Enn ein önnin…
Feb 06
Jæja þá var fjórða önnin mín að byrja, þeir kúrsar sem ég er í eru:
- Planetary Physics
- Advanced data analysis and statistical modelling
- Pilot study eitthvað fyrir lokaverkefnið, leiðindar skyldukúrs
- Rendering framhald
Planetary physics kúrsinn er valkúrs sem ég valdi til að svala nördaþörfinni í mér
einnig til þess að vera með einhverjar eðlisfræðieiningar. Svo geri ég ráð fyrir að klára í kringum næstu jól. Eftir það er ég ekki alveg viss um hvað tekur við en það eru vissulega margir möguleikar í boði. Þeir nemendur sem útskrifast úr M.Sc. eða Ph.d. námi hérna í Danmörku fá full laun frá danska ríkinu strax eftir útskrift í allt að tvö ár ef þeir fá ekki vinnu í tengslum við það sem þeir voru að læra. Ef ég færi í Phd nám í DTU þá myndi ég fá 25.000dkk á mánuði frá skólanum ásamt því að geta unnið sjálfur áfram í Nykredit. Ég verð því að segja að það er ekki mjög margt að ýta manni heim til Íslands strax eftir nám… ég tala nú ekki um ef við þurfum að horfa uppá einhverja vinstristjórn gera Ísland að systurþjóð Zimbabwe.