Jæja, ég veit að sumum finnst þetta ekkert voðalega merkilegt en geimfarið Phoenix var að lenda á Mars. Ég held að líkurnar á að allt myndi takast hafi verið um 50/50. Geimfarið er búið að vera um 10 mánuði á leiðinni þangað og á að framkvæma rannsóknir á ís sem það lendir á, m.a. til að athuga með líf þar. Hér er tilkynningin af NASA síðunni sem hefur verið með niðurtalningu í gangi:
A NASA spacecraft landed in the Martian arctic today to begin three months of examining a site chosen for the likelihood of having frozen water within reach of the lander’s robotic arm.
Radio signals received at 4:53 p.m. Pacific Time confirmed that the Phoenix Mars Lander had survived its difficult final descent and touchdown 15 minutes earlier. In the intervening time, those signals crossed the distance from Mars to Earth at the speed of light.
Nú er ég á endasprettinum með lokaverkefnið í real-time graphics for virtual reality kúrsinum… ég útskýri seinna um hvað það snýst en ég er búinn að vera að missa mig í sólpöllum. M.ö.o. flottum aukahlutum sem hafa lítið að gera með einkunnagjöf nema grunnvirknin sé 100% til staðar . Hér er lítið vídjó af afrakstrinum:
Ath, þetta er ekki gert í einhverju hreyfimyndaforriti heldur er tölvan að teikna þetta á rauntíma og skjákortið sér um stærsta hlutann af útreikningunum.
Það er búið að vera brjálað að gera að undanförnu í skólanum og nú stefnir í 24/7 vinnu næstu 3 vikurnar. Ég er svona við það að bugast undan verkefnaálagi en þetta hefst, ég get ekki beðið eftir að klára þessa önn og byrja svo í (vonandi auðveldum) júníkúrs,Stochastic Simulation. Ekki nóg með að ég sé búinn að vera á fullu í allan vetur að vinna verkefni heldur þarf ég svo að kynna verkefnið mitt í einum kúrsinum á einhverri ráðstefnu (Vision day) með fyrirlestri, plaggati og einhverju rugli! Stundum held ég að kennararnir telji að nemendur hafi afkastagetu á við heilan vinnustað. Ég get reyndar svolítið sjálfum mér um kennt, þetta er 10 ECTS kúrs þar sem mælt er með að 3 séu saman í hóp en ég hef svo litla trú á þessu liði sem er með mér í kúrsinum að ég ákvað að bíta bara á jaxlinn og vera einn.
Annars fann ég þessa mynd á því stutta nethangsi sem ég tók í dag, mynd af sólmyrkva á suðurpólnum, helvíti kúl
Vá ég var nöldrandi yfir því í allan vetur hvað veðrið í Danaveldi væri svipað leiðindar skítviðrinu sem er heima á veturna alltaf. Núna í apríl tóku veðurguðirnir hérna kipp og hér hefur verið 15-22°C hiti í næstum 2 vikur. Núna er 18 stiga hiti í skugga…
í morgun fór ég í skólann í stuttermabol og stuttbuxum á hjólinu. Svo fórum við strákarnir í 14 manna útibolta eins og venjan er 2-3x í viku í blíðunni. Eftir þetta var drukkinn einn öl eða svo og lærdómi sinnt. Ég var að koma heim sveittur eins og selur og sit úti á svölum og læt renna af mér (svita). Svo á ég flug heim í kvöld kl 21:30 með iceland express og verð á Íslandinu í 6 daga. Ég stefni á að láta dekra við mig MIKIÐ :), sinna cónan, læra eins og brjálæðingur og mæta hress á árshátíð BOS! Veitir ekki af, ég get talið tjútt ársins á annarri hendi!
Jæja, mánuður liðinn frá síðasta bloggi. Það hefur verið mikið að gera undanfarnar vikur, aðallega í skólanum en líka í vinnunni. Páskafríið allt fór í lærdóm þar sem kennararnir hérna virðast halda að páskafríið eigi að nýta í verkefnavinnu. Sem betur fer var ég heima á Íslandi í góðu yfirlæti, sem minnir mig á það… ætlunin var að fara með Krissa og Hödda í road trip um Ítalíu yfir páskana en ég þurfti að beila á því þar sem einn kennarinn setti deadline á HUGES skilaverkefni daginn eftir páskafrí. Ég ákvað því bara að fara heim í staðinn og vinna verkefnið þar, þetta var um mánuði fyrir páskafrí en ég sagði Huldu ekkert frá þessu. Daginn sem ég flaug heim um kvöldið bað ég Huldu um að vera á skype í kringum kl 23 því ég væri uppí skóla í verkefnavinnu og ætlaði að reyna að komast á skype í smá stund. Þegar heim var komið fékk ég far hjá Eini og Birki beint heim til Huldu, tengdist þráðlausa netinu hennar fyrir utan dyrnar og fór á skype þar. Ég þóttist vera á uppí skóla og var með webcam, við fórum að tala um að ég væri að fara til Ítalíu morguninn eftir og kæmi ekki heim fyrr en eftir 3 vikur og að Hulda greyjið þyrfti að eyða páskunum ein og fara makalaus á árshátíð hjá Kaupþingi ofl. Eftir svona 10 mínútna spjall snéri ég svo myndavélinni að útidyrahurðinni hjá henni og spurði hana hvort hún kannaðist eitthvað við númerið. Þakkir fá þeir sem vissu plottið og náðu að halda þessu fyrir sig allan þennan tíma.
