Search

Rss Posts

Rss Comments

Login

 

Posts from June, 2009

Endasprettur!

Jun 11

Nú er heilinn í mér um það bil að nálgast þolmörk verkefnaálags. Ég get auðvitað sjálfum mér um kennt þar sem ég er mikið fyrir að fresta hlutunum fram á síðustu stundu þar sem ég vinn lang best undir álagi. Ég er búinn í öllum kúrsum nema einum og skil í honum eru á miðnætti á morgun, föstudag (24 Hours and counting). Eini gallinn við að vinna undir álagi á síðustu stundum er hvað er erfitt að lesa þungar greinar sem þarf að einbeita sér mikið við til að skilja.
Þetta er samt allt að koma, ég er s.s. að lesa grein sem heitir A Survey on Participating Media Rendering Techniques. Hún fjallar um leiðir til að herma hegðun ljóseinda í efni, og er ágætis inngangur inní það sem mastersverkefnið mitt er um, sem ég byrja á í sumar. Ég þarf svo að nota ákveðnar jöfnur og aðferðir þarna í hermun þar sem útkoman ætti að vera raunverulega útlítandi vökvi eftir gefnum breytum.
T.d. ef ég gef módelinu efnissamsetningu mjólkur ásamt brotstuðli hverrar sameindar, ætti aðferðin að geta teiknað raunverulega útlítandi mynd upp í þrívídd. Dæmi (ath. þetta er ekki ljósmynd heldur “rendered” útkoma úr slíku módeli):


þar sem eftirfarandi jafna, sem lýsir lýsingu efnisins, er meginpartur af módelinu:

Þetta er það sem ég elska við applied mathematics :) verið að nota stærðfræði til að gera eitthvað skemmtilegt.

Xbox 360

Jun 02

Í desember árið 2006 var ég að velta því fyrir mér hvaða leikjatölvu ég ætti að kaupa. Ég tók þá ákvörðun að kaupa Xbox 360 í febrúar 2007 og hef ekki séð eftir því síðan þá. Núna voru Microsoft endanlega að sýna fram á að þessi ákvörðun var umþaðbil sú besta sem ég tók það árið…

Ég ætla líka að taka til baka það sem ég sagði þá að grafíkin væri ekki eins góð og í Playstation, ég vissi einfaldlega ekki betur, grafíkin er osum :)