan sem þessi vefur er hýstur á (SSH)
  • Til að endurræsa lappann minn þegar hann frýs (SSH)
  • Til að kaupa tónlist ef mann vantar nauðsynlega “þetta lag” í gleðskapi
  • Horfa á video, bíómyndir, youtube ofl.

þetta er ekki einusinni tæmandi listi…

Svo ætlaði ég að tilkynna það opinberlega að við erum hætt að nota íslensku VISA kortin okkar hérna úti, það er útí hött, í dag er VISA gengið á DKK 30,42!!. Gengið á vef seðlabankans er hinsvegar 18,25 DKK. VISA gengið er því 60% yfir því sem það á að vera og má því segja að þessi 1-3% fráviksmörk sem þeir nefna á síðu sinni séu algjörlega úr lausu lofti gripin.

Allt farið til fjandans

Oct 06

Maður sleppir því að blogga í 2 mánuði og allt fer til fjandans, meira ruglið. Ég nenni ekki að blogga um allt sem við höfum verið að stússast undanfarna mánuði en í stuttu máli sagt: Það er dýrt að vera túristi í Króatíu, Bosnía Herzegovina… been there done that, Hulda takk fyrir rafmagnsgítar :) Atli frændi og Sigrún takk æðislega fyrir 2 frábær pit stop á okkar 3600km road trippi suður til Sviss og Ítalíu og til Danmerkur aftur. Gunniogfrú og Krissi takk fyrir snillldartíma í Lugano, much appreciated, Meghan Andresson takk fyrir fáránlega góðan American dinner, Nykredit takk fyrir lappa og laun í dönskum krónum, Íslenska krónan rest in peace.

Ég ætla að tileinka restinni af blogginu í fræðsluefni um kreppuna miklu sem æðir nú yfir heiminn, þó flestir séu væntanlega orðnir lang þreyttir á þessu og vilja bara hugsa happy thoughts og gleyma allri þessari vitleysu.

Hvað átti stóran hlut í því að margir af stærstu bönkum heims hafa orðið gjaldþrota nánast fyrirvaralaust og kom þessari heimskreppu af stað? Of vægar eftirlitsreglur bandaríska fjármálaeftirlitsins þar sem m.a. Subprime lending gat viðgengist án þess að nokkuð væri við haft. Þeir sem ekki hafa heyrt um þetta en vilja ólmir skilja um hvað málið snýst, flettið í gegnum þetta slideshow. Það lítur fyrst út fyrir að vera eitthvað drasl en þetta er mergur málsins og einföld en góð útskýring á annars nokkuð flóknum hlut.

Annað sem á stóran hlut að máli eru afleiðuviðskipti. Það er talað um að allt að 60% af olíuverðinu í dag eru pure speculation, það áttar sig á því hver heilvita maður að þegar hópur af blökkumönnum í Simbabwe gera gat á olíuleiðslu til kynda kofann sinn þá hefur það ekki slík og bein áhrif á heimsframleiðslu og byrgðir að daginn eftir eru olíufélög á Íslandi búin að hækka verðið hjá sér um 3 krónur. Olíuverð er bara eitt dæmi, það er annars ekkert að afleiðuviðskiptum sem slíkum, fínustu verkfæri en með lélegu eftirliti og vægum reglum er eftirfarandi raunveruleiki sem við þurfum að horfast í augu við:

$1 Quadrillion is the amount held globally in derivatives, which are values of other underlying financial instruments; making small amounts of assets worth many times more on paper for investment banks. The combined value of all the assets on earth are estimated to be $100 trillion.

Til gamans má geta að Quadrillion er 1.000.000.000.000.000$, eða 1015. Til samanburðar er þjóðarframleiðsla(GDP) alls heimsins um 54.347.038.000.000$(5.4% af 1015) og Íslands 19.500.000.000$(0.035% af heimsframleiðslu). Ég er viljandi að sleppa því að breyta þessu yfir í ISK því að ég nenni ekki að uppfæra bloggið alla vikuna.

Og í beinu framhaldi af því… af hverju haldið þið að DOW Jones vísitalan hafi hrapað í dag þrátt fyrir að þessi stærðarinnar björgunarpakki Bandaríkjastjórnar hafi verið samþykktur. Einfaldlega vegna þess að þessir 700.000.000.000$ blikna í samanburði við það sem í raun þarf til að bjarga þessu og þeir vita það. Ekki að þessi björgunarpakki hafi bein áhrif á hlutabréfaverð en ef menn hefðu einhverja trú á þessu þá ætti það að hafa einhver jákvæð áhrif á það.

Í lokin vil ég benda á heimildamynd sem var að koma út núna í vikunni sem ber nafnið Zeitgeist Addendum og er framhald heimildamyndarinnar Zeitgeist. Báðar myndirnar eru um 10 mínútur að byrja en eftir það verða þær báðar nokkuð áhugaverðar. Edit: Þær eru töluvert fullar af samsæriskenningum en þrátt fyrir það með nokkra athyglisverða punkta. Eftir ábendingar frá Haffa ákvað ég að klára að horfa á Zeitgeist Addendum áður en ég get farið að lofsama hana :)

Pís!

Edit: Subprime bonds væru á íslenskunni undirmálsfasteignaveðlán en björgunaraðgerð bandaríkjaþings snýst m.a. um að kaupa þessi skuldabréf af bandarískum fjármálastofnunum, sjá frétt á mbl.is

Edit 2:Stórþakkir til Garðars og Pálmars brósa ásamt mömmu og pabba fyrir að koma hingað í heimsókn og hjálpa mikið til við flutninga og IKEA samsetningar :)