Eftir þetta tók alvara lífsins við…. endalaus lærdómur, það mikill að ég fór ekki einusinni á skíði!
Lærdómurinn er ennþá á fullu, hellingur að gera, aðallega í virtual reality kúrsinum en robotics kúrsinn tekur sinn toll stundum, og talandi um robotics þá finnst mér þróun á vélmennum farin að nálgast einhver atriði úr Sci-Fi bíómynd:
Ég held að fáir geri sér grein fyrir þeirri þróunarvinnu sem hefur farið í svona tæki… svo gerðu einhverjir gæjar grín að þessu með vídjói sem hægt er að horfa á hér, a must-see verð ég að segja, ég öskraði úr hlátri mestallan tímann
Ég fékk svo minn fyrsta launaseðil um daginn, reyndar bara fyrir nokkra daga, og get ekki sagt að ég sé neitt himinlifandi yfir þessum 60% skatti sem er hérna! Bara rugl… ég þarf svo að gera mér ferð til skattstjóra og fá námsmannastatus á mig svo ég fái skattaafslátt og eitthvað. Ekki veitir af þar sem bara yfir páskana má segja að kostnaður hérna fyrir Íslendinga hafi hækkað um 30% vegna gengishruns krónunnar. Á móti kemur að svo má segja að ég hafi líka hækkað í launum um 30%, þannig að ég kvarta svosem ekki. GLBFX sjóðurinn hjá Glitni er líka að standa sig mjög vel þannig að þetta vesen á krónunni er langt frá því að takast að buga mann hérna.
Í gær skall svo vorið á með látum, mér skilst að það hafi farið upp í 17° hita um hádegisbilið. Ég fór á stuttermabol í skólann og klæddi mig ekki í peysu fyrr en um kvöldið þegar ég fór heim og tók upp línuskautana Ég er farinn að hlakka mikið til þess að upplifa danskt sumar, stefnan er að ferðast svolítið og koma nokkuð reglulega til Íslands.
By the way, hver ætlar að flytja með mér hingað ??
Haffi kíkti hingað í heimsókn í síðustu viku og var í 5 daga. Niðurstaða þeirrar heimsóknar er sú að
sófinn er betri en vindsængin
gestasængin er aaaaaaaaaaaaalltof viðustyggilega stór og heit
ég er með ofnæmi fyrir hrotum og hugsanlega furuhnetum
Annars var bara fjör hjá okkur þar sem bjór, xbox og reyka vodka komu nú við sögu. Ég bauð svo nokkrum hingað í mat á föstudeginum og eldaði kjúklingasalat að hætti mömmu. Í því partíi komst ég að því að ég var með ofnæmi fyrir einhverju, líklegast furuhnetum, enda allur rauðflekkóttur í framan og leið eins og ég væri með astma, þakkir fá þeir sem tóku myndir af þessu, fannst þetta voða fyndið og pirruðu mig duglega mest allt kvöldið.
Á miðvikudeginum fór ég svo á tónleika með Smashing pumpkins í Valby hallen. Ég er reyndar enginn svaka aðdáandi þeirra en mér fannst þessir tónleikar mjög góðir og þeir fóru langt framar mínum vonum… því miður þar sem ég þurfti að vakna svo HRESS morguninn eftir til að fara að vinna.
Hulda kom svo á fimmtudaginn og var í 3 daga, tókst m.a. að gera mig að miklum aðdáanda sushi og kenndi mér taktana við þetta. Við fórum á Sticks’n'Sushi sem ég mæli með, frábær staður með góðum mat. Reyndar eru 5 slíkir staðir í Kaupmannahöfn og allir með ólíku sniði, þessi sem við fórum á nálægt Nörreport var eins og að fara fínt út að borða, sem var akkúrat það sem við vorum að leita að. Á föstudaginn grilluðum við okkur nautasteik og meððí . Laugardagurinn fór svo í verslunarleiðangur og afmælispartí um kvöldið hjá Evu og Erni. Við enduðum svo kvöldið hópurinn á Vega, næturklúbbi á Vesterbro, þar sem drepleiðinlegir skífuþeytar gerðu út af við okkur. Áðan ætlaði ég svo að baka köku… ég hafði keypt þennan “easy few steps” pakka þar sem niðurstaðan hefði átt að vera ljúffeng pistasíukaka með glassúri… þar til ég fattaði að fjandans matarolían sem ég notaði í kökuna var með hvítlauk! Mmmmm the smell….
Jæja þá er ég búinn að skrifa undir starfssamning við Nykredit Bank. Á mánudaginn byrja ég að vinna í vöruþróunarhópi innan “Finans afdeling”. Þetta verður 50% starf með skóla og svo 50% starf í sumar, sem hentar mjög vel þar sem ég ætlaði bara að vera hérna úti í Danmörku í rólegheitum í sumar og ferðast eitthvað. Þetta kom þannig til að sá sem er yfir þessum hópi er jafnframt kennari í fjármálakúrsunum uppí skóla og var að leita af einhverjum í þessu námi með reynslu af hugbúnaðarþróun, Tryggvi fær props fyrir að benda mér á þetta
Ég ætla að bíða með þetta blogg þangað til að Sunneva hættir að vinna þar Díll?
En svona í millitíðinni, getur einhver útskýrt fyrir mér hvernig veðurskilyrði valda því að Iceland Express getur ekki flogið en Icelandair getur það léttilega?